Ófeigur - 15.05.1956, Síða 54

Ófeigur - 15.05.1956, Síða 54
52 ÖFEIGUR að setja samkomulag um Gunnarsbúð á löggiltan skjala. pappír, þegar þráðurinn slitnaði um stund, því að all- margir af fésterkustu kaupmönnum bæjarins vildu halda áfram fyrri viðleitni að bola samvinnufélögun- um út úr hinum söguhelgu átthögum einkaframtaksins í miðri Reykjavík. * En heima í Búnaðarbankanum var áhugi Hermanns sýnilega mjög lítill. Málið er rætt óhæfilega seint á bankaráðsfundi. Hermann tekur þar ekki til máls og hefur engin góð ráð við hendina. Bankastjórinn verður að gera tillöguna um að hann reyni að 'semja. Honum er heimilt að nota til afskrifta á þessum eina viðskiptavini 400—600 þús. kr. Allt erfiðið hvílir á bankastjóranum, en bankaráðið gerir ekki annað en að vísa öllum vanda af höndum sér. Það er því líkast að Hermann hafi tapað kynnum og áhuga fyrir hinu góða málefni Búnaðarbankans, því að heill mánuður leið frá samtali hans við Vilhjálm Þór þar sem Hermann læzt hafa áhuga fyrir SÍS og Gunnarsbúð og til þeirr- ar stundar, er hann kom á fund í bankanum, sem var í hættu um mikið tap. # Eftir að bjargráð kaupmanna höfðu runnið út í sandinn, hefir Guttormur Erlendsson forgöngu í mál- inu í nokkra klukkutíma. En á þessu stutta tímabili er Hermann búinn að hringja til þessa nýja björgunar- manns og er þá orðinn, í fyrsta sinn eftir málsskjöl- unum, mjög uggandi um hag Búnaðarbankans og lætur koma í Ijós, að bæði bankastjóri og bankaráð hafi stór- ar áhyggjur út af hugsanlegu tapi á skiptum við Gunn- ar Hall. Þegar Hermann byrjar hið lítið undirbúna samtal við Guttorm, viðurkennir formaðurinn að hann hafi með líkum hætti fylgzt með glímu Ólafs Þor- grímssonar við fjáraflamennina, er sýnileg hin leynda þrá Hermanns til að bjarga Gunnarsbúð, en gleymni hans á hagsmunum þess aðila sem borgar honum 80 þús. kr. fyrir skemmtikraftaverk, er áberandi. * En í þessum átökum hafði glögglega komið í ljós, að minni Hermanns er svo ótryggt orðið, að þeirra hluta vegna, auk annarra vantana, er óhugsanlegt, að hann geti veitt forstöðu nýrri ríkisstjóm. Að fáum

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.