Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 25
ÖFEIGUR
23
þegar hann sá mörg hundruð greinda og myndarlega
samvinnumenn furðulega skilningasdaufa um þýðingar-
mesta þjóðmálið. Ef til vill hefur hann þá leitt
hugann að því, að þegar hann gerðist forstjóri
Sambandsins var Eysteinn Jónsson að verða áhrifa-
maður í stjórn þess. Hafði hann brotizt þar allfast
til valda og reynt að bola þar frá trúnaði bæði Vil-
hjálmi, Jakob Frímannssyni á Akureyri og Sigurði
Kristinssyni. Þegar Eysteinn hafði náð nokkrum völd-
um í Sambandinu, beitti hann sér fyrir því að afvopna
Sambandið andlega, eins og hann hafði áður afrekað
í Framsóknarflokknum. Verzlunarviðskipti Sambands-
ins og framkvæmdastörf þess gengu yfirleitt vel,
þó að sumt hefði þar mátt betur fara, svo sem bíla-
verzlunin síðastliðið sumar. En Eysteinn Jónsson álítur
sér hentara að hafa almúgan þægan og hlýðinn sín-
um yfirboðurum. Fólkið eigi ekki að hugsa mikið, og
sízt sjálfstætt. Eysteinn réði því að útilokaðir voru
frá fræðslustörfum í samvinnufélögunum þeir menn
sem sérstaklega mátti búast við að kynnu að hafa
áhrif til eflingar sjálfstæðri hugsun. Með miklum fram-
kvæmdum varð að fylgja glöggur skilningur félags-
manna á því sem verið var að móta og mynda. Nú
voru á svörtum lista margir þeir menn, sem höfðu mesta
þýðingu í þessu efni. Þessi andlega afvopnun leiddi
siðar til að ýmsir svartlistamenn urðu í óþökk gisti-
vina kommúnista að grípa hvað eftir annað til bjarg-
ráða, þegar mannorð og traust samvinnufélaganna var
í hættu og gefa viðhlítandi skýringar varðandi um-
deild atriði.
*
Ef Vilhjálmur Þór hefði jafnframt framkvæmdar-
önnum sínum, eftir að hann settist að í Reykjavík, ritað
nokkrum sinnum á ári greinar svipaðar að efni ræð-
unni á flokksþinginu um hin miklu vandamál, fjár-
málin og varnarmálin, í blöð Framsóknarmanna eða
samvinnumanna, þá mundi hann hafa haft jafnmarga
stuðningsmenn með sinni réttmætu tillögu á þessu
flokksþingi eins og hann hafði þar marga andstæð-
inga. Hin eftirminnilega niðurstaða í eina málinu á
þinginu þar sem málavextir voru skýrðir með hreinskilni,
sýnir fullvel hvar Framsóknarflokkurinn er nú stadd-
ur í andlegum efnum. Þar er margt góðra manna, sem