Heimsmynd - 01.10.1987, Síða 92

Heimsmynd - 01.10.1987, Síða 92
TÓNLIST EFTIR ARNA SNÆVARR OG ILLUGA JÖKULSSON Gera Stuðmenn allt nema að koma naktirfram1 Stuðmenn eru án vafa ein virtasta og vinsælasta hljómsveit landsins. Hljóm- sveitin var í eina tíð stundarfyrirbrigði með það eitt að leiðarljósi að skemmta Stuðmönnunum sjálfum. Nú er hún hins vegar föst í sessi og gerir út skamman tíma á ári þegar hljóðfæraleikararnir eru ekki að sinna öðrum verkefnum. En til hvers? Til þess að borga næsta rafmagnsreikning eða svala listrænum metnaði og skemmta þeim sjálfum? Stuðmenn trekktu eins og venjulega mest um verslunarmannahelgina. Um það bil tíu þúsund manns komu í Húsafell og þeir áttu víst ekki í vandræðum með það frekar en fyrri daginn að koma öllum í feikna stuð. En meirihluti gesta var á aldr- inum þrettán til átján ára; dauðadrukknir unglingar sem veltust um skítugir og sveittir fyrir framan sviðið og tóku ekki allir eftir hinum fínni blæbrigðum í gríni Stuðmanna eða hljóðfæraleik. Einn sam- komugestur um þrítugt, sem taldist vera rígfullorðinn í Húsafelli, sagði sem svo þegar hann sá sjömenningana þenja sig fyrir unglingaflóðið: „Sveiattan, þarna leggst nú lítið fyrir góða tónlistarmenn." Annar á svipuðum aldri heyrði til hans og fussaði og sagði um hæl: „Iss, þetta er ekki annað en þeir eiga skilið, bölvaðir pen- ingaplokkararnir. . .“ Það fer enginn fram á að Maggi Kjart- ans spili á Sögu af hugsjón né að Gunni Þórðar leiki gömlu lögin á Broadway af listrænni þörf. Með Stuðmenn gegnir dá- lítið öðru máli. Fólk gerir aðrar og meiri kröfur til þeirra félaganna en flestra ann- arra tónlistarmanna hérlendis og við- brögðin eru líka harðari ef aðdáendunum finnst þeir ekki halda árunni hreinni. Nú síðustu misserin hefur borið töluvert á röddum sem segja að Stuðmenn hafi sett töluvert ofan að undanförnu, að gróða- sjónarmiðið sé þeim óþarflega ofarlega í huga. Margir urðu hálf móðgaðir þegar þeir gerðu tilraun til að slá í gegn erlendis á síðasta ári undir nafninu Strax; aðrir hlógu bara kuldahlátri og þá ekki síst eftir að sú tilraun virtist falla um sjálfa sig áður en hún var almennilega hafin. Einstaka vonsviknir aðdáendur ganga jafnvel svo langt að fullyrða að Stuðmenn hafi selt sig Mammoni og séu orðnir lítið annað en heldur dapurlegt samansafn miðaldra manna sem rembist eins og rjúpan við staurinn að halda uppi einhverju fjöri, ekki af því þeir finni hjá sér þörf til þess eða hafi gaman af því, heldur aðeins til að borga næsta rafmagns- eða hitareikning. Á amerísku kallast þetta „að fara til Las Vegas", sem útleggst að verða glassúrleg- um skemmtanaiðnaði að bráð. Hér á Is- landi eigum við ekkert Las Vegas en ætli flestir viti ekki við hvað er átt. Fæstum þykir það merki um óslökkvandi listræn- an metnað að skemmta í Las Vegas en á hinn bóginn fá þeir sem þar koma fram ekkert smáræði fyrir sinn snúð. Fólk vill þrátt fyrir allt sjá þá skemmtikrafta sem Las Vegas býður upp á. Og Stuðmenn lokkuðu tíu þúsund manns í Húsafell. Upphaflega áttu Stuðmenn aldrei að vera annað en dægrastytting og skemmt- un fyrir þá sem að þeim stóðu. Hljóm- sveitin kom fyrst fram á fáeinum skemmt- unum í Menntaskólanum við Hamrahlíð upp úr 1970 og þá var markmið forsprakk- anna, Jakobs Magnússonar og Valgeirs Guðjónssonar, að hafa hana sem allra hallærislegasta; lausnarorðið var púkó. Hljómsveitin vakti lukku sem slík og fá- einum árum seinna voru gefnar út tvær litlar plötur undir svipuðum formerkjum. Lag þeirra Honey Will You Marry Me varð þá býsna vinsælt, sérstaklega fyrir at- beina félaga Stuðmanna úr menntaskól- anum. Það var svo árið 1974 sem Stuðmenn sprungu út, þá gerðu þeir plötuna marg- frægu Sumar á SýrlancLi sem margir telja enn bestu plötu þeirra og altént þá skemmtilegustu. Þeir sem skamma Stuð- menn nú fyrir að hafa ánetjast markaðs- lögmálum benda með trega á þessa plötu; þar sé hina einu sönnu Stuðmenn að finna og hvergi annars staðar. Á Sýrlandsplötunni var kominn til skjalanna sá hópur sem síðan hefur að mestu staðið að Stuðmönnum; Jakob Frí- mann Magnússon, Valgeir Guðjónsson og þeir félagar hans Egill Ólafsson og Sig- urður Bjóla, Tómas M. Tómasson og Þórður Árnason. Það gekk ekki þrauta- laust að koma plötunni saman og eftir upptökurnar fóru þeir í hár saman, en hin- 92 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.