Ófeigur - 15.05.1956, Page 32

Ófeigur - 15.05.1956, Page 32
30 ÓFEIGUR honum nær að gera hreint í sínu eigin gróðabralls- húsi heldur en að bera kærur á alsaklausa menn. Átt- ust Styrkár og skrifstofumaðurinn við lengi dags, og voi-u gagnkvæmar óbænir þeirra í allra þróttmesta lagi. Styrkár hélt manninum í einskonar stofufangelsi fram á kvöld. Þótti konu mannsins furðulegt, að bóndi hennar kom ekki heim eins og venja var til, hvorki í hádegisverð eða síðdegiste. Fékk frúin hugboð um að maður hennar mundi ekki vera frjáls ferða sinna. * Stofufangi Styrkárs var svo gæfusamur, að eiga fyrir tengdaföður mann, er hafði fæðzt og alizt upp á landa- merkjum almúga og höfðingjastéttanna. Þegar í óefni virtist komið, með eiginmann frúarinnar, greip hún bíl sinn og ók á fund föður síns. Hann var líkt settur eins og hetjurnar á Bergþórshvoli, sem hvöttu vopn sin og fægðu skildi áður en þeir lögðu til orustu. Hér var að verki einn af þeim mönnum, sem gat átt víst heimboð í veizlum stjórnarinnar, þegar erlendur kon- ungur kom í bæinn. Hafði maðurinn tekið ofan veizlu- búnað sinn og heiðursmerki. Athugaði hann vandlega lykkjur þær, sem höfðingjar hafa á tilhaldsklæðum sinum, og er ákveðin lykkja tilsett að taka á móti sín- um krók, sem ber aftur á móti sinn kross. Þurfa heið- ursmerki á velstirndu brjósti að hafa sitt naust á klæð- um tilhaldsmanna. * Dóttirin tjáir föður sínum, að maður hennar muni vera í ólöglegu og tilefnislausu haldi á vegum gróða- manna og stórspekúlanta á Vellinum og biður höfð- ingjann ásjár. Hér hitti frúin á mann sem minnti á Gunnar á Hlíðarenda, hógvær og stilltur hversdags- leg'a, en hvergi hræddur við orustur, ef hann varð að verja lífsgæði sín og sinna. Mjög þykknaði lund hans, en ekki mælti hann æðruorð meðan hann bar síðasta krossinn við síðustu lykkuna og sá að allt stóð heima. Raðaði hann þá heiðursmerkjunum hverju í sína öskju, lagði kjólinn með lykkjunum á sinn stað, tók þegjandi hönd dóttur sinnar, leiddi hana út að tilhaldsbifreið sinni og ók á fund hinna gunnreifu spekúlanta. * Faðirinn kom þar að sem Styrkár var að ljúka við að yfirheyra tíunda sakborninginn. Gekk komumaður

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.