Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
ekki hafa dugað. Miklu meira þyrfti
til því verksmiðjan væri ofan í
íbúðabyggð. Hann sagði loftmeng-
unina skerða lífsgæði og að ekki
væri mögulegt að opna glugga þeg-
ar fnykurinn væri sem verstur. Ekki
væri hægt að njóta útiveru, hengja
út þvott eða geyma bílinn sinn úti.
Ástandið væri svo slæmt að börnin
neituðu að fara út að leika.
Hörður gagnrýndi einnig bæjar-
yfirvöld og Heilbrigðiseftirlit Vest-
urlands harðlega. „Fólkið sem býr
þarna í nágrenninu býr við þá vissu
að bæjaryfirvöld og heilbrigðiseft-
irlit hafa alls ekki staðið með íbú-
unum í þessu máli. Til dæmis voru
reglur í starfsleyfi Laugafisks varð-
andi mengun rýmkaðar árið 2008.
Það stóð upphaflega að loftið frá
verksmiðjunni megi ekki valda íbú-
um óþægindum. Svo var bætt við
„eins og framast er unnt.“ Þetta var
þannig gert svolítið opið.“ Hann
sagði kvörtunum vegna Laugafisks
stungið undir stól og gaf heilbrigð-
iseftirlitinu falleinkunn. „Í fyrsta
lagi hvernig þeir standa að móttöku
kvartana. Hvað gera þeir við þær?
Þær fara ekkert áfram. Þeim er ekk-
ert fylgt eftir. Sýnt hefur verið fram
á í skýrslu VSÓ að ótal hlutir eru
ekki í lagi hjá Laugafisk. Þarna hef-
ur heilbrigðiseftirlitið hreinlega
fallið á prófinu.“ Þá benti hann
einnig á að honum þætti óeðlilegt
að bæjarfulltrúar á Akranesi sitji í
Heilbrigðisnefnd Vesturlands. Bæj-
arstjórnin sendi oft erindi til heil-
brigðisnefndar og þar sætu sömu
bæjarfulltrúar að taka við þeim.
Starfsemin fullreynd
„Starfsemi Laugafisks á neðri Skag-
anum er að okkar mati fullreynd.
Við höldum því fram að fiskþurrk-
un eigi ekki heima í íbúabyggð. Það
er flott að vera með matvælaiðnað
við slíka byggð en ekki fiskþurrk-
un. Hún er bara alltof mengandi.
Laugafiskur hefur nú fengið 12 ár
í tilraunastarfsemi. Það hefur ekki
verið góður árangur af henni. Við
skorum á HB Granda að finna aðra
staðsetningu fyrir fiskþurrkun sína
í góðri samvinnu og sátt við bæjar-
yfirvöld og bæjarbúa. Við elskum
bæinn okkar og við viljum atvinnu-
uppbyggingu. En við viljum hafa
hana heilnæma og mengunarlausa.
Við þolum ekki vonda lykt,“ sagði
Hörður að endingu.
Áður en Hörður lauk máli sínu
lagði hann fram spurningar til
VSÓ, HB Granda og bæjaryfir-
valda. Eftir erindi þessara fjögurra
aðila var orðið gefið laust og opið
fyrir spurningar úr salnum. Fjöl-
margir tóku til máls og spurðu
meðal annars um lyktarmælinguna,
kvartanir þar sem fiskþurrkun er
annars staðar, hvort skoðað hefði
verið með sjónmengun, hver stefna
HB Granda væri varðandi sam-
félagslega ábyrgð og um ferðaþjón-
ustu.
grþ/mþh
Svona á verksmiðjan að líta út ef af stækkuninni verður.