Heimsmynd - 01.10.1987, Page 57

Heimsmynd - 01.10.1987, Page 57
LÍFSHÆTTIR íSÁim f K , einar, sjálfstœðar konur, engum háðar. Hvernig sjá þœr sjálfar sig? Leiðist þeim aldrei? Eða eiga þœr kannski fcerri stundir einar en þcer vildu. Sagt er að eini félagsskapur sem maður verður að velja af sérstakri kostgæfni sé eigin félagsskapur. Undan honum er erfitt að komast. Hvað segja konur sem búa einar. Hverjir eru kostirnir og hverjir eru gall- arnir? „Ég á erfitt með að finna einhverja galla á því,“ segir Anna Geirsdóttir lækn- ir. Hún hefur búið ein meira og minna frá 16 ára aldri og nær óslitið í 13 ár. í sama streng taka Elín Pálmadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu og Sigríður Ingvarsdótt- ir deildarstjóri í samgönguráðuneytinu. HEIMSMYND tók hús á þesssum þrem- ur konum til að ræða við þær um hvernig þeim þætti að búa einar. Ekki var annað að sjá á heimilum og konunum sem þar bjuggu en þær kynnu því mæta vel. Mikið af bókum upp um allar hillur, skemmti- legum bókum. Bókum sem mann langar alltaf til að lesa en hefur aldrei tíma. Skyldu þær hafa tíma? Listaverk á veggj- um, ferðasögur í formi muna frá framandi löndum. Á einum stað tölva í stofunni, hluti af vinnu blaðamannsins Elínar. „Ég þyrfti að stækka við mig en hér kann ég vel við mig.“ Á áttundu hæð með útsýni yfir Sundin bæði á sjó og landi. „Ég bý í lítilli íbúð vegna þess að ég vil frekar eyða tíma og peningum í ferðalög en húsnæði og að þrífa til heima hjá mér.“ Hjá Sigríði grípur stór flygill augað. Ekki bara til skrauts því hún spilar á hljóðfærið. Nótnablöð með tónlist vitna um það. Heima hjá Önnu er greinilegt að listin er í hávegum höfð, bæði mynd- og matarlyst. Þeir sem gerst þekkja segja að hún sé góður kokkur. Og þó veit maður að ekki kunna allir því jafn vel að vera einir. Á samtölum við þessar þrjár konur má finna að þær eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær eru ánægðar með einbýlið, án þess að hafna öðru lífs- mynstri. Þær eiga það sammerkt að eiga góða vini og finna lítið fyrir einangrun. Þær þekkja ekki það sem aðrar konur finna einbýlinu helst til foráttu: „Mér fannst gengið fram hjá mér meðan ég bjó ein. Mér var ekki boðið með hjónafólki," segir ein sem er ekki sammála þeim. „Ég held að það sé ekki komið svona fram við karlmenn." Önnur, einnig ósammála, kveður fastar að orði. „Mér fannst ömur- legt að vera ein í sólarlandaferð. Þess var vandlega gætt að ég kæmi aldrei með ef eitthvað var að gerast. Ég var svo græn að stinga upp á því við einhverja íslendinga að við skryppum saman út en var þá fryst úti. Mér fannst ég vera eins og gangandi hættumerki.“ Einmanaleiki getur fylgt því að búa einn. En svo þarf ekki að vera. EFTIR ÖNNU ÓLAFSDÓTTUR BJÖRNSSON „Ég var vöruð við því þegar ég skildi fyrir nokkrum árum að vinirnir myndu hætta að bjóða mér heim og ég yrði mikið ein,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir. „Sú varð ekki raunin. Ég á góða vini sem ég hef þekkt lengi og hef síst minna samband við þá nú en á meðan ég var gift. Þeir líta ekki á líf mitt sem ögrun eða eitthvað til að rísa upp gegn.“ Anna Geirsdóttir tekur jafnvel dýpra í árinni: „Ég hef alltaf verið mikið út á við og læt vini mína ekki kom- ast upp með að hætta að hafa samband. Vinkonurnar hverfa kannski smá tíma meðan þær eru í tilhugalífinu það varir ekki lengi. Fólk er mismunandi félagslynt hvort sem það er í sambúð eða ekki. Ég hef alltaf verið mikil félagsvera, þó að mér finnist gott að geta verið ein. Og stundum er ég hreinlega tekin inn í fjölskyldur vina minna.“ Stundum getur þeim sem eru einir á ferð veist auðveldara að kynnast fólki en þegar þeir eru með ferðafélaga með sér. „Þegar ég ferðast ein erlendis, með lest- um eða öðrum almenningsfarartækjum fer fólk strax að tala við mig,“ segir Elín. „Ef tveir íslendingar eru saman á ferð og tala saman íslensku hafa þeir litla mögu- leika á að kynnast fólkinu í landinu. Mér finnst tvímælalaust kostur að ferðast ein þótt ég hafi ferðast með ágætum ferðafé- lögum. Þannig ferðir verða allt öðru vísi. Starfs míns vegna hef ég ferðast mikið. Ég bjó talsvert erlendis þegar ég vann hjá Sameinuðu þjóðunum og var í utanríkis- þjónustunni og mér hefur aldrei fundist erfitt að kynnast fólki. Ferðalögin eru eitt aðaláhugamál mitt og ein af ástæðunum1 fyrir því að ég hef verið svo lengi í blaða- mennsku. Ég hef oft samband við blaða- mannaklúbba eða vini vina minna í því landi sem ég fer til og þannig kynnist ég mörgum. Oft er fólk miklu opnara í stutt- um kynnum sem skapast á ferðalögum en annars væri, vegna þess að kynnin eru bundin við takmarkaðan tíma. Ég skrifa þessum vinum mínum jólakort ef ég man en ég held að oft sé til lítils að halda áfram kynnum sem verða á ferðalögum eftir að heim er komið. Þá fer fólk að lifa og hrær- ast í svo ólíku umhverfi og með óhk við- horf og á ekki lengur neitt sameiginlegt. Vissulega eru ákveðin atriði sem þarf að taka tillit til ef maður ferðast einn. Það lærist af sjálfu sér. Ég hef með mér blað eða bók á matsölustaði ef ég vil ekki vera ónáðuð. Geng úti við vegabrúnina en ekki upp við húsasund erlendra borga, kaupi ekki ís eða ávexti af götusölum. Enda hef ég ekki fengið í magann nema einu sinni erlendis og það var í skipulagðri sólar- HEIMSMYND 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.