Ófeigur - 15.05.1956, Síða 22

Ófeigur - 15.05.1956, Síða 22
20 ÓFEIGUR syn að hafa aðra aðferð, af því að kosningar standa fyrir dyrum. Nú verður að skjóta ákaflega á Mbl., en þau skeyti verða jafngræskulaus eins og þegar Þjóð- verjar létu, mitt í fyrra stríðinu, reka nagla í geysi- stóra trémynd af Hindenburg. Myndin stóð hjá Sigur- súlu. Hver sem rak nagla í skurðgoðið, borgaði eitt mark í stríðskassann keisarans. Ólafur lítur á hverja ör, sem Framsókn sendir honum í kosningunum sem „frísynd“ og réttlætanlega borgaraathöfn. :X= Meðan Island átti konung sameiginlega með Dan_ mörku, kom hann venjulega hingað til lands með nokk- urra ára millibili, til að rækja skyldur við þegna sína. Var honum þá jafnan haldin fögur veizla í Hótel Borg og mannf jöldi eins og húsið rúmaði. Þó að íslending- ar séu eiginlega ekki konungahollir, þá hafa þeir alla stund, bæði í fornöld og enn, haft gaman af að vera nærri konungum við hátíðleg tækifæri. Voru konungs- veizlur enn rnjög vinsælar í tíð Kristjáns X og fyrir forgöngu forseta Islands kom nú til landsins sá þjóð- höfðingi, sem mundi ráða hér ríkjum, ef skilnaðar- andinn hefði ekki verið svo ríkur, sem raun b'ar vitni um. Enn var veizlan í Hótel Borg, þar var enn al- veg alstirndur himinn. I hvert skipti sem konungur kemur, til landsins, er fögur sjón að horfa yfir veizlu- bekkina og sjá hin mörgu krossuðu brjóst, þar sem allir tjalda því sem til er. Auðlegð manna í þeim efn- um er þó nokkuð misjöfn. Sumir hafa einn lítinn kross og una vel við sitt. Aðrir hafa marga og stóra. Síðan ísland tapaði konungdómi, hefur helzta tæki- færi krossaðra manna til að njóta þessara gæða, verið við tilteknar hátíðarsýnnigar í leikhúsinu, einu sinni á ári. Nú í ár getur orðið tvíheilagt. Bæði konungs- veizla og vorsýning í leikhúsinu. Á báðum ánægjuleg krossasýning. * Þrír höfuðleiðtogar mótuðu „stefnuna" eða öllu held- ur stefnuleysið á flokksþingi framsóknarmanna. Her- mann sagði í upphafi jafnglögglega eins og hann treysti sér til sinn innri hug, að hann vildi láta vinstristjórnar veldið ná til kommúnista. Hefur hugur hans árum saman hvarflað í þá átt. Kommúnistar hafa á undan- gengnum árum leikið við Hermann líkt og Sæmund-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.