Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 26
24
ÖFEIGUR
tekið hafa fyrr meir þátt í því að skapa flokkinn og
hrinda í framkvæmd mörgum djörfum hugsjónarmál-
mn. En nú hefur flokkurinn í 14 ár búið við algjör-
lega andlausa forystu og loddaraskap á háu stigi, eins
og kemur berlega fram í þeirri málsmeðferð að skuld-
binda flokk í frjálsu vestrænu landi til að rjúfa í einu
sættir og grið í Atlantshafsmálinu og koma um leið
öllum fjármálum lands og þjóðar í fullkomna öng-
þveiti með þeim hætti, að liðsoddum núverandi borg-
ara mundi ekki vera lífvænt í landinu fyrir hungruð-
um ofbeldislýð, sem knúinn væri til óhappaverka frá
húsbændum í fjarlægu landi, ef léttúðarstefna flokks-
þingsins næði fram að ganga.
*
Nokkrum árum eftir að ég hætti þingsetu, fékk
ég vitneskju um, að eigendur togara í Reykjavík
vildu gjarnan selja bæjarsjóði Húsavíkur gott skip.
Þetta var tiltölulega nýr togari og ákaflega vel við
haldinn. Ég lét bæjarstjórn Húsavíkur vita um þenna
möguleika. Forráðamenn Húsavíkur ætlaði strax að
nota þetta tækifæri og var safnað allmiklu hlutafé í
kaupstaðnum. Bærinn lagði fram myndarlega fjárhæð.
Kaupfélag Þingeyinga ákvað að leggja 100 þús. krónur
í togarann, til að styrkja atvinnulífið í bænum. Sendu
Húsvíkingar nú nefnd til Reykjavíkur. bæði til að ræða
málið við togaraeigendurna, stjórnarvöldin og Al-
þingi. Var sendimönnum allsstaðar vel tekið nema af
Eysteini Jónssyni. Hann fann málinu allt til foráttu
og tafði fyrir öllum leyfisveitingum. Þingmaður kjör-
dæmisins, Karl Kristjánsson, var formaður í Kaupfé-
lagi Þingeyinga og hafði átt þátt í að tryggja væntan-
legu togarafélagi á Húsavík hið óvenjulegu mikla fram-
lag félagsins. En nú virtist Eysteinn Jónsson hafa
heimtað af honum, að hann hjálpaði til þess, að málið
næði ekki fram að ganga. Sendu Húsvíkingar aðra
nefnd, skipaða fulltrúum úr öllum flokkum til Reykja-
víkur. Sátu nefndarmenn á Hótel Borg langdvölum
og sóttu málið á Alþingi. Þegar hér var komið, höfðu
Isfirðingar eignazt tvo togara, Siglfirðingar tvo, Aust-
firðingar einn og Vestmannaeyingar tvo. Öll yoru
þessi skipakaup og útgerðin að mestu leyti á ábyrgð
ríkissjóðs. Eysteinn Jónsson hafði beint og óbeint stað-
ið að öllum þessmn ráðstöfunum og alveg sérstaklega