Ófeigur - 15.05.1956, Síða 25

Ófeigur - 15.05.1956, Síða 25
ÖFEIGUR 23 þegar hann sá mörg hundruð greinda og myndarlega samvinnumenn furðulega skilningasdaufa um þýðingar- mesta þjóðmálið. Ef til vill hefur hann þá leitt hugann að því, að þegar hann gerðist forstjóri Sambandsins var Eysteinn Jónsson að verða áhrifa- maður í stjórn þess. Hafði hann brotizt þar allfast til valda og reynt að bola þar frá trúnaði bæði Vil- hjálmi, Jakob Frímannssyni á Akureyri og Sigurði Kristinssyni. Þegar Eysteinn hafði náð nokkrum völd- um í Sambandinu, beitti hann sér fyrir því að afvopna Sambandið andlega, eins og hann hafði áður afrekað í Framsóknarflokknum. Verzlunarviðskipti Sambands- ins og framkvæmdastörf þess gengu yfirleitt vel, þó að sumt hefði þar mátt betur fara, svo sem bíla- verzlunin síðastliðið sumar. En Eysteinn Jónsson álítur sér hentara að hafa almúgan þægan og hlýðinn sín- um yfirboðurum. Fólkið eigi ekki að hugsa mikið, og sízt sjálfstætt. Eysteinn réði því að útilokaðir voru frá fræðslustörfum í samvinnufélögunum þeir menn sem sérstaklega mátti búast við að kynnu að hafa áhrif til eflingar sjálfstæðri hugsun. Með miklum fram- kvæmdum varð að fylgja glöggur skilningur félags- manna á því sem verið var að móta og mynda. Nú voru á svörtum lista margir þeir menn, sem höfðu mesta þýðingu í þessu efni. Þessi andlega afvopnun leiddi siðar til að ýmsir svartlistamenn urðu í óþökk gisti- vina kommúnista að grípa hvað eftir annað til bjarg- ráða, þegar mannorð og traust samvinnufélaganna var í hættu og gefa viðhlítandi skýringar varðandi um- deild atriði. * Ef Vilhjálmur Þór hefði jafnframt framkvæmdar- önnum sínum, eftir að hann settist að í Reykjavík, ritað nokkrum sinnum á ári greinar svipaðar að efni ræð- unni á flokksþinginu um hin miklu vandamál, fjár- málin og varnarmálin, í blöð Framsóknarmanna eða samvinnumanna, þá mundi hann hafa haft jafnmarga stuðningsmenn með sinni réttmætu tillögu á þessu flokksþingi eins og hann hafði þar marga andstæð- inga. Hin eftirminnilega niðurstaða í eina málinu á þinginu þar sem málavextir voru skýrðir með hreinskilni, sýnir fullvel hvar Framsóknarflokkurinn er nú stadd- ur í andlegum efnum. Þar er margt góðra manna, sem

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.