Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
fyrsta sinni. Þá var reyndar ann-
ar skipstjóri en sömu stýrimenn
og nú. Þeir höfðu vistað alla sigl-
inguna í fyrra inn í siglingatölvu
skipsins og því var það leikur einn
fyrir þá að sigla inn núna. Fram
er mjög gott skip, vel búið, af-
skaplega lipurt og fínt að snúa því
í svona þröngri höfn eins og við
höfum hér í Stykkishólmi,“ segir
Hrannar.
Fram gerði nokkurra stunda
stopp í Stykkishólmi en hélt svo
áfram til Vestfjarða. Hrannar segir
að komum skemmtiferðaskipa til
Stykkishólms muni fjölga mikið í
sumar. „Það komu skip bæði 1. og
3. júní. Síðan mun skipið Ocean
Diamond koma tíu sinnum hingað
í sumar. Það má segja að skemmti-
ferðaskipakomum til Stykkishólms
sé að fjölga um þúsund prósent
milli ára,“ segir Hrannar Péturs-
son og hlær við.
Á að sigla næstu
þrjú sumur
„Við höfum tekið Ocean Dia-
mond á leigu yfir sumartímann
næstu þrjú árin. Þetta er algerlega
ný viðbót við ferðaþjónustu á Ís-
landi,“ segir Sigríður Eysteins-
dóttir, verkefnisstjóri hjá ferða-
skrifstofunni Iceland Pro Travels
í Reykjavík. Ocean Diamond mun
taka farþega um borð í Reykjavík
sem koma fljúgandi til landsins.
„Svo verður siglt þaðan og stopp-
að og farið í land í Stykkihólmi, á
Ísafirði, Akureyri, Flatey á Skjálf-
anda, Seyðisfirði og í Vestmanna-
eyjum. Þetta verða þannig tíu daga
ferðir þar sem við siglum á nótt-
unni og skoðum landið á daginn.
Við erum með söluskrifstofur víða
í Evrópu og umboðsaðila í Banda-
ríkjunum. Það hefur gengið mjög
vel að selja í þessar ferðir,“ segir
Sigríður.
Umhverfis Ísland
og til Grænlands
Ocean Diamond er í eigu félags
sem hefur sérhæft sig í siglingum
skemmtiferðaskipa á norðurslóð-
um og við Suðurskautslandi. Að
sögn Sigríðar tók Iceland Pro Tra-
vels við skipinu í maí. „Við fengum
það afhent í Hamborg í Þýskalandi
og seldum þaðan ferð með því frá
Oban í Skotlandi og til Seyðis-
fjarðar. Það byrjaði svo sigling-
arnar umhverfis landið 3. júní og
þær standa yfir til 6. ágúst. Þá ætl-
um við að breyta til og fara þrjár
ferðir til Grænlands. Ein þeirra
er til Suður-Grænlands og svo til
baka. Síðan verður siglt norður
með vesturströnd Grænlands þar
sem farþegar fljúga heim en aðr-
ir koma um borð í staðinn. Síð-
an verður siglt aftur til baka suð-
ur með ströndinni og til Íslands.
Við skilum skipinu svo af okkur
7. september en verður síðan með
það aftur sumrin 2016 og 2017,“
segir Sigríður Eysteinsdóttir.
mþh
Sigfús Magnússon og fjölskylda ætla
að opna ísbúð við höfnina í Stykkis-
hólmi í sumar. Hann er fyrrum tog-
arasjómaður sem fór í land í mars á
þessu ári. Sigfús starfar nú hjá Fiski-
stofu á Vesturlandi en hún hefur
starfsstöð sína í Stykkishólmi. Hann
flutti með eiginkonu sinni og þrem-
ur börnum í Stykkishólm árið 2012.
Starfar við Fiskistofu
„Ég var búinn að vera alls í 13 ár
á togaranum Helgu Maríu AK 16
þegar ég ákvað að hætta í vetur.
Helga María var upphaflega Har-
aldur Kristjánsson HF 2. Ég starf-
aði á skipinu þegar það var selt frá
Sjólaskipum til Haraldar Böðvars-
sonar hf. sem þá var á Akranesi. Ég
hélt svo áfram á skipinu eftir að það
var komið á Akranesi. Ég var í áhöfn
Helgu Maríu samfellt frá 1996 til
2004. Síðan réði ég mig aftur þar um
borð 2011 en hætti svo núna og fór í
land. Ég var kominn með um 20 ára
sjómannsferil. Byrjaði upphaflega á
bátum frá Hólmavík, en fór svo á
togarann Hólmadrang. Svo var ég á
Málmey SK áður en ég fór á Helgu
Maríu HF. Um borð í Helgu Maríu
kynntist ég mörgum góðum mönn-
um, meðal annars frá Akranesi. Nú í
vetur var svo auglýst eftir starfmanni
hjá Fiskistofu. Mig langaði að breyta
til og sótti um. Það voru margir um-
sækjendur um stöðuna en ég var svo
heppinn að vera ráðin þangað. Við
erum þrjú sem erum hér á starfsstöð
Fiskistofu í Stykkishólmi. Við förum
mest um Snæfellsnesið og vestur á
firði,“ segir Sigfús.
Veglegar veitingar
Í spjallinu við Sigfús kemur fram að
eiginkona hans Ragnheiður Harpa
Sveinsdóttir er úr Stykkishólmi. Því
hafi fjölskyldan flutt þangað fyr-
ir þremur árum. „Hún starfar sem
kennari við grunnskólann hér. Við
búum hér ásamt þremur börnum
okkar þeim, Kristínu Birnu 15 ára,
Írisi Önnu 7 ára og Magnúsi Inga 5
ára. Þórdís Hrönn dóttir mín er at-
vinnumanneskja í knattspyrnu úti
í Svíþjóð. Þar spilar hún með Alta
IF sem er í Stokkhólmi. Hugmynd-
in um að opna ísbúð í Stykkishólmi
kviknaði í vetur. Bærinn er skemmti-
legur og mér fannst þetta vanta í
flóruna. Hingað koma stöðugt fleiri
ferðamenn og hentar þetta okk-
ur ágætlega yfir sumartímann þeg-
ar ekki er skóli. Kristín Birna dóttir
okkar mun líka vinna þarna og sjálf-
sagt fleiri. Við erum í þessu saman og
höfum fest kaup á söluhúsi sem hef-
ur aldrei verið notað áður. Við hlið-
ina á okkur verður svo boðið upp á
fisk og franskar en það er ekki á okk-
ar vegum,“ segir Sigfús.
Það verður boðið upp á ýmislegt
góðgæti og hressingu í fögru um-
hverfi Stykkishólmshafnar. „Við
verðum með kúluís í vöffluformi,
heitar sósur, kaffi og heitt kakó með
rjóma sem fólk getur tekið með sér.
Síðan bjóðum við líka upp á belg-
ískar vöfflur. Við ætlum að opna 20.
júní og hafa opið fram á haust. Fastur
opnunrtími verður frá 11 á morgn-
ana til 20 á kvöldin. Þegar veður
leyfir og líf er í bænum verður opið
eitthvað lengur fram eftir kvöldi. “
segir Sigfús Magnússon.
mþh
Sjómannadagurinn
Sjómaður opnar ísbúð með
fjölskyldunni í Stykkishólmi
Búið er að hanna merki ísbúðarinnar
sem fær nafnið Ískofinn.
Sigfús Magnússon með Magnúsi Inga syni sínum við ísbúðina sem opnar á hafnar-
svæðinu í Stykkishólmi í sumar. Ljósm. sá.
Norska skemmtiferðaskipið Fram
kom til Stykkishólms á dögun-
um. Það er fyrsta koma slíks skips
til Stykkishólms í sumar. Hrannar
Pétursson hafnarvörður og hafn-
sögumaður í Stykkishólmi fór
um borð í Fram í Grundarfirði
og fylgdi skipinu inni til Stykkis-
hólms að bryggju þar.
„Þetta var yndisleg ferð. Norð-
mennirnir tóku mér með kost-
um og kynjum. Mér var boðið í
mat og fékk krabbakjöt. Þetta eru
ótrúlega flinkir sjómenn og allt til
fyrirmyndar. Þeir fóru létt með að
sigla inn til Stykkishólms. Skip-
ið kom hingað líka í fyrra og þá í
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Stykkishólm
Norska skemmtiferðaskipið Fram við bryggju í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Skemmtiferðaskip á vegum íslenskrar ferðaskrifstofu mun stunda hringsiglingar umhverfis Íslands í sumar með föstum við-
komum í Stykkishólmi. Skipið Ocean Diamond hefur verið leigt til slíkra ferða næstu þrjú sumur. Skipið er 124 metra langt og
8.282 brúttórúmlestir.
Hrannar Pétursson lóðs og hafnarvörður í Stykkishólmi fær í nógu að snúast við
að taka á móti skemmtiferðaskipum í sumar.
Norska skemmtiferðaskipið Fram fer frá Stykkishólmi og mætir flóabátnum Baldri
sem reyndar var norskur og sigldi við Noreg um árabil þar til í vetur.
Ljósm. sá.