Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 30
30 TMM 2015 · 2 Guðni Tómasson Heiðurslaun listamanna – gamall arfur eða hreyfiafl listarinnar? Sú var tíðin að fjárlög ríkisins höfðu að geyma, aftarlega í lagatextanum, langa lista með mannanöfnum. Við hvert nafn voru upphæðir í krónum og aurum sem sögðu fyrir um hvað viðkomandi skyldi hafa í laun, eftir- laun eða styrk frá ríkinu það árið. Þarna voru ýmsir embættismenn, t.d. prestar, kennarar, landpóstar, ljósmæður og vitaverðir en einnig ekkjur fyrrum embættismanna. Listamenn, í fyrstu aðeins skáld og rithöfundar, fóru að birtast á þessum listum snemma á tíunda áratug 19. aldar. Síðan þá hefur íslenska ríkið alltaf stutt við listsköpun nokkurs hóps listamanna. Sá stuðningur hefur ýmist farið fram með beinum greiðslum eða í gegnum umsóknarferli, nýtilkomna verkefnasjóði listgreinanna eða það sem við köllum í dag listamannalaun en ættu frekar að heita starfslaun listamanna. Þar er nefnilega um að ræða samkeppnissjóði með jafningjamati og val faglegra úthlutunarnefnda sem endurnýjaðar eru reglulega. Í dag eru áðurnefndir nafnalistar í fjárlögum að mestu horfnir. Þó má í viðauka fjárlaga hvers árs finna stuttan lista yfir nöfn þeirra listamanna sem njóta heiðurslauna listamanna sem Alþingi ráðstafar árlega. Það er á könnu allsherjar- og menntamálanefndar þingsins að taka ákvörðun um það hvort fjölga eigi listamönnunum í þessum merka hópi. Samkvæmt lögum um heiðurslaun frá 2012 má hópurinn þó aðeins telja 25 einstaklinga á hverjum tíma en nú er þar að finna 23 nöfn. Því má halda fram að heiðurslaun listamanna séu veigalítill og heldur afskiptur hluti menningarstjórnmála á Íslandi. Árleg úthlutun heiðurslauna fær yfirleitt minni athygli í fjölmiðlum en úthlutun listamannalauna. En þá sjaldan að heiðurslaunin ber á góma í umræðunni er ljóst að fyrirkomulagið er nokkuð umdeilt, ekki síst sú staðreynd að þingmenn taka að sér fagurfræðilegt mat í þessum efnum og oft hefur glitt í að pólitískir flokkadrættir hafi áhrif á valið. Hér er ætlunin að rekja tilkomu og sögu heiðurslauna, fjalla um nokkuð óljósan tilgang þeirra og tæpa á þeim vandræðagangi sem einkennt hefur valið alla tíð. Í grein í næsta hefti Tímaritsins verður fjallað um hugmyndir um akademíu listanna sem eru bæði gamlar og nýjar af nálinni. Þá verður einnig horft til erlendra dæma um heiðurstyrki til listamanna og mögulegar breytingar á núverandi fyrirkomulagi kannaðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.