Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 134
Á d r e p u r
134 TMM 2015 · 1
Við getum og eigum að vera stolt af
því að íslenska á sér óvenjulega langa,
merkilega og samfellda sögu. Samt er
íslenska hvorki betri eða verri en önnur
tungumál.
Gætum okkar á þjóðrembunni, hún
er eitruð og eyðileggjandi. Hún útilokar
alla aðra, hún lokar okkur sjálf inni í
vænisjúkri tilvist. Þjóðremba er and-
stæða þjóðarstolts. Hún er enn eitt ein-
angrunartækið.
Að lokum þetta: atburðir síðustu viku
og vikna og mánaða eru aðvörun, graf-
alvarleg.
Vísvitandi afvegaleiðing orða og hug-
taka jafngildir spillingu tungumálsins
sem síðan spillir samskiptum manna og
siðferði samskiptanna. Á endanum blas-
ir við siðrof, fyrst manna í millum, síðan
siðrof þjóðfélagsins.
Það felst alvarleg hætta í því þegar
ráðamenn svara kröfum um að þeir
standi við orð sín með útúrsnúningum.
Hvers vegna er það hættulegt?
Vegna þess að það er fyrsta skrefið í
afvegaleiðingu og spillingu tungumáls-
ins, fyrsta skrefið til newspeak Orwells.
Viljum við ganga þann veg? Þar var
tungumálið notað til þess að kæfa sjálf-
stæða hugsun einstaklinganna. Þetta
hefur alls staðar verið raunin í einræðis-
ríkjum og alræðisríkjum, fyrr og síðar,
jafnt í Þýskalandi og Sovétríkjunum
sem annars staðar. Samband milli orðs
og merkingar er vísvitandi rofið og
eyðilagt.
Loforð er loforð er loforð.
Við erum hér samankomin, þjóð-
félagsþegnar lýðveldisins Íslands, gaml-
ir, miðaldra, ungir. Við krefjumst þess
að fá að kjósa um áframhald viðræðna
við Evrópusambandið. Í guðanna
bænum, einkum og sér í lagi fyrir unga
fólkið. Í guðs almáttugs bænum.
Þetta er einföld krafa.
Ef þjóðin skyldi ákveða að halda
áfram viðræðum, þá er enginn sýnilegur
ómöguleiki í framhaldinu, ef ríkis-
stjórnin treystir sér ekki til þess að
framfylgja þjóðarviljanum, þá yrði hún
að segja af sér.
Hún yrði að gera það strax og strax er
ekki teygjanlegt hugtak.
Við krefjumst þess einfaldlega að
menn standi við orð sín, að efnt verði til
margboðaðrar, marglofaðrar þjóðarat-
kvæðagreiðslu um áfamhald viðræðna,
annað er andlýðræðislegt, annað er svik.
Vilja ráðamenn að verði tattóverað í áru
þeirra: andlýðræðislegur svikari?
Við krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu!