Ófeigur - 15.05.1956, Side 62
©0
ÓFEIGUR
slíkan unglingahóp er kastað eftirlitslaust, spilltum og
slarkvönum ungmennum, bæði konum og körlum.
Engan mun imdra, þótt lítið verði úr þroskandi námi
í sumum þessum stofnunum, hversu mikið sem ein-
stakir kennarar leggja sig fram. Nemendumir koma
þreyttir og leiðir úr barnaskólum, eru ósamstæðir um
aldur og þroska, meginhluti námsins landsprófsmolar
og vinnubrögðin bundin af löggjafans hálfu við ítroðn-
ing, en ekki andlegan þroska.
- *
Ungmennaskólarnir eru yfirleitt allt of stórir. I hér-
aðsskólunum ættu aldrei að vera fleiri en 60 nemendur
og enginn yngri en 16 ára. Hver skóli verður að hafa
sitt inntökpupróf og skýlausan rétt til að víkja úr skóla
siðspilltum og óþægum nemendum. Ef nemandi brýtur
siðareglur í einum skóla, ætti hann ekki að eiga innan-
gengt í annan skóla á sama ári. Námið þarf að miðast
við íslenzkt atvinnu- og menningarlíf. Leggja mikla
áherzlu á hreinlæti, kurteisi og manndóm í umgengnis-
venjum. f borðstofu þarf að vera svo rúmt, að vel fari
um alla við borðhaldið. Ekki má vera minna en einn
kennari með 20 nemendum í borðsal heimavistar og beri
hann fulla ábyrgð á borðstofumenningu sinnar deildar.
Takmarkið í heimavistarskólum á að vera að gera
nmendur auk andlegrar vakningar, hæfa til fágaðrar
framkomu á eigin heimili og hjá öðru fólki.
*
Nú er svo ástatt, að mikill hluti myndarlegra æsku-
manna með allháum prófum úr skólum landsins eru
mjög ókunnugir efni og stíl biblíunnar, fornbókmennt-
anna og bókmenntum frá 17. öld til yfirstandandi tíma.
Hið lélega námsefni skólanna hefir eytt tíma æskunn-
ar frá því sem mestu skipti. Nú þarf að ryðja úr barna-,
ungmenna- og menntaskólum miklu af hinu dauða og
ómerkilega námsefni, en setja í stað þess samlestur og
samtöl í skólum landsins um það bezta og fullkomnasta,
sem til er í áðurnefndum bókmenntum. Með því að
velja úr biblíunni og hinum sígildu bókmenntum það
sem er í einu fegurst og auðlært fyrir hvert aldurs-
og þroskaskeið, er unnt að bjarga hinni þjóðlegu mennt-
un, málsmekknum, brageyranu og hinni hærri greind
Islendinga.