Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2015, Page 24

Skessuhorn - 03.06.2015, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ Sjómannadagurinn Búið er að opna Fiskbókina. Hún er rafræn bók með fjölbreytt- um fróðleik um helstu nytjafiska. Þar má telja upplýsingar um veiði þeirra, svo sem veiðisvæði, á hvaða árstíma þeir veiðast og helstu veið- arfæri. Með þessari rafrænu út- gáfu Fiskbókarinnar er mögulegt að koma á framfæri margvísleg- um upplýsingum um fisk og fisk- afurðir, fræðslu og rannsóknir sem þeim tengjast með mun skilvirkari og fjölbreyttari hætti en hægt er í prentaðri bók. Fiskbókin er unnin í samstarfi við Íslandsstofu, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), og Iceland Seafood International með stuðn- ingi AVS rannsóknasjóðs í sjávar- útvegi. Fiskbókin er önnur í röð rafrænna bóka frá Matís en áður hafði Kjötbókin verið sett í loftið. Slóðin á Fiskbókina er www.fisk- bokin.is. mþh Þær eru þrjár konurnar hér á landi sem hafa þann starfa að vera hafn- arverðir. Þeirra hlutverk er, eins og annarra hafnarvarða, að vigta sjávar- afla og sjá um ýmis þau störf sem til falla við hafnir landins. Eina konan í starfi hafnarvarðar hjá Snæfellsbæ er Hafrún Ævarsdóttir en hún seg- ir að auk þess séu konur hafnarverð- ir í Grundarfiði og á Skagaströnd en Hafrún segir þó ekkert stéttarfélag kvenna í hafnarvörslu vera til ennþá. Fínt að vinna með þessum körlum „Ég kann vel við þetta starf hér inn- an um alla karlana sem starfa hér og koma í vigtarhúsin,“ segir Haf- rún. „Þetta er mjög fínt. Ég vann á leikskóla, þar var styttri vinnutími, meira at og svolítið drama. Þreytan sagði til sín þegar maður kom heim. Áður vann ég frystihúsi. Það var fínt því þar var maður bara með heyrnar- tól á hausnum með tónlist allan dag- inn en launin voru skítleg og vinnu- tíminn endalaus. Svo kom ég hing- að. Það er fínt að vinna með þessum körlum, aldrei vesen, ekkert drama og allir segja bara; „já elskan mín.“ Svo er líka enginn dagur eins. Við þurfum stundum að finna okkur eitt- hvað að gera, þrífa, skipta um ljós- in í stigunum á bryggjunum, lag- færa og skipta um fríholtin á bryggj- unum. Ég er sennilega lélegust í að laga kaffi, sem nóg verður að vera til af hér, því hingað eru alltaf að koma einhverjir karlar í kaffi. Stundum eru þeir komnir áður en ég næ að laga kaffi og það er ekki gott. Þetta eru skemmtilegir náungar sem koma hingað. Mikið talað og margar sög- ur eru sagðar.“ Fer á löggildingar- námskeið bráðum Hafrún sinnir sínum störfum í Rifi, á Arnarstapa og í Ólafsvík. „Ég byrj- aði í þessu í júní í fyrra og var fram í nóvember. Svo vantaði aftur af- leysingar hérna í febrúar og ég kom hingað en veit ekki enn hvort ég fæ fastráðningu eða ekki. Hafrún er enn með undanþágu frá löggildingu vigt- armanns en frá því hún byrjaði hef- ur ekki verið haldið námskeið fyr- ir vigtarmenn. „Ég fer núna í júní á næsta námskeið sem verður haldið. Ég hef bara mjög gaman af þessu og ég heyri ekki annað en karlarnir séu ánægðir með mig hérna. Meðan svo er, verð ég hérna,“ segir Hafrún. hb V M - F é l a g v é l s t j ó r a o g m á l m t æ k n i m a n n a - S t ó r h ö f ð a 2 5 - 1 1 0 R e y k j a v í k - 5 7 5 9 8 0 0 Landsfélag í vél- og málmtækni VM- Félag vélstjóra og málmtæknimanna óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn Sjómannadagurinn Fiskbókin hefur verið opnuð á netinu Svona er forsíða hennar á netinu. Það er gaman að vera hafnarvörður -segir Hafrún Ævarsdóttir hafnarvörður í Snæfellsbæ Löndun í gangi. Ljósm. af. Hafrún lætur fara vel um sig í nýju og glæsilegu hafnarhúsi í Rifi.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.