Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 70
70 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Á hvaða bæjarhátíðir
ætlar þú í sumar?
Spurning
vikunnar
Guðmundur Ólafsson
„Ég ætla á Reykhóladagana
og kannski Hamingjudaga á
Hólmavík.“
Björn Fannar Jóhannesson
„Reykhóladaga og Írska daga.“
Sandra Rún Björnsdóttir
„Hamingjudaga á Hólmavík og
Reykhóladaga.“
Bragi Jónsson
„Írska daga, Reykhóladaga,
Blómstrandi daga í Hveragerði
og Fiskidaginn mikla á Dalvík.“
Hrefna Karlsdóttir
„Reykhóladaga og Írska daga.“
(Spurt í Reykhólasveit)
Víkingur Ólafsvík heimsótti Þrótt
R. á gervigrasvöllinn í Laugardaln-
um í fjórðu umferð fyrstu deildar
karla síðastliðinn föstudag. Leik-
urinn fór fjörlega af stað. Strax á
fimmtu mínútu fengu Þróttarar
dauðafæri eftir góða sókn og innan
við tíu mínútum síðar hefði Ingólf-
ur Sigurðsson getað komið Víking-
um yfir en skot hans small í stöng-
ina. Eftir líflegar upphafsmínút-
ur róaðist leikurinn aðeins og fátt
markvert gerðist utan þess að Ing-
ólfur Sigurðsson fékk höfuðhögg
en hélt leik áfram, nokkuð vankað-
ur þar til honum var skipt af velli í
hálfleik.
Ólsarar hófu síðari hálfleik af
krafti og voru sterkara liðið fyrstu
20 mínútur hans en tókst ekki
að skapa sér nein afgerandi færi.
Það var hins vegar á 66. mínútu
að Þróttur komst á blað. Hlyn-
ur Hauksson átti þá sendingu frá
vinstri sem Viktor Jónsson skall-
aði í fjærhornið framhjá Christian
Liberato í marki Víkinga. Var það
fyrsta markið sem Ólsarar fá á sig í
sumar. Á 78. mínútu voru Víkingar
nálægt því að jafna. Arnar Sveinn
Geirsson skallaði háa sendingu yfir
markvörð Þróttar sem stóð nokk-
uð framarlega í teignum en varn-
armaður Þróttar mætti á síðustu
stundu og bjargaði á línu. Á 85.
mínútu skoruðu Þróttarar sitt ann-
að mark eftir að Admir Kubat mis-
tókst að hreinsa boltann frá mark-
inu. Lokatölur í Laugardalnum
2-0, Þrótti í vil.
Víkingar sitja í fjórða sæti deild-
arinnar með sjö stig eftir fjóra
leiki. Næsti leikur liðsins verð-
ur gegn Þór norður á Akureyri í
kvöld í Borgunarbikarnum en í
næsta deildarleik mæta þeir BÍ/
Bolungarvík á Ólafsvíkurvelli laug-
ardaginn 6. júní. kgk/Ljósm. af.
Víkingar töpuðu í Laugardalnum
Frá síðasta heimaleik Víkinga þar sem þeir sigruðu Selfyssinga á Ólafsvíkurvelli.
Helgina 29.-31. maí fóru Akra-
nesleikarnir í sundi fram á Jaðars-
bökkum. Alls tóku þátt 367 kepp-
endur frá 15 félögum víðsvegar af
landinu og synt voru samtals 1691
sund. Veðrið setti svip sinn á leik-
ana sem hófust í blíðskaparveðri
á föstudeginum. Heldur bætti í
vindinn á laugardaginn og þeir
sem kepptu þá syntu í öldurótinu í
Jaðarsbakkalauk. Á sunnudag kom
aftur gott veður sem keppendur
reyndust hæstánægðir með.
Mótið er stigakeppni félaga þar
sem hver sundmaður safnar stigum
fyrir félagið en fjöldi sundferða á
hvern keppanda er takmörkum
háður. Að þessu sinni var Sund-
félag Akraness stigahæsta sundlið-
ið með 441 stig, í fyrsta sinn síð-
an 2010. Sundfélag Hafnarfjarðar
kom næst með 325 stig og í þriðja
sæti hafnaði Sundfélagið Óðinn
með 291 stig.
Allar áætlanir um mótið stóð-
ust og eiga allir þeir sem störf-
uðu á Akranesleikunum hrós skil-
ið því með vinnusemi sinni og já-
kvæðni framkallaði það ómetan-
legar minningar hjá þeim börnum
og unglingum sem tóku þátt, segir
í tilkynningu frá Sundfélagi Akra-
ness.
-fréttatilkynning
Akranesleikarnir í sundi
fóru fram um helgina
Fjöldi keppenda við upphitun í Jaðarsbakkalaug.
Keppendur stinga sér til sunds á Akranesleikunum um helgina.
Vesturlandsmótið í loftgrein-
um skotfimi fór fram miðviku-
daginn 20. maí í skotheimili Skot-
íþróttafélags Vesturlands í Borgar-
nesi. Þetta mót var samvinnuverk-
efni Skotíþróttafélags Akraness og
Skotíþróttafélags Vesturlands. Mót-
ið var skemmtileg og vel sótt mót að
vanda en sigurvegari í loftskamm-
byssu karla varð Thomas Viderö,
Skotíþróttafélagi Kópavogs. Stef-
án Sigurðsson, einnig úr SFK, varð
í öðru sæti og Guðmundur Helgi
Christensen SR varð þriðji. Í loft-
skammbyssu kvenna sigraði Jórunn
Harðardóttir, Skotfélagi Reykjavík-
ur, Bára Einarsdóttir varð önnur og
Guðrún Hafberg þriðja en Bára og
Guðrún kepptu fyrir Skotíþrótta-
félag Kópavog. Í loftriffli karla sigr-
aði Guðmundur Helgi Christen-
sen SR, Theodór Kjartansson Skot-
deild Keflavíkur varð annar og Logi
Benediktsson, Skotíþróttafélagi
Kópavogs, varð þriðji. í loftriffli
kvenna varð Jórunn Harðardótt-
ir, SR, sigurvegari. Í stúlknaflokki
sigraði Dagný Rut Sævarsdóttir,
Skotíþróttafélagi Kópavogs.
Einnig var keppt um titilinn
Vesturlandsmeistari 2015 í karla-
og kvennaflokki. Í karlaflokki bar
Stefán Ingi Ólafsson sigu úr býtum.
Annar var Kristján Vagn Pálsson og
þriðji Jón Arnar Sigþórsson, allir
úr Skotíþróttafélagi Vesturlands. Í
kvennaflokki varð Berglind Björg-
vinsdóttir SKA Vesturlandsmeistari
og Laufey Ó Gísladóttir SV í öðru.
ebm
Vesturlandsmót í skotfimi
Laugardaginn 30. maí var haldið
Vesturlandsmót í boccia í Íþrótta-
miðstöðinni á Hvammstanga. Mót-
ið var í umsjón Félags eldri borg-
ar í Húnaþingi vestra með dyggri
aðstoð gamals Hvammstangabúa;
Flemmings Jessen á Hvanneyri, sem
annaðist undirbúning og var yfir-
dómari. Mótið setti Eggert Karls-
son varaformaður Feb. í Húnaþingi
vestra og Guðmundur Haukur Sig-
urðsson var mótsstjóri. Alls mættu
13 lið til leiks; tvö frá Akranesi, tvö
úr Borgarbyggð, tvö úr Snæfellsbæ,
fjögur frá Stykkishólmi og þrjú frá
Húnaþingi vestra.
Vesturlandsmeistarar 2015 í
boccia varð sveit frá Akranesi skipuð
þeim Þorvaldi Valgarðssyni, Böðv-
ari Jóhannessyni og Gunnari Guð-
jónssyni. Í öðru sæti sveit úr Borg-
arbyggð skipuð þeim Þorbergi Eg-
ilssyni, Guðmundi Egilssyni, Guð-
mundi Bachmann, Ágústi Haralds-
syni og Ragnari Ólafssyni. Í þriðja
sæti varð sveit frá Akranesi skipuð
Sigfríði Geirdal, Guðrúnu Sigurð-
ardóttur og Gylfa Jónssyni.
Næsta Vesturlandsmót í boccia
verður haldið í Snæfellsbæ í maí
2016.
ghs
Vesturlandsmót í boccia var
leikið á Hvammstanga
Berglind Björgvinsdóttir.
Tvö efstu liðin taka hér við verðlaunum. Ljósm. Anna Scheving.
Í vetur hefur Frjálsíþróttafélag Borg-
arfjarðar lagt í það stórvirki að kaupa
ný og fullkomin tímatökutæki til
þess að hægt sé að halda lögleg frjáls-
íþróttamót í Borgarnesi. Tækin eru
komin og af því tilefni hefur félagið
boðið til barna- og unglingamóts
miðvikudaginn 10. júní nk. Borg-
firðingar bjóða öllum krökkum 16
ára og yngri að koma og taka þátt í
mótinu, einnig þeim sem eru á Sam-
Vest-svæðinu (Vesturland og sunn-
anverðir Vestfirðir). Einnig krökk-
um sem ekki hafa æft frjálsar en vilja
prófa einhverja grein/greinar.
Dagskrá mótsins verður þannig
að barnamót er áætlað frá kl. 17:00
- 17.50. Það er fyrir börn 10 ára og
yngri (4. bekkur og yngri). Keppt
verður í fjórum flokkum: Piltar 8
ára og yngri, stúlkur 8 ára og yngri,
piltar 9-10 ára og stúlkur 9-10 ára.
Greinar sem eru í boði eru 60 m
hlaup, boltakast og 600 m hlaup.
Unglingamót er síðan ráðgert frá
kl. 18:00 - 20:00. Það er fyrir kepp-
endur á aldrinum 11-16 ára. Hver
keppandi ræður því í hvaða grein-
um hann tekur þátt, en þessar grein-
ar eru í boði: Piltar/stúlkur 11-12 ára
geta keppt í 60m hlaupi, langstökki,
kúluvarpi, hástökki og 600m hlaupi.
Piltar/stúlkur 13-14 ára og piltar/
stúlkur 15-16 ára geta keppt í 60m
hlaupi, langstökki, spjótkasti, há-
stökki, 60m grind og 800m hlaupi.
Öllum er boðið að vera með og því
er hér á ferð kjörið tækifæri til þess
að prófa að taka þátt í einhverri grein
frjálsra íþrótta.
Boðið verður uppá grillveislu um
klukkan 18 fyrir yngri krakkana og
gesti. Síðan verður aftur grillað að
móti loknu klukkan 20. Skráningar
þurfa að berast á netfangið bjarni@
menntaborg.is mm
Frjálsíþróttaveisla verður í
Borgarnesi 10. júní
Frá vinstri: Kristján Vagn, Stefán Ólafs og Jón
Sigþórsson.