Heimsmynd - 01.10.1987, Page 24

Heimsmynd - 01.10.1987, Page 24
FRIÐÞJÓFUR HELGASON Bjarnason bauð mér að aðstoða sig í heilbrigðisráðuneytinu varð það niður- staða okkar þriggja að ég flytti mig um set.“ Halldór sýnir ekki á sér neitt fararsnið sem kunnugt er úr sjávarútveginum en hefur fengið nýjan óþreyttan aðstoðar- mann enda glíman hörð við kvótasvindl- ara og hvalavini. Sá virðist í fljótu bragði vera meiri fagmaður en framsóknarmað- ur en það renna á mann tvær grímur þegar til þess er litið að hann er systursonur for- mannsins Steingríms Hermannssonar og raunar tengdasonur Guðmundar Bene- diktssonar, ráðuneytisstjóra. Fast hefur verið lagt að Birni Björns- syni að takast á hendur starf aðstoðar- manns formanns Alþýðuflokksins, Jóns Baldvins Hannibalssonar í fjármálaráðu- neytinu. Björn er nú hagfræðingur Al- þýðusambandsins og hefur hann ekki gef- ið endanlegt svar þótt miklar líkur hafi verið á því að hann tæki það að sér þegar HEIMSMYND fór í prentun. Um hann segir samherji í pólitík að hann kunni kjarasamninga og skattalög utanað og að auki kemur hann úr herbúðum Alþýðu- sambandsins sem ekki þykir verra í „verkalýðsflokknum". Friðrik Sophusson varð næst síðastur ráðherra til að skipa sér aðstoðarmann og varð Guðrún Zoéga fyrir valinu. Guðrún er rafmagnsverkfræðingur að mennt og verður því Friðrik liðsauki á faglega svið- inu. Hún hefur einnig starfað í flokknum og á reyndar rætur að rekja til stórmenna innan hans. Guðrún er dóttir Jóhannesar Zoega hitaveitustjóra og systurdóttir Bjarna Benediktssonar, fyrrum forsætis- ráðherra. Einhvern tímann hefði það Hermann Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra nýtur ættartengsla við formann Framsóknarflokksins. komið á óvart að Friðrik veldi sér aðstoð- armann úr röðum Engeyjarættarinnar. Hann háði sem kunnugt er harða rimmu við Björn Bjarnason (Benediktssonar) á árum áður er kosinn var formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna. Friðrik hafði betur og er haft á orði að Engeyjar- ættin hafi aldrei fyrirgefið honum að leggja stein í götu arftaka ættarhöfðingj- ans. Jón Sigurðsson, dóms- og viðskiptaráð- herra, var enn að leita sér að aðstoðar- manni í fyrrnefnt ráðuneyti er HEIMS- MYND fór í prentun, og sagði samherji hans að ákveðið væri að það ætti að vera löglærð kona sem þyrfti ekki að vera krati. Ekki þykir heldur ósennilegt að hann ráði sér aðstoðarmann í viðskipta- ráðuneytið og er Birgir Árnason talinn koma til greina, ef hann verður ekki kvaddur til ábyrgðarstarfa á öðrum víg- stöðvum. En hvernig líta aðstoðarmennirnir á störf sín? Guðmundur Magnússon, aðstoðar- maður menntamálaráðherra, leggur áherslu á að hann sé tilteknum ráðherra til aðstoðar og það sé alveg ljóst að það sé ráðherrann sem ráði ferðinni. „Það má segja að öfugt við fasta embættismenn ráðuneytisins er ég ekki ráðinn til að fást við sérstakan málaflokk heldur fæst ég við þau mál sem ráðherra felur mér hverju sinni.“ Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður heil- brigðisráðherra, og Jónína Michaelsdótt- ir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, tóku bæði undir það að mjög mikilvægt væri að trúnaður ríkti á milli aðstoðarmanns og ráðherra. Finnur sagði: „Eg starfa oft að málefnum sem hvaða embættismaður sem er gæti í raun unnið. Ástæða þess að ráð- herrann felur mér sem aðstoðarmanni slíkt verkefni er þá oft að hann vill fylgjast með því pólitískt." Petta kann að vera ein ástæða þess að margir ráðuneytismenn telja að aðstoðar- mennirnir séu settir að vissu leyti til höf- uðs þeim pólitískt. Ymis dæmi eru um að óglögg verkaskipting milli aðstoðarmanns ráðherra og annarra í ráðuneytum hafi valdið misklíð og jafnvel hörðum deilum. Viðmælendur HEIMSMYNDAR töldu að verst hefði sambúðin verið á milli Jó- hanns Einvarðssonar, aðstoðarmanns fé- lagsmálaráðherra í stjórn Steingríms Her- mannssonar, og embættismanna í ráðu- neytinu og þá einkum samskipti hans við Hallgrím Dalberg, ráðuneytisstjóra. Embættismaður sem þekkir vel til í nokkrum ráðuneytum segir að embættis- mannakerfið hafi óttast um sinn hag þegar viðkomandi ráðherra tilkynnti að hann ætlaði að fá sér aðstoðarmann. „Það tal- aði nánast enginn við þann aðstoðarmann sem ég þekki best til þegar hann byrjaði í '' v- ■ ■ " - Lára Júlíusdóttir erfyrst og fremst pólitískur aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, en státar líka affaglegri reynslu vegna starfa fyrir Alþýðusambandið og að jafnréttismálum. ráðuneytinu." Slíkt virðist ekki vera eins- dæmi innan annarra ráðuneyta. Embætt- ismenn hafa óttast að aðgangur þeirra að ráðherra yrði takmarkaður og aðstoðar- manninum yrðu falin skemmtilegustu verkefnin. Auk þess þykir embættis- mönnum oft akkur í því að vinna að verk- efnum beint fyrir ráðherra. Annar embættismaður dregur ekki dul á að viss öfund sé fyrir hendi. „Ég fæ ekki betur séð en sá aðstoðarmaður sem ég þekki best til hafi hreinlega unnið obbann af embættisverkum ráðherrans“ segir hann. En hvernig er litið á aðstoðarmennina innan flokkanna? Kjartan Gunnarsson. framkvæmdastjóri Sj álfstæðisflokksins, segir að aðstoðarmenn ráðherra Sjálf- stæðisflokksins hafi fram að þessu reynst ákaflega vel enda orðið að vinna myrkr- anna á milli. Hann benti á að í flestum til- fellum væru þeir valdir úr hópi yngri flokksmanna. Fleiri taka undir með Kj art- ani um mikið vinnuálag á aðstoðarmönn- um og að því leytinu er ljóst að það er ekki sældarlíf sem þeirra bíður sem nú hafa ný- verið ráðið sig í þær stöður Alþýðuflokksmaður sagði hins vegar að hann hefði heyrt ónot í garð aðstoðar- manna úr öllum flokkum. Ymsum fyndist þeir vera valdir án tillits til starfa þeirra innan flokkanna. Mörgum þætti óeðlilegt að kalla til ópólitíska menn eða menn úr öðrum flokkum eins og gerðist er Björn Dagbjartsson síðar þingmaður sjálfstæðis- manna aðstoðaði alþýðuflokksmanninn Kjartan Jóhannsson er hann var sjávar- útvegsráðherra. Þykir þeim þá nær að umbuna fórnfúsum flokkshestum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.