Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Síðasta laugardag stóðu krakkar
í 6.-10. bekk Reykhólaskóla fyrir
sínum fyrsta viðburði sem er lið-
ur í fjáröflun fyrir skólaferðalag til
Danmerkur. Ákváðu þau að nýta
tækifærið í leiðinni og vekja at-
hygli á mikilvægu málefni, sem er
ástand þeirra vega á sunnanverðum
Vestfjörðum sem tilheyra Reyk-
hólasveit. Gerðu þau sér lítið fyrir
og hjóluðu frá sýslumarka á milli,
eða frá brúnni í Kjálkafirði suður á
Gilsfjarðarbrú. Á leiðinni fóru þau
yfir bæði Ódrjúgsháls og Hjalla-
háls, sem eru brattir með kröppum
beygjum og illfærir á veturna sem
og í vætutíð.
Alls voru tíu krakkar sem tóku
þátt og skiptu þeir leiðinni á milli
sín þannig að tveir og tveir hjóluðu
saman 5km í senn áður en næsta
par tók við. Að sögn Jóhönnu Asp-
ar Einarsdóttur, tómstundarfull-
trúa Reykhólahrepps, sem skipu-
lagði ferðina og fylgdi hjólreiða-
görpunum, voru krakkarnir orðnir
frekar þreyttir í lokin enda búnir að
hjóla samtals 120km.
kgk/ Ljósm. Jóhanna Ösp Einars-
dóttir
Hjóluðu sýslumarka á milli
Tindur Ólafur Guðmundsson heldur
hér á korti af Reykhólasveitinni sem
sýnir meðal annars hina 120km
leið sem krakkarnir hjóluðu á
laugardaginn.
Krökkunum sóttist ferðin hægt á köflum, enda hálsarnir brattir og erfiðir yfir-
ferðar.
Hópurinn kominn á leiðarenda suður á Gilsfjarðarbrú eftir níu klukkustunda ferðalag.
Um næstu helgi verður fyrsta um-
ferð Íslandsmeistaramótsins í rallý
ekin á Reykjanesi. Er það Aksturs-
íþróttafélag Suðurnesja sem heldur
keppnina en ekið verður með svip-
uðu sniði og undanfarin ár. Fyrsta
áhöfn mun leggja af stað klukk-
an 18:00 frá húsi Aðalskoðunar í
Keflavík og verða eknar sérleið-
ir í nágrenni Reykjanesbæjar. Má
þar nefna m.a. sérleið um höfnina
í Keflavík, en sú leið hefur ávallt
verið vinsæl hjá áhorfendum en
mörg skemmtileg atvik hafa sést
þar á undanförnum árum. Kepp-
endur taka síðan næturhlé en mæta
til leiks snemma á laugardagsmorg-
uninn. Þá verða eknar þrjár ferðir
um Djúpavatn, er það er rúmlega
20 km. löng leið en oft ráðast úrslit
keppninnar á þessari leið. Keppn-
inni lýkur síðan um klukkan 15:00
við hús Aðalskoðunar þar sem úrslit
verða kynnt og verðlaunaafhending
fer fram.
Vestlendinar og Norðlending-
ar eiga ríkjandi Íslandsmeistara,
þá Tímon félaga Baldur og Aðal-
stein. Þeir mæta galvaskir á sömu
bifreið og í fyrra, Subaru Imprezu
Sti. Þeir óku mjög vel síðasta sumar
og fóru í gegnum keppnistímabilið
án áfalla. Því hefur keppnisbifreið
þeirra eingöngu þurft góða yfir-
ferð og nýja túrbínu í vetur. Kapp-
arnir munu ræsa fyrstir í keppninni
en hefð er fyrir því að ríkjandi Ís-
landsmeistarar hefji sumarið fyrstir
í rásröð og fái því sjálfkrafa keppn-
isnúmerið 1.
Þeir Baldur og Aðalsteinn eru
spenntir, harðákveðnir í að gera sitt
besta og ná í sem flest stig í þessari
fyrstu keppni sumarsins. Ljóst er að
samkeppnin verður hörð og spenn-
andi en til leiks eru m.a. skráð-
ir fjórir fyrrum Íslandsmeistarar.
Meðal þeirra eru Henning Ólafsson
og Árni Gunnlaugsson í liði Pumba
en þeir aka á Subaru Imprezu. Hef-
ur sú bifreið verið mikið endur-
bætt frá í fyrra og ætla þeir sér stóra
hluti í sumar. Þá er vert að minnast
á þau systkinin Daníel Sigurðsson
og Ástu Sigurðardóttur sem líkleg
til afreka líkt og Þór Lína Sævars-
son og Sigurjón Þór Þrastarson en
báðar þessar áhafnir eru á öflugum
Subaru Impreza bílum. Jón Bjarni
Hrólfsson, fyrrum Íslandsmeistari
mætir sterkur til eftir nokkurra ára
hlé, nú ásamt Sæmundi Sæmunds-
syni á Jeep Cherokee, en góð þátt-
taka er í jeppaflokki að þessu sinni
og því útlit fyrir spennandi keppni
þar. gg
Íslandsmeistarakeppnin í
Rallý hefst um næstu helgi
Næstkomandi föstudag
5. júní verður heimilda-
myndin „Svartihnjúk-
ur - stríðssaga úr Eyrar-
sveit“ frumsýnd í Grund-
arfirði. Áður var hún
sýnd á heimilda kvik-
myndahátíðinni Skjald-
borg sem fór fram á Pat-
reksfirði um hvítasunnu-
helgina. Frumsýningin
á Grundarfirði verður í
kjölfar styrkveitinga úr
Uppbyggingasjóði Vest-
urlands. Auk þessa hafa
ýmsir heimamenn á Snæ-
fellsnesi og þá sérstaklega
í Eyrarsveit átt aðkomu
að gerð myndarinnar.
Gestum er sérstaklega
boðið á frumsýninguna
sem fram fer kl. 17.00 í
Bæringsstofu í Sögumið-
stöðinni í Grundarfirði.
Strax seinna sama síð-
degi klukkan 18.30 verð-
ur svo önnur sýning sem
verður öllum opin.
„Svartihnjúkur-stríðs-
saga úr Eyrarsveit,“ segir
frá árekstri íslenskrar sveitakyrrð-
ar og hrikaleik heimsstyrjaldar-
innar síðari. Íslenskir bændur voru
rifnir úr hversdagslegum búverk-
um til þess að fara á fjöll að leita að
týndri herflugvél. Lýsingar þeirra
á hrikalegri aðkomu og líkburði
hafa lifað meðal sveitunga þeirra
fram á þennan dag. Margvíslegar
sögusagnir hafa spunnist um afdrif
bresku flugmannanna. Í myndinni
er meðal annars sagt frá því hvern-
ig íslensk þjóðtrú leitast við að út-
skýra ógnirnar og afleið-
ingar þeirra. Í hermanna-
grafreit Fossvogskirkju-
garðs standa sex legstein-
ar. En grafirnar sex geyma
aðeins líkamsleifar fjögurra
breskra flugmanna sem fór-
ust á Snæfellsnesi í nóvem-
ber 1941. Skýrslur breska
flughersins eru fáorðar um
þetta sérkennilega mál. Í
Eyrarsveit á Snæfellsnesi
hafa menn hins vegar í ára-
tugi sagt sögur af örlögum
þeirra sem saknað er. Flug-
slysið í Svartahnjúk hef-
ur um áratugaskeið verið
sveipað dulúð í bland við
óhug og skelfingu. Líklega
eru því margir bæði spennt-
ir og forvitnir að fá að vita
meira um forsögu og af-
leiðingar þess þegar breska
Wellington-sprengjuflug-
vélin flaug í fjallshlíðina
þennan dimma dag fyrir 74
árum síðan.
Kvikmyndafyr ir tækið
Seylan gerði myndina en
framleiðandi og stjórnandi
er Hjálmtýr Heiðdal. Síðastliðið
haust fór fram vel heppnuð fjár-
söfnum til að festa kaup á einstæðu
myndefni frá söfnum í Bretlandi til
nota í kvikmyndinni.
mþh
Svartihnjúkur - stríðssaga úr
Eyrarsveit frumsýnd í Grundarfirði
Veggspjald kvikmyndarinnar.
Freisting vikunnar
Eplakaka eins og
í gamla daga
Nýbökuð eplakaka rennur ljúflega
niður hjá flestum. Það er sama
hvort um er að ræða heita, amer-
íska eplaböku líkt og stolið er úr
gluggakistum í teiknimyndunum,
eða eplaköku líkt og bakaðar voru
hér á landi í gamla daga. Uppskrift-
in sem við birtum hér er einmitt af
svona mjúkri og svampkenndri,
gamaldags eplaköku. Hún kemur
frá eldri konu á Akranesi sem hef-
ur bakað kökuna margoft í gegn-
um árin af ýmsum tilefnum. Lík-
lega er uppskriftin upprunalega
frá Húsmæðraskólanum á Varma-
landi. Kakan er bæði bragðgóð
og mjúk undir tönn og ekki spillir
hversu einfalt er að baka hana.
Gamaldags eplakaka
125 gr. smjörlíki
125 gr. sykur
125 gr. hveiti
2 egg
½ tsk lyftiduft
3 msk mjólk
1 - 2 ný epli, rauð.
Kjarnhreinsið og flysjið eplin og
skerið þau niður í þunnar sneiðar.
Hrærið saman smjörlíki og sykri
þar til létt og ljóst. Bætið eggjum
út í, einu í einu. Hrærið áfram.
Bætið hveiti, lyftidufti og mjólk
saman við. Setjið smá af deiginu
í form og raðið eplasneiðum ofan
á. Setjið svo restina af deiginu yfir.
Bakið í 20 - 35 mínútur við 180°
á blæstri. Ef ekki er notaður blást-
ur þarf að baka kökuna á hærri
hita. Deigið passar í kringlótt lag-
kökumót. Ef notað er stærra mót
gæti þurft að stækka uppskriftina.
Gott er að bera kökuna fram með
þeyttum rjóma.