Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 55
ÓFEIGUR
53
vikum liðnum segist hann vera búinn að gleyma að
hann hefir borið fram tvírökstudda bendingu út af Gunn-
arsbúð við V. Þór. Að visu neitar hann ekki sam-
talinu, en styðst ekki við sitt eigið minni. Fyrir rétti
man hann mjög óljóst eftir afskiptum bankaráðs Bún-
aðarbankans í sambandi við Gunnarsmál. Hann er ekki
viss um hvort málið var þar einu sinni eða tvisvar
til umræðu.. Hann virðist hafa verið sljór og áhuga-
laus í bankaráðinu um viðbrögð bankans. Fyrir æðsta
embættismann bankans var það ekki ómerkilegt mál
ef stofnun bænda neyddist til að ákveða eftir fárra
mínútna fund að leggja til hliðar meira en hálfa millj-
ón króna til að vega á móti sennilegu tapi á einum
viðskíptamanni bankans. Öll frammistaða Hermanns
í þessu máli er óafsakanleg. Hann hefur búið til handa
sér ákaflega dýrt embætti. Stjórn hans á bankanum
er svo óframbærilega léleg, að þrátt fyrir mikinn og
gróin vinakynni við fólkið í Gunnarsbúð, varar hann
samstarfsmenn í lánsstofnuninni ekki við hættunni.
Hann veit um hrunið, löngu áður en hann ræðir það
í bankaráðinu. Hann lætur líða heilan ^nánuð milli
hinna ómerkilegu funda um þetta tapmál. Hann gat
krafizt vegna bankans, að frú Blöndal yrði látin bera
tapið á Gunnarsbúð, í stað þess að koma því á aðra
og óviðkomandi menn. En þetta kom honum ekki til
hugar.
*
Áhugi Hermanns í sambandi við Gunnarsbúð kemur
hvergi fram þar sem skyldan bauð honum að starfa.
Hann gengur seint og illa til dyra sem trúnaðarmaður
almennings, en hann sýnir vakandi skilning á öllu
sem gat hjálpað því fólki, er bar ábyrgð á óförunum
til að sleppa frá réttlátu fjártapi. I aldarfjórðung
hefir Hermann sýnt Gunnarsbúð næstum föðurlega
mnhyggju. Þegar Gunnar tekur við forystunni, er eyða í
eigendatalið. Þeirra hluta vegna getur hafa verið laumu-
farþegi í lestinni, en rannsóknin beindist ekki sérstak-
lega að því atriði. Um leið og Hermann veit að skipið
strandar, reynir hann að nota sér húsnæðisþörf SÍS
til að fá forráðamenn þess til að kaupa vöruforðann
og leigja húsið. Þegar samtalið við þáverandi forstjóra
SlS ber engan sýnilegan árangur, kemur málvinur Her-
mann til stuðnings kaupsýslusóknarinnar. Málvinurinn