Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Sauðafellshlaup
um miðjan
mánuð
DALIR: Sauðafellshlaupið í
Dölum verður laugardaginn
13. júní klukkan 13. Ræst
verður til hlaups við brúsa-
pallinn á Erpsstöðum og þar
endar hlaupið einnig. Leið-
in mun liggja eftir þjóðvegi
60 að Fellsenda og upp veg
585. Á Fellsendabrekkunni
er stefnan tekin uppá Sauða-
fellið. Það verður svo hlaup-
ið þvert og niður að bæn-
um Sauðafelli. Síðan verð-
ur komið að þjóðvegi 60 á
ný að brúsapallinum á Erps-
stöðum. Hlaupaleiðin er alls
um 12 kílómetrar.
-mþh
Hyggjast kort-
leggja hávaða
HVALFJ: Á síðasta sveit-
arstjórnarfundi Hvalfjarð-
arsveitar lagði Björgvin
Helgason oddviti fram til-
lögu um að að fela sveitar-
stjóra, formanni umhverfis-,
skipulags- og náttúruvernd-
arnefndar og skipulags- og
umhverfisfulltrúa að hefja
viðræður við Faxaflóahafnir
um hljóðmælingar og kort-
lagningu hávaða frá iðnaðar-
svæðinu við Grundartanga.
Þetta á að gera í samræmi við
reglugerð um kortlagningu
hávaða og fyrirliggjandi að-
gerðaráætlanir. Þessi tillaga
var samþykkt samhjóða.
-mþh
Hollvinir Skalla-
grímsgarðs
BORGARNES: Á fundi
Hollvinasamtaka Borgar-
ness nýverið kom upp sú
hugmynd að stofna undir-
deild um Skallagrímsgarð-
inn í Borgarnesi. Af því til-
efni verður haldinn stofn-
fundur félagsskaparins í
Skátaheimilinu við Skalla-
grímsgarð miðvikudaginn 3.
júní klukkan 20. „Allir, sem
bera taugar til Skallagríms-
garðsins, eru hvattir til þess
að koma og taka þátt í félags-
skapnum. Sérstaklega eru
boðnir velkomnir íbúar utan
Borgarness, því garðurinn er
eign okkar allra,“ segir í til-
kynningu.
–mm
Fjölmörgum
verkföllum
afstýrt
LANDIÐ: Samtök atvinnu-
lífsins, Flóabandalagið, VR,
Landsamband íslenskra
verslunarmanna, Stéttar-
félag Vesturlands og Starfs-
greinasambandið skrifuðu
á föstudaginn undir nýjan
kjarasamning. Um leið var
afstýrt verkföllum gríðarlega
margra og fjölmennra starfs-
stétta sem áttu að hefjast í
lok maí og nú í byrjun júní.
Atkvæðagreiðslur í félögun-
um standa nú yfir. Enn er þó
ósamið við fjölmargar starfs-
greinar hér á landi, bæði sem
starfa hjá hinu opinbera sem
og í einkageiranum. -mm
Fasteignamat
hækkar um 2.8%
VESTURLAND: Heildar-
mat fasteigna á Íslandi hækk-
ar um 5,8% frá yfirstandandi
ári og verður 5.755 milljarðar
króna. Þetta er samkvæmt nýju
fasteignamati fyrir árið 2016
sem Þjóðskrá Íslands birti í gær.
Fasteignamatið hækkar á 93,4%
eigna en lækkar á 6,6% eigna frá
fyrra ári. Mat íbúðareigna, sem
voru 127.502 talsins á öllu land-
inu, hækkar samtals um 7,5% frá
árinu 2015 og verður samanlagt
fasteignamat þeirra 3.844 millj-
arðar króna í fasteignamatinu
2016. Eins og undanfarin fjög-
ur ár hækkar matsverð íbúða í
fjölbýli meira á landinu öllu en
mat íbúða í sérbýli. Fasteigna-
mat atvinnuhúsnæðis í landinu
hækkar um 2,3%. Á höfuðborg-
arsvæðinu hækkar matið um
2,4% en um 2,2% á landsbyggð-
inni. Frístundahúsnæði hækkar
um 2,7%. Heildarfasteignamat
á höfuðborgarsvæðinu hækkar
um 6,7%. Matið á Suðurnesjum
hækkar um 4,2%, hér á Vestur-
landi hækkar það um 2,8%, 1,1%
á Vestfjörðum, 3,8% á Norð-
urlandi vestra, 5,2% á Norður-
landi eystra, 2,8% á Austurlandi
og 2,6% á Suðurlandi.
–mþh
Nýr yfirlæknir á
lyflækningadeild
HVE
AKRANES: Þann 1. júní sl. var
Guðni Arnar Guðnason sérfræð-
ingur í lyflækningum og inn-
kirtlasjúkdómum skipaður yfir-
læknir lyflækningadeildar Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi. Guðni Arnar var annar
tveggja umsækjenda um stöðuna.
Þorvaldur Magnússon sérfræð-
ingur í lyflækningum og nýrna-
sjúkdómum sótti einnig um.
Guðni Arnar hefur starfað síð-
astliðin fimm ár við HVE. Hann
hefur gegnt stöðu yfirlæknis frá
því Sigríður Valtýsdóttir sagði
upp störfum í lok ágúst 2014 eftir
6 ára starf. -mþh
Orka náttúrunnar opn-
ar í næstu viku nýja hrað-
hleðslustöð fyrir rafbíla
við Dalbraut 1 á Akranesi í
samstarfi við Akraneskaup-
stað og Krónuna. Þetta er
tíunda hraðhleðslustöðin
sem fyrirtækið opnar á Suð-
ur- og Vesturlandi en fyr-
ir er m.a. ein stöð í Borg-
arnesi. Undanfarin miss-
eri hefur bílum sem knún-
ir eru rafmagni fjölgað mik-
ið. Um áramótin var fjöldi
rafbíla kominn yfir 300 og
samkvæmt upplýsingum frá
umboðum hafa tugir bæst
við á fyrstu mánuðum þessa
árs.
„Það er frábært að fá þessa
stöð hér í bæinn. Rafmagnsbíl-
um fjölgar hratt og það er mik-
ilvægt að íbúum hér á Akra-
nesi standi til boða að hlaða
bílana sína í hraðhleðslu þeg-
ar þeir þurfa á að halda. Ég lít
svo á að þetta séu í raun nauð-
synlegir innviðir fyrir skyn-
samlegri samgöngumáta og
skemmtilegt að fyrirtæki sem
að hluta er í okkar eigu standi
fyrir þessu fína framtaki,“ seg-
ir Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri á Akranesi. mm
Síðastliðinn mánudag voru af-
hentir styrkir sem fjármagnaðir
voru með góðri afkomu Þorrablóts
Skagamanna í janúar síðastliðn-
um. Það eru meðlimir ´71 árgangs-
ins á Akranesi, sem kalla sig Club
71, sem halda blótið á hverju ári og
eru það sex íþróttafélög á Akranesi
auk Björgunarfélags Akraness sem
njóta góðs af ágóðanum. Að þessu
sinni nam heildarverðmæti styrkj-
anna þremur milljónum króna og
skiptast þeir á milli félaga í hlut-
falli við unnar stundir á Þorrablóti
Skagamanna og við undirbúning
þess. Sævar Freyr Þráinsson hélt
stutta tölu fyrir hönd Club 71 þar
sem hann gerði grein fyrir afkomu
þorrablótsins og hvernig úthlutun
styrkja færi fram. Einnig kom fram
í máli hans að félagsskapnum væri
sönn ánægja að geta gefið af sér
til samfélagsins og látið gott af sér
leiða.
Þeir sem veittu styrkjunum við-
töku mæltu síðan nokkur orð þar
sem þeir þökkuðu fyrir og lýstu
ánægju sinni með framtakið. Að
endingu fengu viðstaddir sér kaffi
og spjölluðu um daginn og veginn,
en úthlutunin fór fram í húsnæði
Íslandsbanka við Dalbraut.
kgk
Nýja hraðhleðslustöðin er á bílastæðinu við verslana-
miðstöðina Dalbraut 1 á Akranesi.
Hraðhleðslustöð opnuð á Akranesi
Úthlutuðu styrkjum af hagnaði
Þorrablóts Skagamanna
Club 71 ásamt þeim sem veittu styrkjunum viðtöku.