Ófeigur - 15.05.1956, Side 41
ÓFBIGUR
39
10 í höndum einkaeigenda. Skyndilega er Ölafur, vihur
Hermanis, orðinn björgunarmaður Gunnarsbúðar.
Safnaði Ólafur nú heimildum um okurskuldir Gunn-
ars Hall og byrjaði að ræða um sölu á vörum hans
og leigu á Austurstræti 10. Þá sneri Ólafur sér tii
þeirra banka, sem höfðu átt skipti við Gunnarsbúð,
en það voru Útvegsbankinn og Búnaðarbankinn, og leit-
aði eftir með hvaða greiðslukjörum væntanlegur verzi-
unaraðili í Gunnarsbúð gæti fengið að halda vöruforð-
anum.. Við fyrstu rannsókn Ölafs kom í ljós, að skuld-
irnar voru miklu hærri en eignir. Skuldirnar voru 14
milljónir. Vöruforðinn 9,4 milljónir. Einkabókasafn
Gunnasr iy2 milljón. Enn bættust við skuldir Liiju,
3 milljónir, en það var nærfatagerð, sem frú Hail áttí
en var undir stjórn manns hennar og raunverulega
sameign þeirra hjóna, eins og Gunnarsbúð.
*
Það er eftirtektarvert, að mjög þekkt málfærsiu-
firma Einar Guðmundsson og Guðlaugur Þorláksson
höfðu árum saman verið lögráðunautar Gunnars Hall
og komu síðar við sögu, en þegar fyrirtæki Gunnars lá
mest á, hverfa þeir um stund í skuggann, en Óiafur
Þorgrímsson kemur í staðinn og á herðar hans er
lögð sú mikla byrði, að semja við alla okrarana um
milljónaskuldirnar. Það er því líkast, að dular-
fullur og lítt útreiknanlegur andi komi til sögunnar
og sendi ólaf Þorgrímsson, fullan af áhuga fyrir að
friður og samkomulag náist við aðalfjáraflamenn-
ina, svo að Gunnarsbúð komist, ef svo má segja, ekki
undir manna hendur. I réttarskjölunum er komizt svo
að orði, að það hafi verið tilviljun ein, að Ólafur Þor-
grímsson kom inn í hringiðu þá, sem myndaðist utan
um Gunnarsbúð, en stundum virðist tilviljunin vera
háð kænni fésýsluumhyggju.
Gunnar Hall játaði, að hann hefði árum saman farið
bak við meðstjórnendur sína og endurskoðanda með
okurlánin. Ekki sagðist hann hafa haft neitt bók-
hald um svörtu viðskiptin, heldur lagt þar allt á minn-
ið. Varð hann þess áþreifanlega var, að f járaflamenn-
imir óskuðu sízt af öllu eftir nákvæmu bókhaldi um
þessi viðskipti. Gunnar kennir gengisbreytingunni um
peningaleysi sitt og bátagjaldeyrisskiplaginu. Hann