Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 6
FRÁ RITSTJÓRA
nóvember 1987, 6, tbl. 2. árg.
ÚTGEFANDI
Ófeigur hf. Aðalstræti 4,101 Reykjavík
SÍMI
62 20 20 og 62 20 21
AUGLÝSINGASÍMI
1 73 66
RITSTJÓRI
Herdís Þorgeirsdóttir
STJÓRNARFORMAÐUR
Kristinn Björnsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir
AUGLÝSINGASTJÓRI
Edda Sigurðardóttir
ÚTLIT
Jón Óskar Hafsteinsson
AÐSTOÐ Á RITSTJÓRN
Valgerður Jónsdóttir
Nanna Þórarinsdóttir
AÐSTOÐ Á SKRIFSTOFU
Andrea Laufey Jónsdóttir
FORSÍÐUMYND
Rut Hallgrímsdóttir
LJÓSMYNDARAR
Bragi Þ. Jósefsson
Stefán Jónsson
Rut Hallgrímsdóttir
UMBROT, LITGREINING
OG PRENTUN
Oddi hf.
ÚTGÁFUSTJÓRN
Herdís Þorgeirsdóttir
Kristinn Björnsson
Helgi Skúli Kjartansson
Sigurður Gísli Pálmason
Jóhann Páll Valdimarsson
Ólafur Harðarson
HEIMSMYND kemur út sjö sinnum árið
1987. Verð þessa eintaks í lausasölu er kr.
327. Sé áskrift HEIMSMYNDAR greidd
með EUROCARD er veittur rúmlega 40%
afsláttur af útsöluverði en annars 20%.
Átök hafa verið mannlegri vitund hugleiknari en nokkuð
annað, að frátalinni ástinni og Guði, segir einhvers staðar.
Er það furða miðað við þann heim sem við búum í?
Stjórnmálaleiðtogar, stefnumál þeirra og stofnanir sem
þeir eru í forsvari fyrir, eru óþrjótandi athugunarefni með
tilliti til þess sem fólk verður að þola — jafnvel þó svo þetta
sama fólk hafa kallað þá yfir sig. Saga ríkja og heimsvelda
Evrópu síðustu tvö þúsund ár sýnir að á móti hverjum fjór-
um friðsælum árum er einu ári varið í stríð eða upplausnir
afeinhverju tagi. Hið sama gildir um nútímaríki. Á sjöunda
áratugnum brutust átök út í 114 af 121 stœrri ríkjum heims
eða nýlendum. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar fram til
þessa dags hafa tilraunir, til að velta stjórnvöldum úr sessi
þar sem ofbeldi fylgir í kjölfarið, verið fleiri en almennar
kosningar.
Óháð þessum staðreyndum er íslenskt stjórnmálalíf —
saga þess er ekki blóði drifin. Óþol og vonbrigði í garð
stjórnvalda eru hins vegar dagleg uppspretta umrœðna í
þessu landi. Úrslit síðustu þingkosninga eiga eflaust eftir að
verða frœðimönnum rannsóknarefni og hugsanlega eiga
einhverjir eftir að komast að þeirri niðurstöðu að þær hafi
markað ákveðin tímamót, þar sem hefðbundið flokkafylgi
er að raskast. ísölum Alþingis er þó ennþá rifist enda hefur
verið bent á að hlutverk þessarar (áður) virtu stofnunar sé
orðið nokkurs konar æðra fjölmiðlaforum, huggulegur
vettvangur fyrir jakkafataklædda menn til að reifa málin.
Síðan fara allir í kokteilboð eins og þingmenn allra flokka á
Seltjarnarnesi til stjórnmálamannsins Júlíusar Sólness. Og
fólkið í landinu andvarpar yfir blessaðri samtryggingunni.
Hvílíkir tímar, hvílíkir siðir, segir fólk og rifjar sumt upp
gamla tíma þegar pólitískir sjarmörar voru til og menn voru
miklir leiðtogar, hataðir eða dýrkaðir. Slíkt segir núverandi
utanríkisráðherra um föður sinn, Hermann Jónasson for-
sætisráðherra, Ólaf Thors og fleiri. Sjálfur er Steingrímur
Hermannsson vinsælasti stjórnmálaleiðtogi á landinu ef
marka má skoðanakannanir. Því heþur ekki alltaf verið far-
ið svo og má spyrja í því sambandi hvort ástæðan sé ein-
faldlega hagstæður samanburður. Svo vinsæll er Steingrím-
ur að nú ganga um það sögur að hann sé líklegur til að
verða næsti forseti lýðveldisins. Ennfremur er því hvíslað
að Steingrím Hermannsson langi í enn valdameira embætti
á alþjóðavettvangi. Þegar hið síðarnefnda var borið undir
hann roðnaði utanríkisráðherra en var þó fús til að ræða
um hið fyrra og margtfleira eins ogfram kemur hér í blað-
inu. . .
6 HEIMSMYND