Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Borgarbyggð, Orkuveita Reykjavíkur-veitur ohf, Míla ehf og Rarik ohf, óska eftir tilboðum í verkið:
Kveldúlfsgata Borgarnesi
Endurnýjun lagna og gangstétta
Verkið er fólgið í lagnavinnu og gerð gangstétta. Fyrir Borgarbyggð skal endurnýja gangstéttar. Fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur-veitur ohf skal leggja frárennslislagnir, vatnslagnir og hitaveitu. Fyrir Mílu ehf
skal leggja fjarskiptalagnir. Fyrir Rarik ohf skal sjá um jarðvinnu í sameiginlegum lagnaskurðum.
Helstu magntölur eru:
Lengd lagnaskurða 1750 m
Niðurföll, endurnýjuð eða lokað 62 stk
Kaldavatnslagnir, plast ø32-225 mm 1.120 m
Endurnýjun lagna hitaveitu, stál og pex 2750 m
Fjarlægja eldri hitaveitulagnir 1160 m
Heimæðar og inntök, kalt og heitt 65 stk
Fjarskiptalagnir 3290 m
Malbikun 3000m²
Steyptur kantsteinn 1000 m
Skiladagur verksins er 15. október 2015.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt og án endurgjalds á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,
310 Borgarnesi frá og með 4. júní n.k. Hægt er að óska eftir gögnum á netfangið
gudrunh@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.
Tilboð verða opnuð á sama stað, 19. júní 2015, kl. 11:00.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Sjómannadagskaffi
á Akranesi
Slysavarnakonur á Akranesi halda upp
á sjómannadaginn með glæsilegri
kaffisölu í Jónsbúð, Akursbraut 13,
sunnudaginn 7. júní kl. 13.30 til 16.30
Flottar veitingar
Verið velkomin og styrkið gott málefni.
Slysavarnadeildin Líf
Tekið er við greiðslukortum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Handverkssýning
félagsstarfs aldraða og öryrkja,
opnar á Bókasafni Akraness
föstudaginn 5. júní kl. 15-18
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200
bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Allir velkomnir,
heitt kaffi á könnunni
Á sama tíma verður
einnig opnuð sýningin
„Vér heilsum glaðar
framtíðinni“ sýning í
tilefni af 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
(HVE) leitar nú að nýju húsnæði
undir bækistöð fyrir sjúkraflutn-
inga á Akranesi og vegna starfsemi
sjúkrahússins þar. Verið er að skoða
möguleika á að HVE geti fengið
keypt núverandi húsnæði Björg-
unarfélags Akraness við Kalmans-
Vilja skoða húsnæðiskaup fyrir sjúkraflutninga á Akranesi
Hin svokallaða „gula skemma“ við höfnina á Akranesi. Húsinu hefur lítt verið
haldið við mörg undanfarin ár og þarf meðal annars að skipta um klæðningu á
því.
velli undir þessa starfsemi. Með því
kæmust sjúkraflutningar og slökkvi-
lið undir eitt og sama þak. Hug-
myndir eru um að Björgunarfélag-
ið flytji þá bækistöð sína í svokall-
aða „gulu skemmu“ við Faxabraut.
Hún var áður í eigu Sementsverk-
smiðjunnar en er nú í eignasafni
Akranesbæjar.
Vilja horfa til framtíðar
Gísli Björnsson, yfirmaður sjúkra-
flutninga HVE, og Guðjón Brjáns-
son forstjóri skrifuðu núverið bréf
til bæjarstjórans á Akranesi þar
sem þeir reifa hugmyndir um nýj-
an húsakost fyrir sjúkraflutningana.
Þeir skrifa að sé horft til framtíð-
ar á Akranesi og í nágrenni bæði
hvað varðar þróun íbúafjölda og at-
vinnuuppbyggingar, þá sé ljóst að sá
tími komi að stofnað verði atvinnu-
slökkvilið á Akranesi. Það yrði þá
starfrækt í samvinnu við sjúkra-
flutninga enda sé slíkt fyrirkomulag
víðast þar sem atvinnuslökkvilið er
til staðar.
Talið er hentugast að sjúkraflutn-
ingar á Akranesi og til og frá bænum
hafi bækistöð á svæðinu við Esju-
braut frá bensínstöð Olís að Inn-
nesvegi. Þetta sé miðsvæðis og þar
séu greiðar leiðir í allar áttir, bæði
út í sjálft bæjarfélagið en einnig út
úr bænum. Sjúkraflutningamenn á
bakvöktum eigi einnig greiða leið
í útköll ef sjúkraflutningarnir hafi
bækistöð sína á þessu svæði. Fyr-
ir um það bil þremur árum var at-
hugað hvort nokkuð húsnæði væri í
boði á þessu svæði sem gæti hent-
að. Það fannst ekki á þeim tíma.
Sjúkraflutningar HVE hafa um
marga ára skeið haldið til í leigu-
húsnæði í eigu N1 við Þjóðbraut í
næsta nágrenni við lögreglustöð-
ina á Akranesi. Leigusamningurinn
þar rennur út í september í haust.
Framtíðarhúsnæðismál sjúkraflutn-
inganna eru þannig í óvissu.
Hafa augastað
á Kalmansvöllum
Forráðamenn HVE telja það skyn-
samlegan kost að nú verði athug-
að til fullnustu hvort stofnun-
in geti fengið húsnæði Björgunar-
félags Akraness við Kalmansvelli
2 á Akranesi til umráða eða eign-
ar. Þar er Slökkvilið Akraness og
Hvalfjarðarsveitar til húsa með sína
bækistöð. Með þessu yrðu bæði
sjúkraflutningar og slökkvilið kom-
ið undir eitt þak á Akranesi. „Stað-
setning er hentug og engar umtals-
verðar breytingar þarf að gera á
húsnæðinu svo það henti starfsemi
sjúkraflutninga ágætlega,“ skrifa
þeir í bréfi sínu.
Viðræður um hugsanleg kaup
HVE á húsnæði Björgunarfélagsins
hafa þegar átt sér stað. Í þeim hef-
ur komið fram vilji til að þetta verði
skoðað frekar. Eitt af því sem málið
snýst þá um er að Björgunarfélag-
inu verið fundið nýtt húsnæði fyr-
ir starfsemi sína. Þar beinast sjónir
manna að „gulu skemmunni“ svo-
kölluðu sem stendur við Faxabraut
á hafnarsvæðinu á Akranesi. Bent er
á að þetta hús gæti hentað vel fyr-
ir starfsemi Björgunarfélagsins ekki
síst þar sem það standi við höfn-
ina. Það gæti því ekki síst orðið góð
bækistöð fyrir sjóbjörgun sem er
snar þáttur í starfsemi Björgunar-
félagsins.
Bréf þeirra Gísla og Guðjóns var
lagt fram á fundi bæjarráðs Akra-
ness 21. maí síðastliðinn. Bæjar-
ráð þakkaði fyrir erindið og vísaði
málinu til skoðunar á skipulags- og
umhverfissviði. mþh
Núverandi húsnæði sjúkraflutninga HVE við Þjóðbraut á Akranesi.
Í athugun er að Björgunarfélag Akraness selji HVE hluta sinn af þessu húsi við
Kalmansvelli þar sem Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar er einnig til húsa.