Ófeigur - 15.05.1956, Side 19

Ófeigur - 15.05.1956, Side 19
ÓFEIGUR 17 menn, þó að þeir væru ekki með öllu útilokaðir frá félagsmálavinnu. * Á nýafstöðnu flokksþingi talaði Bernharð einn af þingmönnum fyrir Framsókn, fyrir utan formann og ritara. Tveir af meðráðherrum Eysteins, dr. Kristinn og Steingrímur, fluttu engar skýrslur um störf sín. Heita má að andleg viðkoma hafi stöðvazt á veg- um Framsóknar, síðan svartlistaumbrot gistivina urðu að starfsreglu. Ungum mönnum er haldið frá opinberri vinnu af sjúkri einræðishneigð. Hjálmar Vilhjálmsson fyrrv. sýslumaður á Seyðisfirði, hefur orðið fyrir barð- inu á gistivinum, eingöngu af hneigð þeirra til Stalin- isma í umgengni við samstarfsmenn. Verður síðar vik- ið að þessum háskalegu vinnubrögðum. Það er verið að breyta Framsóknarflokknum í steingerving. Ef viðunandi félagsmálaþroski væri í landinu, mundi flokksþing Framsóknarmanna hafa rætt um eitt mál: Hið sjúka ójafnvægi. Frá vamarliðinu streym- ir inn í landið óhemju auður. Samt er iandið á vonarveli. Allur atvinnurekstur til lands og sjávar er rekinn með gjafafé frá ríkissjóði. Það gjafafé berst til þjóðarinnar í sambandi við vörn landsins. Þjóð- bankann vantar reiðufé til starfs síns. Aðalbankastjóri þjóðbankans yfirlýsir, að innan skamms muni ríkið verða að biðja Bandaríkin um bráðabirgðalán allt að 100 milljónum króna. Kaupfélögin, sem verzla með nauðsynjavörur almennings, verða að spara nauðsyn- leg iimkaup vegna þess að hér vantar peningni i þessu gagnauðuga peningalandi. Flokksþing Framsóknar fjallaði um allt annað en þetta mál málanna. Allt snerist um eitt atriði: Vinstri stjórn. Hún átti að vera allra meina bót. En formæl- endur þessarar væntanlegu stjórnar minntust ekki einu orði á, hvað hún ætti að gera. Óskinni um vinstri stjórn fylgdi aðeins ein skýring. Framsókn var á 9 sam- stjómarárum með Mbl.-mönnum búin, eftir því sem Heimann sagði, að reyna af þessum samferðamönnum svo mikil svik og pretti í ótal myndum, að hreinn og varanlegur skilnaður milli hins góða og vonda flokks var siðferðileg nauðsyn. Flokksþingið átti að vera

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.