Ófeigur - 15.05.1956, Síða 35

Ófeigur - 15.05.1956, Síða 35
ÓFEIGUR 33 hin mörgu efnisvana dagblöð eða sjálf lögreglan, skyldi taka að sér að opna leyndardóm Austurstrætis fyrir borgurum landsins. * Meðan beðið var eftir ritlingnum, var allfast sótt að dómsmálastjórninni og lögreglustjóra að hindra út- komu ritlingsins og helzt að brenna hann opinberlega. Yfirvöldin töldu ekki ástæðu til, að órannsökuðu máli, að grípa til svo óvenjulegra úrræða. Hér kom til greina að Gunnar Hall hafði verið einn af fremstu stuðnings- mönnum Ásgeirs Ásgeirssonar við forsetakjörið 1952. Samherjar Gunnars úr þessari baráttu sóttu fast á að engin rannsókn færi fram í málinu, af því að sekt Gunnars kynni að kasta skugga á kosninguna, alveg sérstaklega, ef Gunnar gæti ekki gert grein fyrir veru- legum hluta þess fjármagns, sem glatazt hafði í hönd- um hans. * Samherjar Gunnars úr forsetakjörinu töldu sér gerða vansæmd, þegar það kom fram, að allmikið af bókasafni Gunnars var geymt á Bessastöðum. Umræð- ur um þetta bókasafn urðu ákveðnari þegar sú fregn baret út um landið, að vinir Gunnars vildu láta ríkið kaupa þetta bókasafn fyrir hálfa aðra milljón króna, í því skyni, að það yrði safn forsetadæmisins. Konur voru í þessu efni enn grimmari heldur en karlmenn. Vildu sumar hinar harðfengustu láta brenna ritling- inn á miðju Lækjartorgi, en varpa mér í dýflissu. Hvorugt var þó gert. Mjög var reynt að útskýra til- vist bókasafnsins á forsetaheimilinu. Um síðir gaf bókavörður Gunnars Hall þá skýringu á málinu, að hann ætti allar þær bækur, sem geymdar voru á Bessa- stöðum, en þegar fram kom, hver ljóður var á ráði Gunnars og að hann hafði hinsvegar átt meginþátt í forsetakjörinu, var horfið frá því ráði, að vinna að þessari verzlun. Liggur bókasafnið nú á vegum TJtvegs- bankans sem hluti af tryggingum fyrir skuldum Gunn- ars Hall. Þegar vitneskja barst út um land um fjársvik, okur og yfirhilmingasamtök í sambandi við Gunnarsbúð, fór að rjúka á fleiri bæjum. Var því líkast, að hér væri komið niður á jarðsprengjubelti í miðri Reykja-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.