Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 24
22
OFEIGUR
ar tekjur í sambandi við varnarliðið. Fundarmenn við-
urkenndu, að greinargerð Vilhjálms væri skilmerkileg,
en með tillögum hans hans voru, auk ræðumannsins
sjálfs, aðeins 5 menn. Þá hafa 400 verið á öðru máli.
Fall þessarar tillögu var eini merkisatburðurinn á
Framsóknarþinginu. En ef dæma á eftir því,
sem fram kom opinberlega á flokksþinginu, hafa
þessir fulltrúar Framsóknarmanna í sælum draumi
greitt atkvæði þveröfugt við það, sem þeir vildu
vera láta. Hér var um að ræða málsmeðferð eins og
þegar skemmtikraftar úr Reykjavík halda uppi stjórn-
málalífi sveitamanna. Að líkindum hafa fundar-
menn haldið, að hér væri um loddaraleik að ræða af
hálfu flokksstjórnarinnar og enginn maður er ákveðn-
ari en Eysteinn Jónsson að halda áfram að fá í ríkis-
sjóð óskertar tekjur af Vellinum. Kom það glögglega
fram tveim dögum eftir þessa frægu atkvæðagreiðslu.
Þá gerði Framsóknarstjórnin bindandi skriflegan
samning við Bandaríkin um að þau leggi á næstu árum
200 milljónir króna í Njarðvíkurhöfn. Hinsvegar er
óvíst hvort hinum mörgu greindu og gegnu mönnum
sem felldu tillögu Vilhjálms Þórs hefur verið ljóst,
að ef farið væri eftir ályktun þessari svo að ísland
hyrfi úr varnarsambandinu, yrði eftir opið hlið í miðj-
um Atlantshafshringnum og að þá yrði svo á litið,
af öllum hinum vestræna heimi, að hér væri um að
ræða svik á háu stigi og að sú sviksemi væri þess
eðlis, að þau gætu orsakað frelsistjón og mikla óham-
ingju allra grannþjóða íslendinga. Vafalaust mundi
þá verða ritað og skýrt í löndum allra þeirra þjóða,
sem yrðu fyrir svikunum, hvernig framganga íslend-
inga væri í þessu efni. Þjóðin hefði verið í hinni mestu
hættu þegar 200 framandi skip lágu við strend-
ur landsins full af hermönnum. Þingmenn borgara-
flokkanna höfðu þá beðið um hjálp frá Atlantshafs-
bandalaginu og fengið óskina uppfyllta. Annars hefðu
íslendingar ekkert lagt fram til varnanna nema nokkuð
af auðu landi sem húsgrunna. Hinsvegar hefðu þjóðar-
leiðtogarnir breytt frelsisósk íslendinga í stórkostlega
tekjuöflun fyrir ríkið, höfuðstaðinn og nálega alla ein-
staklinga í landinu.
*
Sennilega hefur Vilhjálmi Þór brugðið nokkuð í brún