Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 68

Skessuhorn - 03.06.2015, Blaðsíða 68
68 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 Pennagrein Fimmtudaginn 28. maí síðastlið- inn var haldinn fjölmennur íbúa- fundur hér á Akranesi um málefni fiskhausaþurrkunarverksmiðjunnar Laugafisks sem HB Grandi rekur hér neðst á Skaganum og þar með í og við gamla bæjarkjarnann. Vanda- málið með verksmiðju þessa er lykt- armengun sem frá henni leggur og er svo stæk að lífsgæði íbúa miðbæj- arins eru stórlega skert, svo ekki sé talað um verðfall húseigna sem er víst staðreynd og tregða í sölu hjá þeim sem vilja burt. Starfsemi Laugafisks hefur plag- að íbúa Akraness frá því fyrirtæk- ið flutti starfsemi sína hingað frá Reykjanesbæ árið 2004, þaðan sem það hröklaðist vegna lyktarmeng- unar. Bót og betrun var lofað en lít- ið sem ekkert hefur lagast. Nú vill HB Grandi byggja nýja verksmiðju á sama svæði og nýta betri húsakost og nýjustu tækni til að lágmarka fýluna - og allt að því fjórfalda framleiðsluna. Nýleg út- tekt frá VSÓ um nýja verksmiðju styður áætlanir HB Granda, en niðurstöður hennar eru þó mál- um blandnar að því leyti að ljóst er aldrei að verður hægt að útiloka fýlu frá starfseminni. Undir það tók forstjóri HB Granda á fundinum á fimmtudaginn. Hvað er þá til ráða, hvað skal gera? Á bærinn að leyfa áframhald- andi og enn stærri rekstur og taka sénsinn? Þetta gæti batnað, en fýla er nú samt fýla þótt hún sé minni, ekki satt? Og þegar fyrirtæki hefur lagt í mikinn kostnað við nýja verk- smiðju með blessun bæjaryfirvalda verður ekki svo auðveldlega bakk- að. Ætti ekki bærinn frekar að standa í lappirnar gagnvart þessu ágæta fyrirtæki, standa með bæj- arbúum, standa með sjálfum sér og segja nei; við ætlum ekki að láta meiri hagsmuni víkja fyrir minni, við ætlum að efla mannlíf, verslun og þjónustu í miðbæn- um, við viljum að það verði eftir- sótt að búa í gamla bænum, gera upp eldri hús, þjónusta bæjarbúa og ferðamenn og eftirsótt - eins og raunin er orðin - að upplifa náttúru sjávarsíðunnar? Á fundinum fór Vilhjálmur Vil- hjálmsson, forstjóri HB Granda, vítt og breitt yfir starfsemi fyrir- tækisins og var tíðrætt um þá vakn- ingu sem orðin er hjá fyrirtækinu í umhverfismálum. Það er vel og því ætti næsta verkefni þess að vera að færa hausaþurrkunina úr byggð og á stað þar sem sómi er að. Akranes- bær á að eiga í góðu samstarfi við fyrirtæki eins og HB Granda, en það á að vera á jafningjagrundvelli og með hagsmuni bæjarbúa allra að leiðarljósi. Við getum ekki í einu orð- inu sagt að við viljum betri bæ, betra mann- líf, líflegri og fallegri miðbæ, en í hinu gamblað með þessa sýn okkar því þetta fer einfaldlega ekki saman. Við get- um haldið áfram að vera í fýlu, en við getum líka svo auðveldlega gert ráðstafanir til að hætta því. Kristinn Pétursson. Höfundur er stjórnarmaður í Bjartri framtíð á Akranesi og vara- maður í Umhverfis- og skipulagsráði og Menningar- og safnanefnd. Um bæ sem nennir ekki lengur að vera í fýlu Pennagrein Hugleiðing eftir heimsókn á Grundartanga Almennur fundur um umhverfismál og framleiðslu á Grundartanga var haldinn þar þann 30. apríl sl. Þar mættu forsvarsmenn stóriðjufyrir- tækjanna með 106 blaðsíðna skýrslu (sjá nánar á http://www.nordural.is/ files/Skra_0071142.pdf) með nið- urstöðum umhverfisvöktunar iðn- aðarsvæðisins á árinu 2014. Verk- kaupar þessarar vöktunar eru El- kem Ísland ehf, Norðurál ehf. á Grundartanga, GRM endurvinnsla ehf. og Kratus ehf. Þessi fyrirtæki eru öll staðsett á skipulögðu iðn- aðarsvæði á Grundartanga þar sem önnur starfsemi fer einnig fram. Framleiðsla ársins 2014 hjá El- kem var tæp 108 þúsund tonn af 75% kísilmálmi og rúm 21 þúsund tonn af kísilryki. Ársframleiðsla Norðuráls var rúmlega 298 þúsund tonn, en fyrirtækið hefur óskað eftir heimild til að auka framleiðslu sína enn frekar. Úr 300 þúsund tonnum í 350 þúsund tonn. Það er aukning um 16,7%. Endurvinnsla GMR á brotajárni nam rúmum 10 þúsund tonnum. Kratus ehf. endurvann 2.400 tonn af álgjalli. Á fundinum fóru nokkrir sérfræð- ingar og höfundar skýrslunnar yfir helsta innihald hennar og upplýstu að niðurstöður vöktunar árið 2014 fyrir loftgæði, ferskvatn, sjó og hey leiddu í ljós að öll viðmiðunarmörk sem sett eru í starfsleyfum og reglu- gerðum eru uppfyllt. Fram kom þó að ekki eru til skilgreind viðmiðun- armörk fyrir ákveðnar gróðurteg- undir, búfénað og úrkomu. Styrkur flúors í gróðri mældist í öllum til- vikum undir þolmörkum hans. Þó að gróðurinn lifi af þessa mengun ennþá er spurning hvaða afleiðingar það hefur fyrir skepn- urnar sem éta hann. Fjölmörg önn- ur eiturefni berast frá Grundar- tanga, má þar m.a. nefna; brenni- steinstvíoxíð, brennisteinsvetni, köfnunarefnisoxíð- og tvíoxíð, vetnisklórið- og flúoríð, arsen, klór, díoxín/furön, kvikasilfur, kadmíum, antimon, blý, króm, blásýru, járn, kopar, mangan, vanadíum, selen, telleríum, nikkel, kobolt, tin, PAH efni, svifryk og ýmis önnur efni sem ekki verða talin upp hér. En hvað með mannfólkið sem borðar þau matvæli sem þessar skepnur gefa af sér, svo sem kjöt og mjólkuraf- urðir? Einnig má velta því fyrir sér hvort þessi viðmiðunarmörk séu allt of rúm. Allavega virðist stór- iðjan á Grundartanga ekki vera í vandræðum með að halda sig und- ir þeim mörkum samkvæmt skýrsl- unni. Vert er að ítreka að það eru fyrirtækin sjálf sem hafa forgöngu um vöktunina og standa straum af fjárhagslegum kostnaði sem af henni leiðir. Eftir stendur óbættur sá um- hverfiskostnaður sem starfsemi og áhlaðandi uppsöfnun meng- andi efna mun hafa á náttúruna, menn og málleysingja í námunda við Grundartanga. En hvað er um- hverfiskostnaður? Hann er m.a. sá fórnarkostnaður sem leggst á um- hverfið við meðferð þeirra á því sem ráða för hverju sinni. Sem dæmi þá á Laxá í Leirár- sveit enn einu sinni í vök að verj- ast vegna sívaxandi ágangs stóriðj- unnar í neysluvatn sem tekið er úr vatnasviði Laxár til iðnaðarnota á Grundartanga. Nú eru uppi áform um að auka vatnstöku um 135% úr lindum í Svínadal sem annars falla í Laxá, en viðkvæmt vatnasvið henn- ar má mjög illa við slíku. Þegar Hvalfjarðargöngin voru á framkvæmdastigi á sínum tíma, kynnti ég valinkunnum aðilum hugmynd mína að öflugu vatns- bóli sem myndi duga vel stóriðj- unni á Grundartanga, byggðinni sunnan Akrafjalls og Akraneskaup- stað. Hugmyndin snérist um að Akraneskaupstaður og Grundar- tangi sem báða skorti vatn og ef til fleiri, sameinuðust um að ná sam- komulagi við viðkomandi aðila um að fá að byggja vatnsból hátt uppi í Blikdal, skammt frá suður- enda Hvalfjarðarganga. Blikdal- ur er lengsti dalur Esjunnar. Hann nær upp undir hæsta tind hennar, Hábungu í 914 m.y.s. Síðan átti að leggja lögn frá vatnsbóli úr Blikdal í gegnum göngin áður en lokið var við frágang þeirra. Þetta er umtals- vert styttri leið heldur en ofan úr Svínadal og byði upp á sjálfrenn- andi vatn og margfalt meiri þrýst- ing sem gerði bæði stofnkostnað og rekstur miklu hagkvæmari en ella. Að auki hefði verið hægt með til- tölulega litlum aukakostnaði að setja upp gífurlega öflugt bruna- varnakerfi eftir endilöngum göng- unum, en það skortir tilfinnanlega enn í dag. Hugmyndin þótti góð, en síðan ekki söguna meir. Stór- iðjan var með vatnslögn frá vatna- sviði Laxár og lengi hægt að auka flutningsgetu hennar. Akurnesingar höfðu gert stóriðjuna ábyrga ef hún mengaði vatnsból þeirra um of, þá yrði hún af skaffa þeim nýtt vatns- ból á eigin kostnað. Málið dautt. En áhrifa stóriðjunnar gætir víð- ar. Stundum blandast mökkur ryks og reyks saman við blámóðuna sem sjá má leggja frá svæðinu á kyrrum dögum og fólk kemst ekki undan að fá ofan í lungun sín meðan það þráast við að draga andann. Það vakti athygli mína að sjá háspennu- línumöstur og önnur stálvirki á víð og dreif um svæðið sem voru fyr- ir ekki svo mörgum árum þykkhúð- uð af sinki, en eru núna kolryðguð upp úr og niður úr. Slíkur er tær- ingarmátturinn í andrúmsloftinu á Grundartanga. Grunur er um að rekja megi skaða á búfénaði til efnaútblásturs frá Grundartanga. Starfsfólk þar, íbúar í Hvalfjarðarsveit og sumarbústaða- eigendur sem telja má í þúsund- um og afkomendur þeirra gætu allt eins mátt búast við hrakandi heilsu- fari í framtíðinni sem stundum er kennt við „menningarsjúkdóma.” Nær væri að nota hugtak- ið hnignun í þessu sam- bandi, en ekki menningu. Það er kunnara en frá þurfi að segja að tíðni hvers konar ofnæmis og óþols, ofvirkni og/eða vanvirkni líffæra og aðrar heilsutengdar rask- anir hjá almenningi fara vaxandi. Ástæður eru m.a. taldar eiga ræt- ur að rekja til þess lífsstíls sem við búum við ásamt allri þeirri mengun sem skammsýnir valdhafar hverju sinni leggja blessun sína yfir. Stór- iðjureksturinn á Grundartanga með alla sína eiturefnalosun á sinn þátt í þeirri óheillaþróun. Jafnvel þótt hún sé sögð undir svokölluðum „viðmiðunarmörkum.” Markmið valdhafa ætti að vera að tryggja þjóð sinni góð lífsskilyrði án þess að ganga á rétt komandi kyn- slóða til hins sama. Spyrja má hvort ekki sé löngu tímabært að stöðva frekari upp- byggingu á mengandi stóriðju á Íslandi, krefja þær sem þegar eru starfræktar um að draga úr losun eiturefna yfir þjóðina og fá óháða sérfræðinga til að fylgjast með að þeim kröfum verði framfylgt. Að fortíð skal hyggja ef framtíð skal byggja. Reynir Ásgeirsson, kt. 300645-4379.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.