Skessuhorn - 03.06.2015, Side 62
62 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Laugardaginn 23. maí voru braut-
skráðir 56 nemendur frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Allnokkrir þeirra voru verðlaunað-
ir fyrir góðan námsárangur og störf
að félags- og menningarmálum.
Benedikta Haraldsdóttir frá Vestri-
Reyni í Hvalfjarðarsveit fékk þar
verðlaun fyrir bestan námsárangur
nýstúdenta. Hún hóf nám við FVA
haustið 2012 og lauk á dögunum,
þremur árum síðar, stúdentsprófi
af málabraut með 9,13 í meðalein-
kunn.
„Ég er svo samviskusöm, eigin-
lega of samviskusöm,“ sagði Bene-
dikta þegar blaðamaður Skessu-
horns spurði hana hverju hún þakk-
aði helst þennan góða námsárang-
ur. Hún bætir því við að miklu
máli hafi skipt að standa skil á öll-
um þeim verkefnum sem fyrir hana
voru lögð, fylgjast með í tímum og
vinna jafnt yfir önnina. „Svo lang-
ar mig að þakka fjölskyldu minni
og vinum fyrir góðan stuðning og
hvatningu í gegnum árin, það er
ómetanlegt að eiga góða að,“ bæt-
ir hún við.
En þrátt fyrir samviskusemina
segir hún ástundun námsins ekki
hafa bitnað á þátttöku í félagslífinu.
„Ég hef allavega alltaf reynt eins
mikið og ég get að eyða tíma með
vinum mínum og skemmt mér og
svoleiðis. Ég er alveg eins og flest-
ir aðrir og klára heimaverkefni yfir-
leitt seint um nótt fyrir skiladag,“
segir Benedikta létt í bragði.
Aðspurð um sín eftirlætis náms-
fög þarf svarið svosem ekki að
koma á óvart frá stúdent af mála-
braut. „Mér fannst skemmtilegast
í ensku, það er mjög skemmtilegt
tungumál. Kannski fannst mér hún
skemmtilegri en hin tungumálin af
því ég kann hana betur,“ segir hún
og hlær við. „En ég hef líka mjög
gaman af íslensku, sérstaklega ís-
lenskum bókmenntum og þá sér-
staklega rómantískar stefnur í bók-
menntasögunni,“ bætir hún við og
nefnir næst að stærðfræðin hafi
verið það fag sem heillaði minnst,
þrátt fyrir að henni hafi alla tíð
gengið nokkuð vel í henni. „Mér
fannst hún bara svo leiðinleg,“ bæt-
ir hún við.
Hvað framtíðin ber í skauti sér
segist Benedikta ætla að taka sér frí
frá námi í haust. „Annað hvort til
að vinna eða fara eitthvað erlend-
is, það fer svolítið eftir því hvernig
sumarið verður hjá mér,“ segir hún.
Eftir það setur hún þó stefnuna á
háskólanám. „Ég hugsa að ég fari
annað hvort í viðskiptafræði eða
lögfræði, hvort sem það verður eft-
ir áramót eða eftir ár og ég er held-
ur ekki búin að ákveða hvort það
verður í Háskóla Íslands eða Há-
skólanum í Reykjavík,“ segir Bene-
dikta að lokum. kgk
Hestamannafélagið Skuggi í Borg-
arnesi stóð fyrir æskulýðsdegi í
Reiðhöllinni Faxaborg föstudag-
inn 29. maí síðastliðinn. Fjölmarg-
ir mættu til að fylgjast með því sem
þar fór fram. Þarna voru m.a krakk-
ar á aldrinum 4-12 ára sem nýbúnir
voru að ljúka námskeiði hjá Lindu
Rún. Sex ungar stelpur mættu í sýna
fínasta pússi og sýndu áhorfend-
um gangtegundir íslenska hestsins.
Ein þeirra mætti svo með óvænt-
an leynigest sem vakti mikla lukku
hjá krökkunum, Einnig mættu svo
á svæðið geimverur og jólasveinn
sem slógu svo sannarlega í gegn
hjá áhorfendum. Að lokum var svo
teymt undir áhugasömum krökkum
og boðið upp á grillaðar pylsur og
Svala. Engin keppni var í gangi en
gleðin og ánægjan alls ráðandi. Þær
Sigrún Halldórsdóttir og Linda
Rún Pétursdóttir stjórnuðu því sem
fram fór og fórst það vel úr hendi.
Ánægjulegt var að sjá hvesu marg-
ir tóku þátt og er það vísbending
um að nýliðun í hestamennskunni
sé mikil. Eins ber það öflugu starfi
æskulýðsnefndar Skugga gott vitni.
iss
Hallgrímur Ólafsson leikari hefur
verið ráðinn verkefnastjóri Írskra
daga á Akranesi. Hallgrímur er
Skagamaður að uppruna og hef-
ur bæði góða reynslu af verkefna-
stjórnun og leikstjórn. Hann leik-
stýrði listasmiðju á Vopnafirði, var
aðstoðarleikstjóri leikritsins Fjalla
Eyvindar í Þjóðleikhúsinu og hef-
ur leikstýrt nemendum Fjölbrauta-
skóla Vesturlands í þrígang, nú síð-
ast þegar söngleikurinn Grease var
settur á svið í Bíóhöllinni í vor.
Hallgrímur, eða Halli eins og
hann er jafnan kallaður, segir að
undirbúningurinn sé að hefjast.
Hann segist ekki þurfa að breyta
miklu, enda sé hátíðin skemmtileg
og vel heppnuð með því formi sem
hefur verið undanfarin ár. „Þetta er
frábær hátíð. Ég hef komið hingað
sem gestur undanfarin ár en mað-
ur er samt alltaf Skagamaður. Írsk-
ir dagar eru eitt af skemmtilegustu
augnablikum ársins og eru ekki
síður hátíð fyrir okkur brottfluttu
Skagamennina. Hátíðin er alltaf að
verða stærri og flottari að mínu mati
og nú er hægt að nýta svæðið betur.
Við erum komin með þetta flotta
torg, kaffihús, hérna verður matar-
og antíkmarkaður og svo framvegis.
Það er allt að verða skemmtilegra
hérna á Akranesi,“ segir Halli. Ak-
urnesingar mega því búast við fjöl-
breyttri og skemmtilegri dagskrá
að vanda. Fastir liðir verða á hátíð-
inni, eins og rauðhærðasti Íslend-
ingurinn, götugrill, útitónleikar og
fjölskylduskemmtun á sunnudegin-
um. „Mig langar ekki að gera nein-
ar stórtækar breytingar á forminu á
Írskum dögum því það hefur virkað
vel eins og það er,“ segir Halli. „En
ég hef unnið með mörgum ungum
krökkum í listsköpun á Akranesi og
mun láta bera á því hvað við eigum
mikið af hæfileikaríku fólki hérna.
Svo vil ég bara hvetja fólk sem hef-
ur einhverjar hugmyndir eða lang-
ar að gera eitthvað að hafa samband
við mig á irskirdagar@akranes.is.“
grþ
Á föstudaginn fyrir rúmri viku voru
14 nemendur brautskráðir frá Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði. Eins og venja er fengu þeir
nemendur sem skarað höfðu fram
úr verðlaun fyrir góðan námsárang-
ur. Vignir Snær Stefánsson var einn
þeirra, en hann lauk stúdentsprófi
af náttúrufræðibraut með meðal-
einkunnina 8,67, þá hæstu þetta
vorið. Þegar blaðamaður spurði
Vigni hvað hann teldi hafa skilað
honum þessum góða árangri vildi
hann eigna kennurum skólans hluta
heiðursins. „Kennararnir hérna eru
rosalega góðir, allir vingjarnlegir
og hægt að tengja við þá. Ég held
það hafi fyrst og fremst verið það,
svo stóð fjölskyldan náttúrulega við
bakið á manni,“ sagði Vignir.
Nám í FSN byggir að stórum
hluta á símati þar sem nemendur
vinna mörg verkefni yfir önnina og
þreyta próf úr einstökum köflum í
stað þess að þreyta eitt stórt loka-
próf úr hverjum áfanga. En hvað
telur Vignir að hafi gert honum
kleift að ná þessum góða árangri í
slíku námsmatskerfi? „Ætli það sé
ekki bara mikil vinnusemi og metn-
aður. Ég legg mikinn metnað í öll
verkefni sem ég tek mér fyrir hend-
ur. Góðir vinir skipta líka máli, það
var ófáum sinnum sem við hjálpuð-
um hver öðrum að skilja námsefnið
og unnum saman að hópaverkefn-
um gegnum skólagönguna,“ seg-
ir hann.
Aðspurður hvort félagslífið hafi
þurft að líða fyrir námið segir hann
svo ekki vera og bætir því við að
hann taki ekkert sérstaklega virk-
an þátt í félagslífi skólans. „Ég er
ekki mikið í því, einbeiti mér meira
bara að fótboltanum,“ segir Vign-
ir, en hann æfir knattspyrnu með
meistaraflokki Víkings Ólafsvíkur
og er hluti af leikmannahópi liðs-
ins sem leikur í fyrstu deild Íslands-
móts karla í knattspyrnu.
Í framtíðinni hyggst Vignir hefja
nám í næringarfræði við Háskóla
Íslands. „Skemmtilegustu áfang-
arnir sem ég tók hér í FSN voru
í líffæra- og lífeðlisfræði og einn
áfangi í næringarfræði. Ég hef mik-
inn áhuga á íþróttum og heilsu og
næringarfræðinám er því það sem
heillar mest, að minnsta kosti svona
eins og staðan er núna,“ segir Vign-
ir að lokum.
kgk
Vignir Snær útskrifaðist með hæstu einkunn á stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Hér tekur hann við verðlaunum fyrir framúrskarandi námsárangur á
útskriftarathöfninni. Ljósm. tfk.
Leggur mikinn metnað
í öll verkefni – stefnir nú á
nám í næringarfræði
Hallgrímur Ólafsson ráðinn
verkefnastjóri Írskra daga
Benedikta Haraldsdóttir, dúx Fjöl-
brautaskóla Vesturlands.
„Ég er eiginlega of samviskusöm“
Frábær stund á
æskulýðsdegi í Faxaborg