Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 36
34
ÓFEIGUR
vík og af fyrstu sprengingu leiddi háa hvelli í ná-
grenninu. Merkir fjármálamenn hurfu hljóðalaust úr
vandasömum sætum. Það þóttust menn vita, að okr-
aramir ættu nokkra sök á því. Eitt tf kænskubrögð-
um þeirra var að fá efnamenn til að leggja sparisjóðs-
bækur sínar inn í vissa staði, þar sem fé var látið
falt með því skilyrði, að fá að ráða hverjum það fé
væri lánað. Tryggingar voru að vísu heimtaðar, en
sá sem útvegaði sparisjóðsbókina, gat á bak við þann
sem lánaði náð okurvöxtum af stórum f járhæðum. Víða
höfðu okrararnir leikið lausum hala um útvegun og
meðferð fjárins. Þótti mönnum, sem lent höfðu í klóm
þessara svikara, stundum alveg óafvittandi, betra að
hverfa úr fjármálaheiminum heldur en að þola ýtar-
lega rannsókn á öllum þeim fjárreiðum, sem gerzt
höfðu á vegum þeirra.
*
Eitt af merkustu hliðamiálum Gunnarsbúðar var
fjárbrallsmál Stefáns Pálssonar, sem lengi hafði gegnt
mkilum trúnaðarstörfum hjá Mbl.-flokknum. Hann
hafði árum saman staðið fyrir góðgerðastarfsemi Vetr-
arhjálparinnar og verið skrifstofustjóri flokksins við
kosningar. Hann var vel til þess starfs fallinn. Hafði
mikinn kunnugleika á fólki í bænum, ekki sízt þeim
sem búa við þröng kjör og muna með þakklæti fyrir-
greiðslur góðgerðasamra manna. En þegar Gunnar
Thoroddsen kom með mikinn liðskost í óheimild Ólafs
Thors, til stuðnings tengdaföður sínum móti sr. Bjarna
þá hafði Stefán haft forystu fyrir þeirri sveit og til
hægðarauka tekið með sér skrá Mbl.-manna yfir kjós-
endalið þeirra. Eftir sigur Ásgeirs, var þessi misbrúk-
un á flokksskrá sjálfstæðismanna talin, á bæ flokks-
stjómarinnar, því lík eins og ef æðstiprestur Gyðinga
hefði laumað steintöflum Móse yfir í herbúðir Filistea.
*
Við endurskoðun á gjaldeyrisleyfum í sumar sem
leið kom í ljós að Stefán hafði stórkostlega misbrúkað
trúnað Útvegsbankans. Hafði hann fengið nálega hundr.
að sinnum gjaldeyrisleyfi, sem talin vom veitt vegna
atvinnureksturs í þágu útvegsins, en þessi hlunnindi
hafði Stefán selt spekúlöntum og fjárglæframönnum
með stórkostlegum hagnaði. Við frumrannsókn á mál-
inu kom í ljós, að Stefán hafði grætt nálega hálfra