Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2015, Page 2

Skessuhorn - 03.06.2015, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ Leiðrétt um sjóbjörgun SNÆFELLSNES: Stað- reyndarvilla reyndist vera í frétt sem birtist í Skessu- horni í síðustu viku þar sem fjallað var um mann- björg þegar lítill bátur sökk á Breiðafirði. Í fréttinni var talað um að liðsmenn björgunarsveitarinnar Lífs- bjargar hafi komið á vett- vang og náð skipverjanum úr sjónum, heilum á húfi, en köldum. Þetta er ekki rétt því það var Ólafur Bjarna- son SH-137 sem kom fyrst- ur á vettvang og náðu skip- verjar á Ólafi manninum úr sjónum. Þetta leiðréttist hér með og beðist afsökunar á rangfærslunni. -af Dóp og bús undir stýri VESTURLAND: Tals- verður erill var hjá lögregl- unni á Vesturlandi í vik- unni sem leið. Alvarleg slys urðu á vegum í umdæm- inu og banaslys í tveim- ur þeirra, eins og greint er frá í öðrum fréttum hér í blaðinu. Í fyrrinótt stöðv- aði lögregla för manns sem átti leið í gegnum umdæmið og reyndist sá vera með 100 grömm af kannabisefnum í fórum sínum. Einn var tek- inn ölvaður undir stýri og annar undir áhrifum fíkni- efna. -mm Skólastjórar á förum BORGARNES: Bæði skóla- stjóri og aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Borgarness hafa sagt upp störfum sín- um. Þetta kom fram á fundi Byggðarráðs Borgarbyggð- ar síðastliðinn fimmtudag. Í fundargerð kemur fram að Signý Óskarsdóttir hef- ur sagt upp starfi skólastjóra af persónulegum ástæðum. Þá hefur Hilmar Már Ara- son, sem gegnt hefur starfi aðstoðarskólastjóra um ára- bil, verið ráðinn skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar. Fyrir stjórnendum Borgar- byggðar liggur því að hefja ráðningarferil nýrra skóla- stjórnenda sem fyrst. Sam- kvæmt heimildum Skessu- horns verður fyrst auglýst eftir skólastjóra en aðstoð- arskólastjóri ráðinn eftir það. Á fundi byggðarráðs var fráfarandi stjórnend- um Grunnskóla Borgarness óskað velfarnaðar í framtíð- inni og þakkað þeirra störf. -mm Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag. Af því tilefni er skemmti- dagskrá af ýmsum toga víða í sjáv- arplássum á Vesturlandi um næstu helgi og hvetjum við fólk eindreg- ið til að gera sér glaðan dag og taka þátt í hátíðarhöldum. Austlægar áttir eru í kortunum næstu daga. Á fimmtudag verður fremur hæg austan- og norðaustan átt. Skýjað og súld eða rigning verður með köflum um sunnanvert landið en stöku skúrir norðan til. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á suðvesturlandi. Á föstu- dag spáir áframhaldandi hægri aust- lægri átt. Skýjað verður með köflum og yfirleitt þurrt, en stöku skúrir suð- vestanlands. Hiti 3 til 10 stig og áfram hlýjast á suðvesturlandi. Á laugardag spáir norðan- og norðaustan 5-13 m/s, hvassast við austurströndina. Það léttir til vestan til en skýjað verð- ur með köflum og lítilsháttar væta austast. Hiti breytist lítið. Á sunnu- dag gengur í suðvestan 5-13 m/s síð- degis, víða verður bjartviðri og held- ur hlýnandi. Á mánudag er útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað og úrkomu- lítið vestanlands, en bjartviðri fyrir austan. Áfram hlýnandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Ertu byrjuð/aður á vorverkun- um?“ „Já, fyrir löngu“ svöruðu 27,97%. Flestir sögðust vera byrjaðir nýlega, eða 31,03%. „Byrja á morgun“ svör- uðu 4,21% og „Nei, ekki enn“ 22,22%. Þeir sem sögðust ekki sinna vorverk- um voru 14,56% þeirra 820 sem tóku þátt í könnuninni. Í þessari viku er spurt: „Ætlar þú á bæjarhátíð í sumar?“ Sjómenn eru Vestlendingar vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Í morgunverð er þetta helst Alvarlegt umferðarslys varð á þjóð- veginum við Hellissand á tíunda tímanum síðastliðinn fimmtudags- morgun. Jeppi með sex erlendum ferðamönnum valt og fór nokkr- ar veltur áður en hann staðnæmd- ist utan vegar. Sjúkrabílar úr Ólafs- vík og Grundarfirði voru kallaðir til sem og tækjabíll og mannskapur frá slökkviliðinu. Beita þurfti klippum á bílflakið til að ná fólkinu út. Að sögn lögreglu slösuðust tveir alvar- lega en fjórir minna. Voru þeir sem mest slösuðust fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús auk maka annars þeirra. Kínversk- ur karlmaður á fertugsaldri var úr- skurðaður látinnn á gjörgæsludeild Landspítalans á föstudaginn. Kona slasaðist einnig lífshættulega. mm/ Ljósm. af. Björgunarbátnum Björgu var siglt til heimahafnar í Rifi í síðustu viku Landgræðsla ríkisins vakti á mánu- daginn athygli á þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er nú með gróður í úthaga eins og blasir við um allt land eftir óvenjulega kalt vor. „Ef ekki hlýnar fljótlega gæti stefnt í mikla ofbeit víða um land, líkt og 1979. Þá var fé að vísu um 900 þús- und en er nú um 500 þúsund. Beit- artími er nú styttri og beitarstjór- nun í mörgu betri. Það hafa hins vegar byggst upp mörg stór bú sem ekki ráða við að hafa féð heima þann tíma sem þarf til að brúa bil þar til úthagi heima fyrir, fjalllendi og afréttir eru almennilega beitar- hæfir,“ segir í færslu á Facebook síðu Landgræðslunnar. Þá segir að enn sé víða verið að beita illa farið land, sem er nú enn viðkvæmara en ella. „Afleið- ingar ofbeitarinnar 1979, og ár- anna þar á eftir, var vistfræðilegt hrun margra afrétta. Það er mikið í húfi nú. Sama gildir um hrossa- haga. Menn fylgja nokkuð tímatal- inu með að fara með hross í haga, horfa ekki nóg á sprettu. Ofbeitar- hætta er mikil. Landgræðslumenn, bændur og í raun allir landsmenn þurfa að fylgjast vel með ástandi lands í ár og stuðla að aukinni gróð- urvernd,“ segja starfsmenn Land- græðslunnar. mm/ Ljósm. af. Erlendi ferðamaðurinn sem slas- aðist alvarlega þegar bifhjól sem hann ók fór útaf ósléttum malar- vegi í Hvítársíðu á annan Hvíta- sunnudag lést á gjörgæsludeild á mánudaginn. Var hann indversk- ur ferðamaður, karlmaður á fer- tugsaldri. Fram kom í tilkynn- ingu frá lögreglunni á Vesturlandi um miðja síðustu viku að maður- inn hafi verið endurlífgaður á vett- vangi áður en þyrla sótti hann. Unnusta mannsins, sem var far- þegi á hjólinu, slapp lítið meidd. Meðfylgjandi mynd tók Lögreglan á Vesturlandi á vettvangi slyssins. Á henni sjást glöggt þvottabrettin á veginum en slíkt getur verið afar varhugavert bæði fyrir umferð bíla og bifhjóla, ekki síst þegar öku- menn eru óvanir aðstæðum sem þessum. mm Björgin komin til heimahafnar að nýju Landgræðslan lýsir áhyggjum vegna gróðurleysis Banaslys við Hellissand Lést í kjölfar bifhjólaslyss í Hvítársíðu eftir að hafa verið í slipp í Njarð- vík frá því í febrúar. Meðal annars voru vélar teknar upp ásamt því að minni viðgerðir fóru fram svo og reglubundið viðhald. Þá var Björg- in einnig máluð. Á meðan á þessu viðhaldi stóð leysti björgunarbát- urinn Jón Oddgeir Björgina af og kom það sér vel því hann er búin að þurfa að sinna nokkrum útköllum. þa

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.