Ófeigur - 15.05.1956, Blaðsíða 71
byggö á 33% rýmri fjárhag heldur en nokkur önnur
þjóö á hnettinum býr nú við.
*
Núverandi eyösla og lífshættir Islendinga veröa
stundarfyrirbæri. Til lengdar lifir engin þjóð á gjöfum.
En liösoddar og liösmenn allra stjórnmálaflokkanna
hafa sótt fast að komast í þennan gróöa fyrir sig og
sína vini og þrá mest af öllu aö hálda viö óbreyttu
ástandi. Kosningahávaöinn er látálæti ein. Stórbygg-
ingar Reykjavíkur frá síöustu misserum sýna hvert
dollararnir fóru. Bandartkjamenn komu meö nœgileg-
an mannafla til aö bœta úr öllum þörfum varnarliös-
ins, en ríkisstjórnir Steingríms og Ólafs hafa látiö
undan kröfum manna, sem hafa heimtað að sleppa
óhófsgróöanum lausum. Atvinnurekendur til lands og
sjávar þögöu. Þeir kunnu ekki að gera dollarana aö
þjóöargæfu.
*
Meö tvöföldum fataskiptum ætla erfingjar Stalins
aö fá úrslita og oddaaöstöðu í þinginu, en magna óvild
og afbrýöi milli borgaranna. Þriöja herdeildin hefir
beöið Stalinista um hlutleysi fyrir ríkisstjórn. Sjálf-
stæöismenn biöja þá sennilega um aöstoö við lands-
listabaráttu. Þjóðin getur komizt af upp á gamla móö-
inn meö því aö lækka lífskröfur um þriðjung. Annars
eru aðeins tvær leiör: Að ofurselja landið rússneskri
yfirstjórn sem innan tíöar yröi svipuö örlögum Est-
lands eöa Austu-Þýzkálands. Hin leiöin er aö halda
áfram aö vera frjáls og menntuö vesturþjóö, njóta í
þeim félagskap réttar og verndar og hömulauss viö-
skiptafrelsis, en Marshailaðstoöar til aö gera atvinnu-
lífið sjálfbjarga eftir upplausn yfirstandandi tíma.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Afgreiðsla: Laugaveg 7, Reykjavík.
Prentað í Steindórsprenti h.f., Reykjavík.