Skessuhorn - 03.06.2015, Side 57
57MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Ólafur Grétar Ólafsson hóf störf
hjá Sjóvá á Akranesi 20. maí 1970
og fagnaði því nýverið 45 ára starfs-
afmæli hjá Sjóvá. Af því tilefni
höfðu samstarfsaðilar hans skipu-
lagt óvænta veislu fyrir vini, kunn-
ingja og viðskiptavini. „Ég hafði
ekki hugmynd um þetta. Þetta var
allt svo leynilegt hjá Hörpu og okk-
ar mönnum í Reykjavík,“ segir Óli
Grétar. Aðspurður út í það hvern-
ig það kom til að hann hóf störf hjá
fyrirtækinu segist hann hafa ver-
ið áður við verslunarstörf. Berg-
ur Arnbjörnsson þáverandi útibús-
stjóri hafi svo boðið honum þetta
starf og hann hafi slegið til. „Þá hét
fyrirtækið Sjóvá tryggingafélag Ís-
lands og hafði skrifstofu sína við
Suðurgötu 62. Ég var svo lengi vel
einn þar, eða þar til ´88-89. Þá sam-
einast Sjóvá við Almennar trygg-
ingar og verður Sjóvá Almenn-
ar. Eftir þá sameiningu flutti ég í
gömlu mjólkurstöðina við Garða-
braut 2 og starfaði næstu 17 árin
með Ásgeiri Rafni Guðmunds-
syni.“ Óli Grétar hefur ekki haft
marga samstarfsmenn á þessum
45 árum. Harpa Hrönn Finnboga-
dóttir hóf störf með þeim Ásgeiri
og hefur hún starfað við hlið Óla í
13 ár í dag. Fyrirtækið er nú til húsa
í sínu þriðja húsnæði, við Garða-
braut 2a, við hlið gömlu mjólkur-
stöðvarinnar.
Engar tölvur
Óli Grétar segir tryggingamark-
aðinn hafa breyst töluvert á þeim
árum sem hann hefur starfað í
greininni. „Þegar ég byrjaði í
bransanum voru til dæmis eng-
ar tölvur. Þá skrifaði maður allar
beiðnir á blað og sendi þær svo suð-
ur í pósti. Þær komu svo í þríriti til
baka. Eins var bara einn gjalddagi
fyrir hvern hlut. 1. mars var gjald-
dagi á ábyrgðartryggingum bíla
og það varð oft mikið álag á þess-
um gjalddögum. Líf- og sjúkdóma-
tryggingar hafa aukist og skilmálar
hafa breyst til hins betra. En þörfin
fyrir persónulega og góða þjónustu
er alltaf jafn mikilvæg, það hefur
ekki breyst,“ útskýrir Óli Grétar.
Hann segir samkeppnina ekki hafa
dvínað með árunum heldur aukist
ef eitthvað er. „Það er kannski af
hinu góða. Það veldur því að þjón-
ustan helst góð, enda leitar fólk að
góðri þjónustu í þessum málum.“
Hann nefnir í þeim efnum að vild-
arþjónustan Stofn sé til að mynda
vinsæl hjá Sjóvá. „Stofn veitir við-
skiptavinum öfluga vildarþjónustu,
til dæmis á vörum sem tengjast ör-
yggi fjölskyldunnar. Meðal annars
með því að veita afslætti á barnabíl-
stólum og dekkjum og endurgjalds-
lausa vegaaðstoð. Sérstaða Sjóvár
er svo endurgreiðsla til skilvísra og
tjónalausra Stofnfélaga. Þeir fá eft-
ir árið hluta af iðgjöldum sínum til
baka.“ Hann segir einnig að meira
upplýsingaflæði sé til kúnnans en
var. „Þjónustan batnaði líka mikið
þegar Hvalfjarðargöngin voru opn-
uð og tjónaþjónustan hefur breyst
til hins betra bæði hvað varðar bíla
og fasteignir.“
Gaman að pólitíkinni
Óli Grétar hefur alla tíð búið á
Akranesi og kann vel við sig á Skag-
anum. Hann er giftur Dóru Guð-
mundsdóttur og saman eiga þau
þrjú börn og níu barnabörn. Óli
Grétar hefur verið virkur í ýms-
um félagsstörfum í gegnum tíð-
ina, hefur til dæmis verið meðlimur
í Lionsklúbbi Akraness til margra
ára og gegnt þar trúnaðarstörfum.
„Í gegnum árin hef ég verið mikið
í félagsstörfum. Ég hef starfað mik-
ið með knattspyrnunni, golffélag-
inu og íþróttabandalaginu. Ég hef
verið í stjórn allra þessara félaga.
Ég hef líka áhuga á pólitíkinni, hef
mjög gaman af því að fylgjast með
lands- og sveitarstjórnarmálum,“
segir hann. Óli Grétar þakkar með-
al annars góðu samstarfsfólki að
hafa náð þessum starfsaldri. Hon-
um líður enn vel í starfi sínu og hef-
ur ekki hugað að því að fara á eft-
irlaun þrátt fyrir að hafa nýverið
náð 67 ára aldri. „Ég hef unnið hér
með góðu fólki og hef alltaf átt gott
samstarf við kúnnana. Eins er þetta
fjölbreytt og skemmtilegt starf. Ég
hitti mikið af fólki og hef gaman
af starfinu, þess vegna hef ég enst
svona lengi í þessu,“ segir Skaga-
maðurinn og útibússtjóri Sjóvá á
Akranesi.
grþ/ Ljósm. mm.
Ólafur Grétar með systkinum sínum sem mætt voru í afmælishófið. F.v. Sigurður,
Ásmundur, Þórður, Ólafur Grétar og Ragnheiður. Gunnar bróður þeirra vantar á
myndina.
Haldið upp á 45 ára afmæli í tryggingabransanum
Ólafur Grétar ásamt Hörpu Hrönn Finnbogadóttur og Ómari Svavarssyni
framkvæmdastjóra sölu- og ráðgjafasviðs Sjóvá.
www.visitakranes.is / www.akranes.is
Finnið okkur á facebook undir: Matar- og antikmarkaðir Akranesi
Sultur og kleinur
Prjón & hekl
Írskir dagar
Tónlist
Bækur
Golf
Barnadót og tombóla
Föt og skór
Handverk
20. JÚNÍ:
27. JÚNÍ:
4. JÚLÍ:
11. JÚLÍ:
18. JÚLÍ:
25. JÚLÍ:
1. ÁGÚST:
8. ÁGÚST:
15. ÁGÚST:
Matar- og antikmarkaðurinn
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Matur og menning á Akratorgi í sumar. Alla laugardaga frá 20. júní til
15. ágúst milli klukkan 13 – 17 verður Akratorg og Suðurgata 57 iðandi
af mat og menningu. Fjölmargir framleiðendur innanbæjar sem utan
koma og kynna og selja varning sinn. Einnig verður sérstakt þema á
hverjum markaði fyrir sig þannig að öllum stendur til boða að taka þátt.
Aðilar sem áhuga hafa á að taka þátt í markaðnum með mat,
menningu, handverki eða öðru eru vinsamlega beðnir um að senda
póst á netfangið: hledis.sveinsdottir@akranes.is