Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2015, Page 64

Skessuhorn - 03.06.2015, Page 64
64 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ Línubáturinn Gullhólmi SH hef- ur verið seldur frá Stykkishólmi. Kaupandi bátsins er GPG Sea- food á Húsavík. „Við erum að láta smíða nýjan 30 tonna línu- bát fyrir okkur hjá Seiglu á Ak- ureyri. Hann á að afhendast í júlí eða ágúst. Það verður bátur með beitningarvél þar sem aflinn verð- ur slægður um borð. Hann á að koma í stað Gullhólma. Við höf- um hreinlega ekki haft nægar afla- heimildir til að halda Gullhólma úti nema í um sjö mánuði á hverju ári. Nýtingin á skipinu hefur því ekki verið nægilega góð þótt skip- ið sjálft hafi reynst okkur ákaflega vel. Við skiptum Gullhólma út og fáum nýsmíði sem ætti að verða hagkvæmari,“ segir Ellert Krist- insson, framkvæmdastjóri hjá Ag- ustson í Stykkishólmi, sem átti og gerði Gullhólma út. Gullhólmi er þekkt skip í ís- lenska fiskiskipaflotanum og hét áður til margra ára Þórður Jón- asson EA. „Gullhólmi hefur ver- ið afhentur nýjum eigendum og er nú í viðhaldi í slipp. Hann verð- ur svo væntanlega gerður út frá Húsavík.“ GPG Seafood er ekki alls ókunnugt sjávarútvegi í Stykk- ishólmsbæ. Það á og gerir út línu- og netabátinn Þórsnes SH og er með saltfiskverkun í Stykkishólmi. mþh Gullhólmi seldur frá Stykkishólmi Gullhólmi SH 201 sem nú hefur verið seldur frá Stykkishólmi. Í staðinn verður keypt glænýr 30 tonna línubátur með beitningarvél til útgerðarinnar sem er Agustson ehf. Hin árlega verkfærasala Sindra var haldinn á Eiði við Kolgrafa- fjörð síðastliðinn sunnudag. Marg- ir kíktu í heimsókn og gerðu reif- arakaup. Þá var jafnframt bílasýn- ing og margir glæsifákar til sýnis. Glæsilegt standandi hlaðborð var á borðum og má þakka þeim hjónum á Eiði fyrir myndarskapinn. sk Verkfærasala og bílasýning á Eiði Húsið sem hýsti Bókasafn Akra- ness um áratugaskeið og stendur á Heiðarbraut 40 þar í bæ fær nýtt hlutverk eftir að hafa staðið autt í nokkur ár. Byggingafyrirtækið Skarðseyri ehf. hefur hafið fram- kvæmdir á lóðinni og áformar að koma alls upp átján íbúðum í því sem verður lítið fjölbýlishús. Um er að ræða 14 tveggja herbergja íbúðir og fjórar þriggja herbergja íbúðir. Tíu tveggja herbergja íbúð- ir verða í núverandi húsi sem er gamla bókasafnsbyggingin. Henni til viðbótar verður svo reist tveggja hæða nýbygging á lóðinni. Hún verður áföst gamla bókasafnhús- inu og í henni verða fjórar þriggja herbergja íbúðir og fjórar tveggja herbergja. Allt tilbúið að ári Gamla bókasafnshúsið er kjallari og tvær hæðir og í því er lyfta. Ný- byggingin verður hins vegar með átta íbúðum sem hafa allar sérinn- gang. Íbúðirnar verða allar ríku- lega innréttaðar og afhentar með gólfefnum þannig að fólk á að geta flutt beint inn eftir afhend- ingu. Húsin verða bæði klædd að utan með smábáruðum álplötum í ljósgráum lit. Allir gluggar íbúða verða ál-tré gluggar. Afhending íbúðanna mun fara fram í tvennu lagi. Íbúðirnar tíu í upprunalega bókasafnshúsinu verða tilbúnar um næstu áramót. Íbúðir nýbygg- ingarinnar verða svo tilbúnar til afhendingar vorið 2016, það er að segja eftir ár frá nú að telja. Bjarni Jónsson hjá Skarðseyri ehf. keypti gamla bókasafnshúsið af Akraneskaupstað á sínum tíma þegar safnið flutti í nýbyggt og sérhannað húsnæði að Dalbraut 1. Upphaflega var ætlun Bjarna að breyta húsinu í hótel. Það mætti andstöðu nágranna og í framhald- inu urðu deilur við Akraneskaup- stað. Í því stappi stóð um nokkurra missera skeið en sátt náðist í mál- inu. „Þetta endaði með samkomu- lagi um að við fengjum að byggja 18 íbúðir á Heiðarbraut 40. Síð- an fengum við lóð fyrir átta íbúð- ir í viðbót í nýjasta hverfinu á Akranesi. Þar stendur til að reisa tveggja hæða fjölbýlishús en þær fyrirætlanir eru þó varla komnar á teikniborðið enn. Ég er hrein- lega búinn að vera á haus við að ýta verkefninu við Heiðarbraut úr vör og gera það þannig úr garði að allir séu sáttir. Nú er það komið á fullt og við stefnum að því að byrja að selja með haustinu. Þetta verða íbúðir sem ættu að henta öllum aldurshópum ef út í það er farið og lóðin er mjög miðsvæðis í bæn- um eins og allir vita,“ segir Bjarni Jónsson. Akurnesingar koma víða að verkinu Aðalverktaki að framkvæmdunum er Virkjun ehf. sem hefur staðið að mörgum stórum verkum svo sem höfuðstöðvum N1 að Klettagörð- um, nýbyggingu Bókasafns Akra- ness og fleiri húsum. Aðalhönn- uður hússins er Jón H. Hlöðvers- son hjá Mansard. Fjöldi Akurnes- inga kemur síðan að öðrum þátt- um verkefnisins. Þar má telja að hönnuður burðarvirkis og lagna er Runólfur Sigurðsson og raf- lagnahönnuður er Bragi Þór Sig- urdórsson. Yfirsmiður á verkinu er Valur Gíslason húsasmíðameist- ari á Akranesi. Landsbanki Ís- land á Akranesi fjármagnar verk- ið. Söluaðili íbúðanna verður svo fasteignasalan Valfell á Akranesi. „Þetta verkefni er að mestu leyti unnið af heimamönnum á Akra- nesi sem er bara mjög jákvætt og hið besta mál,“ segir Bjarni Jóns- son. mþh Gamla bókasafnshúsið á Akranesi gengur í endurnýjun lífdaga Heiðarbraut 40 eins og húsið verður séð af götunni. Byggingin að Heiðarbraut 40 eins og hún mun líta út séð úr vestri.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.