Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 18

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 18
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 18 TMM 2015 · 2 Eitthvað svoleiðis. En eina bók hélt ég rosalega mikið upp á, hún var eftir Gunnhildi Hrólfs- dóttur: Undir regnboganum. Gömul hvíthærð kona sem hét Dóra á Mosfelli og var með hænur upp í Mosfellsdal gaf mér bókina sem fjallar um krakka sem fluttu inn á stórt heimili – ég elskaði þessa bók – og Kötu og landnemana, minnir mig að hún hafi heitið, sem voru reyndar nokkrar bækur um landnemabyggð í nýja landinu, þar geisuðu sandstormar og bjuggu indjánar. Uppreisnin á barnaheimilinu var líka ein þessara bóka sem ég man vel eftir og líka Búrið hennar Olgu Guðrúnar. Ég lifði mig svo inn í bækurnar að mig langaði til að lifa inni í þeim, braust inn í sumarbústað með Benna Kúl vini mínum, við héldum að þar væru innbrotsþjófar og urðum völd að eignatjóni afþví við lifðum okkur svo inn í þessar bækur. Ég skrifaði bíómyndahandrit með vinkonu minni upp úr Ottó nashyrningi og Fúsa froskagleypi. *** Manstu eftir fyrstu bíómyndinni sem þú sást? Og með hverjum þú fórst í fyrsta sinn bíó? Á hvaða mynd? Það var mynd um Bamba og mig minnir hún hafi verið sýnd í Regnbog- anum. Ég var mjög ung, við móðursystir mín, Guðný Halldórsdóttir, tókum rútuna úr Mosfellsdal. Guðný er kvikmyndagerðarkona og vildi örugglega manna mig upp í bíómálum. Við sváfum í íbúð ömmu og afa á Fálkagötunni og tókum strætó í Regnbogann. Ég man þetta mjög vel og meira eftir öllu í kringum fyrstu myndina, minnst eftir Bamba. Mig minnir meira að segja að það hafi verið slydda, daginn sem við fórum í bíó. Þetta er óréttlát spurning: hvort fannst þér skemmtilegra að lesa eða horfa á bíó? Mér fannst ekkert sérstaklega skemmtilegt að horfa á sjónvarpið fram eftir aldri, ég horfði á Húsið í sléttunni, Stundina okkar og á Löður með pabba, en þegar ég varð unglingur nennti ég ekki að horfa á sjónvarp, ég sagði vinum mínum að ég skyldi ekki lifa í gegnum sjónvarp. Frá því ég var gaggó-unglingur og þar til ég var tuttugu og sex ára horfði ég nánast ekkert á sjónvarp, fór í M.A., þar var ekki sjónvarp, bjó hjá frænku minni sem hafði ekki sjónvarp, reyndar leigði ég með tveimur strákum, Róberti Douglas og Agnari Jóni Egilssyni og horfði með þeim því þeir horfðu á bíómyndir allan sólarhringinn, borðuðu Godard í hádegismat og Fellini í kvöldmat, svo bjó ég á Flateyri og horfði bara á Baðverðina og vídeóspóluna Bad Boy Bobby, jú, og líka á Naked nokkrum sinnum, en þegar ég kynntist Tóta fór ég að horfa á sjónvarp svo heitið gæti. Við fengum sjónvarp í brúðargjöf, horfðum á sjónvarp og borðuðum spagettí í þrjú ár og smökkuðum ekki áfengan dropa því það var svo gaman hjá okkur, hittum eitt sinn á þessu tímabili skandinavíska vonarstjörnu í bókmenntum sem kom í heimsókn, með allt í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.