Skessuhorn - 03.06.2015, Side 42
42 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
inn að vera að þvælast á sjó síðan ég
var um tvítugt. Bæði á netum, trolli
og frökturum. Ég hef veitt með öll-
um veiðarfærum nema nót. Ég var
meðal annars á bát sem hét Haffari,
á togaranum Bessa vestur frá Súða-
vík, svo var ég á togaranum Skutli
sem síðar hét Eldborg á rækju-
veiðum á Flæmska hattinum und-
an ströndum Kanada. Síðan var ég
á hinu fræga flutningaskipi Axel sem
hvarf úr höfn í skjóli myrkurs sum-
arið 2012 eins og frægt varð. Reynd-
ar var ég kominn í land þegar þeir
stungu af og farinn í frí til að fara
á sjóstangveiðimót,“ sagði Gunn-
ar hress í bragði á meðan hann gekk
frá afla dagsins.
Veiddi í frosthörkunum
miklu við Akranes í apríl
„Þetta gekk þokkalega hjá okkur í
dag,“ sagði hann og leit yfir nokk-
ur plastkör sneisafull af þorski. „Ég
tók líka þátt í sjóstangveiði héðan frá
Akranesi á innanfélagsmóti í frost-
hörkunum miklu í apríl nú í vor.
Stangirnar voru ísaðar hjá okkur þá.
Það var sex stiga frost og átta til níu
metra vindur á sekúndu. Þú getur
ímyndað þér hvernig þetta var. Við
norpuðum þetta á trillunum héðan
frá Akranesi úti í Faxaflóa.“
Gunnar sagðist ekki hafa stund-
að sjómennskuna síðan hann hætti
á flutingaskipinu Axel. Síðan hefur
hann haslað sér frekari völl í kvik-
myndunum. Verðlaunakvikmyndin
Fúsi var frumsýnd í mars síðastliðn-
um. Á Tribeka kvikmyndahátíðinni
í New York sópaði hún til sín verð-
launum og fékk þrenn þau helstu
á hátíðinni. Gunnar fékk verðlaun
fyrir besta leik í aðalhlutverki, Dag-
ur Kári leikstjóri og handritshöf-
undur var verðlaunaður fyrir besta
handritið í leikinni kvikmynd og
sjálf myndin, Fúsi, var valin besta
leikna myndin. „Ég er í sjóstang-
veiðinni vegna þess að veiðidellan
blundar alltaf í manni eftir að hafa
verið sjómaður á fiskiskipum. Þetta
er líka eins konar þrá að komast út
á sjó, sjórinn kallar á mann. Mað-
ur fær útrás fyrir þetta með því að
fara í sjóstangveiðina.“ mþh
Sjómannadagurinn
Arnar Laxdal Jóhannesson skip-
stjóri á línubátnum Trygga Eðvars
SH frá Rifi var að landa afla sín-
um ásamt félaga sínum Guðmundi
Njáli Þórðarsyni, þegar fréttaritari
hitti þá á laugardaginn. „Æji, þetta
er ekkert sérstakt í dag,“ sagði Arn-
ar þegar hann var spurður um afla-
brögð. „Þetta eru rúm 100 kíló á
balann og farið að draga úr veið-
inni upp á síðkastið.“ Aðspurður
um hvernig vertíðin hafi verið segir
Arnar hana fína og að góður kraft-
ur hafi verið í henni. „Fiskurinn er
mikið stærri en í fyrra, boltaþorsk-
ur sem við vorum að fá, en það var
minna af ýsu en undanfarnar vertíð-
ar. Þorskurinn var úti um allt, sama
hvar lagt var, alls staðar reynd-
ist mokveiði. En veðrið var hrein
hörmung í vetur. Ég man ekki eftir
öðrum eins vetri og var núna.“
Á Tryggva Eðvarðs eru þrír
menn um borð og er aflinn á þessu
kvótaári kominn í þúsund tonn, að
sögn Arnars. Hann segir að það
hafi verið stíft róið og að þeir hafi
verið hingað og þangað umhverfis
landið. „Við löndum mikið á Arn-
arstapa og Rifi en í nóvember fór-
um við til Bolungarvíkur og svo til
Grindavíkur í mars og apríl þeg-
ar loðnan var að ganga inn Breiða-
fjörðinn. En nú erum við að klára
línuveiðarnar og síðan fer Tryggvi
Eðvarðs í slipp og svo verður gert
klárt fyrir makrílveiðar í sumar.“
Arnar gerir út strandveiðibátinn
Gísla Mó SH og mun fara á strand-
veiðar á honum þegar hann fær til
þess tíma. „Annars finnst mér þetta
strandveiðikerfi vera fáránlegt, al-
gjör dauðagildra. Þetta kerfi hvetur
menn til þess að fara út í allskonar
veðrum og það bíður bara hættunni
heim,“ segir Arnar og kveðst ósátt-
ur við fyrirkomulagið. „Þetta ættu
að vera tíu dagar á mánuði og menn
réðu þá sjálfir hvenær þeir sæktu
þessi 700 kíló sem þeim er skammt-
að í róðri,“ segir hann að lokum.
af
Fín vertíð þrátt fyrir rysjótt tíðarfar
Guðmundur Njáll að smúla eftir
löndunina.
Arnar Laxdal í löndun.
„Þetta er tómstundaiðjan. Ég keppi
fyrir hönd sjóstangveiðifélagsins í
Ólafsvík en er bara fæddur í Hafn-
arfirði. Hins vegar er ég ættaður
úr Breiðafirðinum, nánar tiltek-
ið frá Melum á Skarðsströnd. Ég
var oft þar sem strákur þó ég væri
aldrei þar í sveit,“ sagði sjómaður-
inn, kvikmyndaleikarinn og sjóst-
angveiðimaðurinn Gunnar Jóns-
son, eða Gussi eins og hann oft
líka kallaður. Gunnar er nú síðast
þekktur fyrir aðalhlutverk sitt í kvi-
myndinni Fúsa sem frumsýnd var í
vetur. Áður hefur hann meðal ann-
ars slegið í gegn í leik sínum í Fóst-
bræðraþáttunum í sjónvarpi.
Hollywood má bíða
Við hittum Gunnar þar sem hann
var nýkominn úr róðri á fyrra degi
aðalmóts Landssambands sjóstang-
veiðifélaga sem haldið var á Akra-
nesi um síðustu helgi. Hann hafði
róið vestur svokallað Rennur sem
eru úti á Syðra Hrauni í Faxaflóa
beint vestur af Akranesi á trilluni
Leifa AK þar sem Jóhannes Eyleifs-
son er skipstjóri og útgerðarmað-
ur. „Ég hef stundað sjóstangveiðina
síðan 2011. Þetta er rosalega gam-
an. Hollywood getur bara beðið þar
til sjóstangveiðitímabilið er búið. Ég
tek þátt í sjóstangveiðinni á hverju
sumri og er með allt í kringum land-
ið. Ég reyni að komast á allar keppn-
ir sem mér er mögulega unnt. Í fyrra
fór ég á 13 mót, sjö aðalmót og sex
innanfélagsmót.“
Þegar talað er við Gunnar kem-
ur brátt í ljós að hann þarf ekki að
leita langt eftir skýringum á áhuga
sínum á sjóstangveiðinni. „Ég er bú-
Jóhannes skipstóri, Gunnar leikari og Gilbert úrsmiður.
Gunnar Jónsson sjómaður og kvikmyndastjarna:
„Hollywood getur beðið meðan ég klára sjóstangveiðimótin“
Leif AK 2 kemur að bryggju á Akranesi eftir vel heppnaða veiðiferð með þrjá
sjóstangveiðimenn þar sem Gunnar Jónsson kvikmyndaleikari var einn þriggja.
Jóhannes Eyleifsson skipstjóri og útgerðarmaður stýrir bát sínum styrkum
höndum.
Gunnar með félaga sínum Gilberti Ó. Guðjónssyni úrsmiði.
Kvikmyndin Fúsi með Gunnari Jóns-
syni í aðalhlutverki hefur fengið
afbragðs gagnrýni og sópaði nýverið
til sín verðlaunum á kvikmyndahátíð
í New York þar sem hin heimsfræga
leikkona Whoopi Goldberg var í
dómnefnd.
Gunnar Jónsson gengur frá afla sínum
á Akranesi.