Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 13
ÖFEIGUR
11
sem finnst lífið vera „sjónhverfing og leiðsla hál“. Sama
yfirbragð hins fyrsta forföður manna hreif skaparann
svo mjög í árdaga, að hann tók stykki úr Adam og
bjó til úr því hina fögru en dutlungafullu Evu. Þeg-
ar Adam hafði fengið sinn trygga lífsförunaut, þorn-
aði vesaldardropinn af nefi hans, en djúp lífshamingja
fyllti sál hans, þar sem áður var eyðisandur og öræfi
í heimi andans. Upp úr kynnum þessara landnema í
Paradís spratt mannkynið, og reyndist þar misjafn
sauour í mörgu fé, en Adam fannst hann vera alsæll
eftir að hann tók að kynnast Evu. Eysteinn Jónsson
kom á svipaðan hátt, eins og Eva í aldingarðinum, með
óvæntum hætti í kynni við Ólaf Thors, fyrir mannleg-
an en ekki yfirnáttúrlegan tilverknað. Eysteinn tók
og jók dýrtíðarskammt almúgans í hinu íslenzka himna-
ríki sem svaraði 100 milljónum ár hvert.
Frumburður úr Paradísarlífi Ólafs og Eysteins er
töfraveran Benjamín. Hann ber í brjósti ómengaða
trú æskuáranna, líkt og Gissur Einarsson þegar hann
stefndi með föstum skrefum upp í lúterskan biskups-
stól. Benjamín var fluttur til íslands til að segja stjórn-
inni, hvernig hún ætti að stýra fjármálunum. Hann
varð sameiningartákn þeirra flokka, sem hófu hann
til valda, eins og barnið er tengiliður milli foreldra,
sem kalla hvort annað „skepnu“ og ,,svikahró“ þegar
hjúin heyra til en semja þess á milli einlæga sátt.
Benjamín var um stund alvaldur, líkt og Krishnamurti
í Ommen, þar til bænheit íslenzk kona stökkti honum
þaðan og úr guðatölu. Þegar mestu stórhöfðingjar Norð-
urálfu koma til Washington, fá þeir að ávarpa báðar
deildir þingsins. Á sama hátt fékk Benjamín, einn
allra dauðlegra manna, að birta greinar sínar sam-
tímis í Mbl. og Tímanum. Landsfólkið horfði með svip-
aðri undrun á þennan nýja riddara eins og þegar Jör-
uiidur konungur reið um götur Reykjavíkur á hest-
um, sem voru klipptir á engelskan móð.
Ólafi og Eysteini þótti Benjamín aldrei fá nógu mik-
ið fjármálavald. Þeir settu hann yfir nefnd, 'sem átti
að gerbreyta Landsbankanum. Voru uppi stórar 'ráða-
gerðir um að flytja seðlapressuna og seðlaútgáfuna í
kjallara stjórnarinnar. Skyldi Benjamín í fyllingu tím-