Skessuhorn


Skessuhorn - 16.12.2015, Page 104

Skessuhorn - 16.12.2015, Page 104
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015104 Starfsfólk VÍS á Vesturlandi óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Gleðileg jól gamur.is 5775757 gamur@gamur.is Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári. Við þökkum samstarfið á liðnu ári og hvetjum Íslendinga áfram til stórra afreka í endurvinnslumálum. Hugsum áður en við hendum. Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá fluttist Aldan í Borgar- nesi, sem áður bar nafnið Fjöliðjan, nýlega búferlum úr gömlu slökkvi- stöðinni og út í „burstirnar þrjár“ í Brákarey. Í samtali við Skessuhorn þá sagði Helgi Guðmundsson verk- stjóri nýja húsnæðið henta starf- semi Öldunnar betur. Starfsfólk hefur frá flutning- um unnið hörðum höndum að því að koma sér fyrir í nýja húsnæð- inu. Aldan opnaði formlega á nýj- um stað síðastliðinn föstudag og af því tilefni voru starfsmenn með opið hús og buðu gestum og gang- andi að þiggja kaffibolla og kynna sér starfsemina. kgk/ Ljósm. kj. Opið hús í Öldunni á nýjum stað Starfsfólki Öldunnar voru færð blóm frá Borgarbyggð í tilefni af formlegri opnun á nýjum stað. Málin rædd yfir kaffibolla á opnu húsi í Öldunni. Nú styttist í jólin og af því tilefni er tilvalið að birta hátíðlega uppskrift af ljómandi góðum forrétti. Rjúpa hefur löngum átt heiðurssess hjá mörgum Íslendingum á jólamat- seðlinum, en mörgum þykir erf- itt að matreiða hana svo vel takist. Kjötið á það til að verða þurrt og þá hefur góð sósa oftar en ekki komið til bjargar. Þessi uppskrift sem við birtum hér er töluvert einfaldari í matseld þó hún sé óhefðbundn- ari en steiktar rjúpur með brúnni sósu. Þó erfitt sé að nálgast hráefn- ið nú til dags eru alltaf einhverjir sem eiga rjúpu og fyrir þá er tilval- ið að spreyta sig á því að grafa hana, líkt og tíðkast að gera við aðra villi- bráð, svo sem anda- eða gæsabring- ur. Grafin rjúpa er ekki síðri og er algjört sælgæti í forrétt en eins er hægt að gæða sér á henni hvenær sem er yfir hátíðirnar, enda er hún fínasta „sparisnarl“. Grafin rjúpa ½ dl salt ½ dl sykur ½ msk. grófmulin græn piparkorn 1 msk. grófmulin svört piparkorn 1 tsk. hvítlauksduft 8 mulin einiber 1 tsk. timjan 1 dl fínsöxuð steinselja (fersk) 1 dl saxað dill (ferskt) Bringur af u.þ.b. sex rjúpum Aðferð Skerið bringurnar úr rjúpunum, skolið þær og þerrið með hrein- um klút. Blandið öllu ofantöldu vel saman í skál. Skammturinn dugar fyrir um 500 gr. af rjúpna- bringum. Hyljið svo bringurnar í kryddblöndunni, gott er að nota eldfast mót undir rjúpurnar. Setj- ið fatið inn í ísskáp og látið bring- urnar liggja í blöndunni í sólar- hring. Snúið bringunum tvisvar á þeim tíma. Skáskerið bringuna í örþunnar sneiðar og leggið á borð. Gott er að bera fram með góðu brauði og jafnvel íslensku smjöri. Einnig eru bringurnar góðar með kaldri sósu. Athugið að ef geyma á bringurnar lengur þá er mesta af kryddblöndunni skafið af þeim og þær geymdar í góðu íláti í ísskáp. Ýmsar kaldar sósur fara vel með bringunum en þessi hæfir þeim einstaklega vel. Hún passar einnig með annarri grafinni villibráð, svo sem önd og gæs. Sósan 1 msk. púðursykur 2 msk. balsamic edik 1 msk. dijon sinnep 1 msk. worchester sósa 1 dl ólívu olía Salt og pipar eftir smekk Freisting vikunnar Grafin rjúpa - hátíðlegur forréttur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.