Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 37
ÓFEIGUR
35
aðra milljón króna á þessari svikaverzlun. Ekki hefur
enn verið gefin skýrsla um hversu þessum gróða hef-
ur verið skipt milli samsektarmanna.. Þar var um tvær
leiðir að ræða: Að Stefán hefði setið einn að þessum
skyndigróða eða að margir hafi þar verið að verki.
Flestir hallast að þeirri skoðun, að Stefán sé og hafi
alltaf verið fátækur maður og að hann hafi lent út
í þessa svikamyllu undir áhrifum annarra og öðrum
til hagsbóta.
Stuðningsmönnum Ásgeirs Ásgeirssonar úr forseta-
kjörinu þótti mikill álitshnekkir fyrir samtök þeirra,
þegar tveir aðalforystumenn úr kosningabaráttunni
höfðu nú orðið berir að mikilli og vansæmandi óreiðu
í opinberum fjármálum. Hefði raunar verið eðlilegt, að
forystumenn áðurnefndra kosninga hefðu óskað eftir
að ríkisstjórnin léti fullrannsaka hvort Gunnar Hall og
Stefán Pálsson hefðu af misskildum stjórnmálaáhuga
farið gálauslega með fé sem þeim var trúað fyrir.
En það hefur ekki verið gert. Má segja, að mál þeirra
Gunnars og Stefáns séu í biðskák þjóðfélagsins. Helgi
Guðmundsson bankastjóri í Útvegsbankanum lét af
störfum við forstöðu bankans heldur skyndilega um
það bil sem upp komst um misfellur Stefáns. Annar
bankamaður hafði veitt Stefáni hin óleyfilegu en gróða-
vænleg uleyfi, en Helgi var yfirmaður stofnunarinnar
og mál Stefáns benti á, að bankinn þyrfti fastari stjórn-
arhætti heldur en þetta gróðamál Stefáns bar vott um.
*
Hermann Jónasson hugði umsögn mína um þýðing-
arleysi hans í Búnaðarbankanum óþægilega fyrir álit
sitt, en taldi þó í fyrstu öruggast fyrir sig, að hreyfa
engum mótmælum. En ýmsir flokksmenn hans, sem
voru ekki nógu kunnugir málavöxtum, hvöttu hann til
að leita úrskurðar dómstólanna. Meðan stóð á þess-
um umþenkingum, ritaði hann nafnlausa grein í Tím-
ann og sagði sem satt var, að lítið gagn væri að fara
í meiðyrðamál því að fengju allir sekt, hvort sem þeir
hefðu farið með rétt mál eða rangt. Viðurkenndi Her-
mann hreinskilnislega þá staðreynd, sem hér verður
oftar að vikið, að í refsilögum þeim, sem hann bar
fram 1940, er „flotholt syndarans“ lögfest. Ef deilt
er á mann, skiptir litlu hvort ásökunin er rétt eða