Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Sjómannadagurinn
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Feðgarnir Magnús Sigurgeirsson
og Sigmundur Magnússon gera út
á grásleppu frá Reykhólum á báti
Magnúsar, Nóney BA 11, sem er
sjö tonna dekkaður plastbátur.
„Við erum búnir að vitja um einu
sinni og vitjum aftur um á morg-
un, föstudag,“ sagði Magnús þeg-
ar blaðamaður hitti hann að máli
á fimmtudaginn. „Það var bara
fín veiði, virtist vera nóg af grá-
sleppu og jafnt um allt. En mað-
ur veit aldrei fyrr en í annarri vitj-
un hvernig staðan er, það er ekkert
að marka fyrr en þá, það gæti ver-
ið uppsafnað af fiski á þessum stöð-
um,“ sagði Magnús. Þeir feðgar eru
þeir einu sem gera út á grásleppu
frá Reykhólahöfn þetta fyrsta veiði-
tímabil vertíðarinnar við innan-
verðan Breiðafjörð og eins og stað-
an er núna er ekki útlit fyrir frek-
ari útgerð frá staðnum. „Við byrj-
uðum 20. maí, strax á fyrsta degi og
ég reikna ekki með að við gerum
út annan bát eftir að þessu tíma-
bili lýkur. Við höfum reyndar yfir-
leitt verið seinna á ferðinni en úr
því við byrjuðum þetta snemma í ár
var eina vitið að leggja strax fyrsta
daginn og ná góðum stöðum. Það
var smá slagur við báta annars stað-
ar frá, “ bætir hann við.
Einhver rómantík í
grásleppunni
Magnús er búsettur í Kópavogi en
alinn upp fyrir vestan og hefur lengi
gert út á grásleppu frá Reykhólum,
fyrst með bræðrum sínum og síðan
með syni sínum Sigmundi.
„Ég keypti mér einhvern tím-
ann lítinn trébát og prófaði að róa
frá Kópavogshöfn, svo eitt vor frá
Reykjavík. Síðan fór ég að stækka
við mig bátana smám saman og
það er líklega 1996 sem ég sný aft-
ur og fer að gera út héðan á nýjan
leik.“ segir Magnús. Hann kveðst
ekki stórhuga í útgerðinni en segist
reyna að fara eitthvað á grásleppu á
hverju sumri, það sé einhver róm-
antík í þessu. „Egill bróðir leysir
mig af einstaka sinnum ef ég for-
fallast af einhverjum ástæðum. Við
erum báðir haldnir þessari bakter-
íu. En Sigmundur er búinn að vera
með mér síðustu tíu árin eða svo,
hann er sennilega smitaður líka,“
segir Magnús og hlær við.
Ætlar að halda
áfram útgerð
Höfnin á Reykhólum verður seint
talin fullkomin til grásleppuútgerð-
ar. Löndunarbúnaður er gamall og
ekki sérlega rúmt um menn á lönd-
unarbryggjunni fyrir framan kran-
ann.
„Þetta er mikil vinna á stöðum
sem þessum. Hérna tekur löndun-
in oft mjög langan tíma því aðstað-
an er öll fremur bágborin. Svo er
mikill ókostur hvað þetta er í raun
afskekkt því við þurfum auðvitað að
koma fisknum frá okkur. Ég keypti
lítinn vörubíl með kælikassa og við
flytjum fiskinn sjálfir. Við höfum
leyst þetta með þeim hætti síðustu
árin, flutningskostnaðurinn er svo
mikill,“ bætir hann við.
En er skemmtanagildið eitt og
sér þá höfuðástæðan þess að hann
stundar grásleppuveiðar? „Ég
veit ekki hvort þetta er endilega
skemmtilegt. Hins vegar heldur
maður á hverju vori að þetta verði
skemmtilegt. Svo þegar maður er
byrjaður man maður alltaf hvað
þetta er leiðinlegt,“ segir Magnús
og hlær. „Þá er maður kannski bú-
inn að veltast marga daga í skít og
brælu. En jú, ef það er gott veður
og svona þá er þetta gaman,“ bætir
hann við og brosir.
Aðspurður kveðst hann reikna
með að halda áfram útgerð á kom-
andi árum og þá með svipuðum
hætti og verið hefur. „Maður vill
auðvitað nýta þá fjárfestingu sem
maður lagði í á sínum tíma. Fyrst
maður á þetta „á þurru“ er vel hægt
að halda áfram en ef maður ætl-
aði að leggja aukið fé í þetta myndi
það ekki borga sig, að minnsta kosti
ekki meðan verðið fyrir fiskinn er
eins og það er núna,“ segir Magn-
ús að lokum.
kgk
„Maður heldur á hverju vori að þetta verði skemmtilegt“
Magnús Sigurgeirsson gerir út á grásleppu frá Reykhólum ásamt syni sínum Sigmundi Magnússyni. Hér stendur Magnús við
bát sinn Nóney BA 11 þar sem hann lá við flotbryggjuna í Reykhólahöfn í síðustu viku.