Ófeigur - 15.05.1956, Page 43

Ófeigur - 15.05.1956, Page 43
ÖFEIGUR 41 í 3 miljóna kr. skuld. Það varð nú meginatriði í vöm Gunnars og velvildarmanna hans, að láta búðina sökkva, enda varð henni ekki við bjargað, en freista að láta Lillu rétta við og verða atvinnufyrirtæki Hall- hjónanna. Ólafur Þorgrímsson þóttist nú allvel settur með þessu björgunarmál. Hann vonaði, að allir eða nálega allir lánardrottnar Gunnars væru komnir fram með kröfur sínar, þar sem liðnir voru þrír mánuðir síðan almenn- ingi varð ljóst, hversu hag Gunnarsbúðar var komið. Fjáraflamennirnir gáfu sakadómara skýrslur hver af öðrum, en mál þeirra eru svo hliðstæð, að ekki þýðir að rekja sögu hvers einstaks, nema þeirra, sem voru að einhverju leyti frábrugðin fjöldanum. Jón Hregg- viðsson var svo sem vænta mátti í fremstu röð. Þver- neitaði hann að hafa lánað með ólöglegum vöxtum, en aðrar heimildir bentu til að honum hafi þótt 75% viðhlítandi vaxtahæð. Nokkuð bar á því, að starfs- bræðrum Jóns þótti nóg um þá viðurkenningu, sem Jón hafði fengið bæði fyrir bókmenntir og lagakunn- áttu. Er lesendum Ófeígs áður kunn vísa sú, er Jón orti um mannlífið eftir að hann var orðinn frægur maður í sambandi við fjáraflaplön sín. Erindi Jóns var sem hér segir: ,,Ó, hve sælt er að dreyma, dreyma um það sem er bjart. Þó er hitt sælla að gleyma, gleyma því, sem er svart.“ Síðasti keisari Rússa orti frægt erindi áður en bolsi- vikar fluttu hann úr hásætinu. „Heldur snemma hjartað fraus. Hrekst ég einn á bárum. Sef og vaki sólarlaus, sviftur gleði og tárum.“ Harmur lífsins sækir að öllum, bæði í höllum kon- unga og húsum fjáraflamanna í Reykjavík. Eitt af stórskáldunum þýddi keisaravísuna á íslenzku. Jón Hreggviðsson keppir ekki við þjóðhöfðingja og þjóð- skáld, en hann túlkar eins og keisarinn löngun dauð-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.