Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 118
Hollandi í fjögur ár. í fyrra hlaut
Jóhanna Kristín starfslaun i heilt ár og
dvaldi þá um nokkurt skeiö á
Grænlandi. Það eru verk þaðan og verk
unnin á þessu ári sem Jóhanna sýnir í
Gallerí Borg nú í nóvember. Þetta er
hennar fjórða einkasýning.
„Jóhanna kom fram með mjög per-
sónulegan expressjónisma, sem virðist
óvenju innilegur fyrir íslenskan málara.
Hún sker sig úr þeirra hópi að því leyti
að hún virðist mála af fullkominni per-
sónulegri einlægni,“ segir Halldór B.
Runólfsson listfræðingur.
Listakonan lýsir sór sjálfri sem
ástríðufullri. „Ég er alltaf að mála sjálfa
mig en get ekki málað nema óg sé í
jafnvægi og í sátt við sjálfa mig.“
Jóhanna Kristín lýsir sér jafnframt sem
feiminni og óöruggri. „Það tók mig tvö
ár að safna sjálfstrausti til að hafa
eitthvað að segja við strigann þegar ég
kom heim úr námi. Því byrjaði ég ekki
að mála af alvöru fyrr en árið 1982.“
Hún á tíu ára dóttur sem heitir Björg.
„Ég mála hana líka. Hún er lóttbiluð
eins og ég og verður örugglega
listakona."
Jóhanna sem er fædd og uppalin við
Elliðaárnar segir Heimahvamm, húsið
sitt, vera tengilið sinn við ættjörðina.
„Það er mitt umhverfi og þar finn ég
öryggi, sem ég finn hvergi annars
staðar. Hér þekki ég hverja þúfu." — Er
hún í jafnvægi nú? „Ég er nýskilin en
að sjálfsögðu komin með annan mann
því karlmannslaus get ég ekki verið. Því
blandast nú í verkum mínum sorg, gleði
og tregi."
Hún segist líka finna fyrir eirðarleysi
komist hún ekki til útlanda af og til. „Ég
reyni að fara úr landi með reglulegu
millibili hafi ég efni á því,“ segir þessi
hógværa, ástríðufulla listakona um leið
og hún býður fulltrúa HEIMSMYNDAR
á sýningu sína. „Ég verð nú bara við
opnunina. Ég er svo feimin. Þú hittir
mig ekkert þar daglega."
Deilt á dómarana:
„í bóklnni segi ég frá 6
dómsmálum sem komið hafa fyrlr
Hæstarétt, en í öllum dómunum
reyndi á mannréttindaákvæði
stjórnarskrárinnar." Jón Steinar
Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður sendir nú frá
sér bókina Dellt á dómarana en
bókin kemur út hjá Almenna
bókaféiaginu.
„öll málin eru frekar ný, elsti
dómurinn er frá 1983, annar frá
1985 og svo fjögur yngri mál. Þetta
eru að stærstum hluta mál sem ég
hef verið með sjálfur, fjalla um
tjáningarfrelsi, skatta, jarða- og
ábúðalög, og í bókinni eru
staðreyndir málanna lagðar fyrir og
hvernig dómurinn hefur unnið úr
þeim."
Hann sagði að mannréttindin hafi
orðið að iúta í lægra haldi í öllum
þessum dómum, og hann sem
borgari orðið óánægður með
málalyktir, en telji að bókin eigi
erindi til þjóðarinnar þar sem hún
gefi mönnum færi á að lesa um
staðreyndir málanna.
118 HEIMSMYND