Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Sjómannadagurinn
„Við erum svona þrjá til fjóra daga
í túrnum. Þetta breyttist þegar þeir
hjá G.Run fóru að vinna þorskinn
líka sjálfir en áður skiptu þeir hon-
um út fyrir ýsu og karfa. Þá fengu
þeir meira til sín af fiski. Stórþorsk-
urinn fer að vísu á markað en við
reynum að sneiða hjá honum og
förum þá út á Hala eða eitthvað
annað þegar stórþorskurinn sæk-
ir upp á grunnslóð á vorin,“ segir
Heiðar Þór Bjarnason yfirvélstjóri á
Hring SH frá Grundarfirði. Heiðar
er þrjátíu og sex ára og hefur stund-
að sjóinn frá unglingsárum. „Hann
segir vélstjórana tvo um borð en
áður hefðu þeir skipst á að vera um
borð en nú séu sé þeir vélaverð-
ir annan túrinn eða taki frítúr enda
hefði stoppið áður fyrr aðeins ver-
ið einn sólarhringur milli túra en nú
séu þetta nokkrir dagar. Heiðar hef-
ur verið vélstjóri um borð í Hring í
sjö ár og hann segir að mestu hafa
verið sömu áhöfnina þar allan þann
tíma.
Fór á frystitogara og tók
vélsmiðjunámið í fríum
Sjómennskan hefur alla tíð verið
aðalatvinna Heiðars og hann seg-
ist eiginlega aldrei hafa unnið við
neitt annað. „Ég var í bæjarvinn-
unni þegar ég var 16 ára og það er
eina landvinnan. Ég fór í grunn-
deild málmiðna í Fjölbrautaskólan-
um á Akranesi en ég á ættir þang-
að því amma mín, Helga Árnadótt-
ir, var þaðan. Ég var á heimavistinni
í fjölbraut þann vetur en svo lá leið-
in í Vélskólann og svo beint á sjóinn
þegar ég var búinn með hann. Áður
en ég fór á Hring var ég á frystitog-
aranum Hrafni frá Grindavík í þrjú
ár og tók vélsmiðjunámið í frítúr-
um til að fá full vélstjóraréttindi.
Þetta voru mánaðartúrar og síðan
mánuður í frí. Ég bjó allan tíman
hér í Grundarfirði og kom heim í
frítúrunum og vann í vélsmiðjunni
hérna.“
Heiðar er innfæddur Grund-
firðingur og fjölskylda hans gerir
út Haukabergið SH. Þar er pabbi
hans vélstjóri og Gunnar skipstjóri
er móðurbróðir Heiðars. „Ég fór á
Haukabergið fyrst eftir að ég kom
úr Vélskólanum árið 2002 og var
þar til ársins 2006. Þar var ég há-
seti til að byrja með og á sumrin á
Siglunesinu á rækju en Haukaberg-
ið var ekki gert út á sumrin þeg-
ar þetta var. Leysti síðan af einn og
einn róður á öðrum bátum. Vél-
skólanámið tók fjögur og hálft ár
hjá mér. Ég slapp við sumt þarna
fyrst ég var búinn að taka grunn-
námið á Akranesi og stundaskrá-
in riðlaðist út af því. Vélskólinn er
svo fámennur skóli að það er ekki
alltaf allt kennt á sömu önninni.
Því getur útskrift dregist ef menn
eru með eitthvað fyrir. Meðan ég
var í náminu bjó ég í Reykjavík.
Svo var ég á sjó héðan frá Grund-
arfirði í öllum fríum; um jól, páska
og á sumrum. Ég var þá aðallega á
togaranum Klakki sem var gerð-
ur út héðan um tíma. Það voru að-
allega Grundfirðingar á honum á
þessum tíma og eitthvað um sigl-
ingar með karfa til Þýskalands eða
landað í gáma.“
Bland af véladellu og
sjómennsku
Heiðar segir alla tíð hafa blundað
í sér að verða vélstjóri. „Ég byrjaði
að vísu sem háseti en ég var búinn
að kynnast vélarrúminu vel sem
krakki og var alltaf að fara einn og
einn túr með pabba á Haukaberg-
inu. Síðan er þetta bara sambland
af véladellu og sjómennsku.“
Hann segir auðvitað umhverf-
ið á sjónum gjörbreytt núna. Í það
minnsta hjá þeim á Hring. „Við
erum ekki lengur en fjóra daga úti í
einu og það má segja að þetta sé að
mestu orðið helgarvinna. Við för-
um yfirleitt út á föstudegi og kom-
um inn á þriðjudegi. Við eigum í
síðasta lagi að landa á miðvikudags-
morgni fyrir vinnsluna út vikuna.
Fullfermi hjá okkur er um 65 tonn
en þegar við förum í karfa erum við
enn fljótari að fylla og þá eru þetta
ekki nema svona þrír dagar.“
Taka virkan þátt í
sjómanndagshátíðar-
höldunum
Sjómannadagurinn er í hávegum
hafður í Grundarfirði og góð þátt-
taka í hátíðarhöldum. Heiðar seg-
ir skemmtilegt að vinna að þessum
degi. „Sjómenn eru nokkuð dugleg-
ir að taka þátt í hátíðarhöldunum en
manni finnst alltaf mega vera meira
um það. Jón Frímann Eiríksson
hefur verið öflugur að drífa þetta
áfram og hann er duglegur að ná
mér og öðrum með í þetta. Það þarf
alltaf einhvern einn til að drífa þetta
áfram. Við förum í fótboltaleik milli
áhafna og þrautir á bryggjunni. Síð-
an er auðvitað skemmtisiglingin
stór liður. Útgerðarmenn eru svo
alltaf með veislur á sjómannadaginn
fyrir sitt starfsfólk.“ Heiðar segir
aðal fjörið alltaf vera á laugardegin-
um en svo byrji sjómannasunndag-
urinn sjálfur á sjómannamessu, sem
alltaf sé fjölsótt, en síðan sé kaffi-
sala kvenfélagsins líka hefðbundin
og fjölsótt.
Heiðar hefur komið sér vel fyr-
ir á æskuslóðunum í Grundarfirði
ásamt fjölskyldu sinni. Kona hans
er Erna Sigurðardóttir úr Reykja-
vík og þau eiga fjögur börn á aldr-
inum 5-13 ára. „Þetta er besti stað-
ur í heimi til að ala upp börn,“ segir
Heiðar Bjarnason vélstjóri í Grund-
arfirði.
hb
Guðmundur Runólfsson hf.
Sólvöllum 2 – Grundarörður- Sími 430 3500
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Heiðar Þór Bjarnason vélstjóri í Grundarfirði:
Hefur aldrei starfað við annað en sjómennsku
Frá hátíðarhöldum á sjómannadaginn í Grundarfirði. Ljósm. úr safni: tfk.
Heiðar Bjarnason á hlaðinu heima hjá sér í Grundarfirði. Ekki amalegt útsýnið þar.