Ófeigur - 15.05.1956, Page 66

Ófeigur - 15.05.1956, Page 66
64 ÓFEIGUR á leigu, en það munu fáir aðrir en hann taka þá áhættu með skólastjóm. Alþingi tókst með litlu pennastriki að leggja blómlegasta skólaheimili landsins í rústir um stund. Það sem Mbl.-menn vildu gera en hættu við, tókst bolsivikum. Samt mun gifta Laugarvatns enn verða sigursæl, og sjást þess nú þegar nokkur merki. # Sjálfsagt álíta flestir, að litlu skipti hversu háttað sé vinnubrögðum í borðstofum heimavistarskólanna. Sumstaðar verður að tvísetja og búa í bæði skiptin við þröngbýli. Þar fær æskan slæman undirbúning fyrir góða heimilismyndun. Á Laugarvatni búa tveir 100 manna skólar við of þrönga 100 manna borðstofu. En í menntaskólahúsinu er hálfgerður borðsalur fyrir þann skóla. Um leið og hann er fullgerður, er vandi beggja skólanna leystur um þessa hlið uppeldismál- anna. Auk þess gæti menntaskólinn í sínu húsi þilj- að af með glervegg í hinum stóra sal, prýðilega setu- stofu, svo að þar væri skynsamlega keppt við hin góðu húsakynni í Bifröst. Björn Jakobsson lætur nú af stjórn íþróttaskólans á Laugarvatni fyrir aldurs sakir, eftir aldafjórðungs landnámsstarf. Fjórir lærisveinar hans, allt efnilegir menn, sækja um starfið. Skólinn er nú að fá stóraukin húsakynni og tvo prýðilega leikvelli. Getur hann þá stækkað svo, að þar verði hægt að æfa og iðka undir beztu kringumstæðum allar þær íþróttir sem Islend- ingar leggja stund á. A. m. k. þrír af hinum vösku umsækjendum þyrftu að ílengjast við skóla Björns og halda áfram landnámi hans, undir þeim kringum- stæðum sem nútíminn býður. * Fyrir mörgum árum, þegar Kristján Karlsson, nú- verandi skóiastjóri á Hólum, var ráðunautur bænda á Suðurlandi, benti hann í viðtali við aðra áhugamenn á nýtt úrræði; að hafa á Suðurlandi sérstakt fyrir- komulag á búnaðarkennslu, þar sem tekið væri tillit til lands og atvinnuhátta. Skyldi þá hafa bóklegt og verklegt búnaðamámskeið frá haustnóttum til jóla, og annað í beinu framhaldi að vori til, fram að slætti. ■Sunnlendingar hafa með nokkrum hætti farið þessa Frh. á bls. 68

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.