Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2015, Page 65

Skessuhorn - 03.06.2015, Page 65
65MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ Rekstraraðili fyrir mötuneyti Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir eftir rekstraraðila fyrir mötuneyti skólans á Hvanneyri frá og með 1. ágúst 2015. Umsóknir tilgreini reynslu og menntun á sviði matreiðslu og mötuneytisrekstrar, ásamt hugmyndum að útfærslu rekstursins og sendist til Kristínar Siemsen; kristins@lbhi.is fyrir 20. júní 2015. Eldhús mötuneytisins er nýlega upp gert og með góðri vinnuaðstöðu og matsalur rúmar 200 gesti. Meginverkefni mötuneytisins er morgunverðar- og hádegisverðarþjónusta fyrir starfsmenn og nemendur auk móttöku hópa sem heimsækja staðinn vegna funda og námskeiða. Mötuneytið gæti einnig í samstarfi við ferðaþjónustuaðila eða aðra víkkað út starfsemi sína eftir atvikum svo lengi sem ekki stangast á við hagsmuni og þarfir skólans. Nánari upplýsingar veitir Theodóra Ragnarsdóttir, rekstrarstjóri, í síma 433-5000. Laust starf hjá Akraneskaupstað Eftirfarandi starf er laust til umsóknar Starf þros• kaþjálfa/iðjuþjálfa í Grundaskóla Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði Nánari upplýsingar að finna á www.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 5 „Fyrsta mótið var 10. maí, opið mót þar sem keppt er um sérstakt höf- uðfat sem við köllum kríuverjuna. Krían kemur alltaf um þetta leyti og þetta mót er haldið árlega, henni til heiðurs,“ sagði Haukur Þórðar- son, formaður Golfklúbbs Staðar- sveitar, léttur í bragði þegar blaða- maður Skessuhorns sló á þráðinn til hans í liðinni viku. Höfuðfat- ið sem um ræðir er að sögn Hauks hálf netakúla sem neðan í er hekl- aður lopi til að hlífa eyrunum fyrir kulda. „Þetta er mjög skemmtilegt höfuðfat og hönnun heimamanna,“ segir Haukur og hlær við. Völlurinn sem Golfklúbbur Stað- arsveitar leikur á er Garðavöllur undir Jökli, 9 holna par 70 strand- völlur sem lagður er í gömlu tún- in að bænum Görðum á Snæfells- nesi. „Völlurinn er rekinn í nánu og góðu samstarfi við Gistiheimilið Langaholt,“ segir Haukur og bætir því við að hann sé í góðu standi og komi vel undan vetri. Golfklúbbur Staðarsveitar er ekki fjölmennur, telur rétt rúmlega 20 félaga en að sögn Hauks er stílað mikið inn á ferðamenn. „Það er allt- af nokkur fjöldi sem spilar hér yfir sumarið og fjöldi útlendinga sem spilar á vellinum á hverju sumri fer vaxandi. En fjöldi spilaðra hringja fer auðvitað eftir veðri, fyrrasum- ar var til dæmis ekki feitt,“ segir Haukur. „En við vonum bara hið besta og höldum ótrauðir áfram.“ Það getur verið dýrt að halda úti fámennum klúbbi, kostnaður er nokkur við að halda úti þeim vél- um sem nauðsynlegar eru til að halda vellinum í horfinu. „Nær allt starf hér er unnið í sjálfboðavinnu og völlurinn hefur, vel að merkja, fengið mikið lof fyrir góða um- hirðu,“ segir Haukur. Mótahald á Garðavelli undir Jökli verður með hefðbundnu sniði í sumar. Utan hins árlega kríumóts verður haldið eitt mót í hverjum mánuði og segir Haukur það nokk- uð hefðbundið. „Aðalmótið okkar er svokallað Tuddamót, opið mót sem haldið er í september ár hvert. Það er eiginlega uppskeruhátíðin okkar, stærsta mótið og verðlaunin þar eru ekkert slor. Fyrstu verðlaun í punktakeppninni eru fjórðungur af nautsskrokk sem félagsbúið á Öl- keldu gefur. Það eina sem sigurveg- arinn þarf að gera er að bíða eftir að nautinu verði slátrað. Eftir það get- ur hann sótt það,“ segir Haukur að lokum, léttur í bragði. kgk Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var haldið um helgina á Ísafirði. Rúmlega sex hundruð sjálfboðaliðar slysavarnadeilda og björgunarsveita frá öllu landinu sátu þingið þar sem fram fóru hefð- bundin þingstörf. Nýr formaður félagsins var kjörinn Smári Sigurðs- son frá Akureyri. Bryndísi Fanneyju Harðardóttur úr björgunarsveit- inni Víkverja var afhentur heiðurs- skjöldur Slysavarnafélagsins Lands- bjargar en hann er æðsta viðurkenn- ing félagsins og veitist einstakling- um fyrir sérlega fórnfúst starf í þágu þess. Fyrirtækin Olís og Orkubú Vestfjarða fengu sérstakar heiðurs- viðurkenningar. Olís fyrir stuðning við Landsbjörgu og Orkubúið fyrir gott forvarna- og öryggisstarf með- al starfsmanna sinna. Isavia heim- sótti landsþingið og afhenti styrki að upphæð níu milljónir króna til 25 björgunarsveita sem munu nýta hann til uppbyggingar á hópslysa- viðbúnaði sínum. mþh Nýr formaður Landsbjargar Kríuverjan, höfuðfatið góða og verðlaunagripur fyrsta móts sumarsins sem haldið er ár hvert til heiðurs kríunni. Leikið til heiðurs kríunni Horft til vesturs eftir Garðavelli undir Jökli.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.