Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 43
Helgl Pótursson og
Valgerður Matthías-
dóttir umsjónarmenn
þóttarlns 19:19. Kostn-
aðurlnn vlð gerð
þessa þáttar liggur
ekkl fyrlr en forróða-
menn stöðvarinnar
segja að til að hann
standi undlr sér þurfl
þeir flmm þúsund nýja
áskrlfendur.
Jón Óttar Ragnarsson
sjónvarpsstjórl segir
stöðina nú „fjárhags-
lega skothelda".
verð að undanförnu. Sé það rétt, þá eru
þessar tölur orðnar hærri.
Á þessu ári hefur Stöð 2 samið við
fjölda fyrirtækja um dagskrárefni. Þar
má meðal annarra nefna 20th Century
Fox og Columbia, auk evrópskra fyrir-
tækja. Samningar við fyrirtæki í Evrópu
eru dýrir og verður Stöð 2 til dæmis að
borga sama og RÚV hefði þurft að
borga fyrir þýska þáttinn Heimat. Mínút-
an í þættinum kostar 12 dali og því lætur
nærri að hver þáttur kosti rúmar 57 þús-
und íslenskar krónur, ef við gefum okk-
ur að hver þáttur sé tveggja tíma langur.
Þegar þýðingarkostnaði hefur verið bætt
við lætur nærri að Stöð 2 þurfi að borga
64 þúsund krónur fyrir hvern þátt af
Heimat. Einnig þarf Stöð 2 að greiða há-
ar upphæðir fyrir erlenda íþróttaþætti.
„Erlendar myndir kosta okkur 60 til
80 milljónir á ári, þó nær 100 milljón-
um,“ segir Ólafur H. Jónsson um kostn-
að Stöðvar 2 vegna innkaupa á erlendum
myndum.
Þegar spurt er um kostnað við dagskrá
Stöðvar 2 á viku eða mánuði bendir
Ólafur réttilega á að erfitt sé að setja
það dæmi upp, þar sem margir erlendir
samningar séu bundnir fjölda áskrifenda.
Því getur kostnaður við mynd sem sýnd
er í dag verið annar en þegar hún var
sýnd í síðasta mánuði.
HEIMSMYND tók þó út einn dag í
dagskrá Stöðvar 2 og áætlaði í grófum
dráttum heildarkostnað við myndakaup,
þýðingar og dagskrárgerð. Fyrir valinu
varð fimmtudagurinn 8. október af
handahófi og samkvæmt útreikningum
HEIMSMYNDAR nam dagskrárkostn-
aður Stöðvar 2 þann dag rúmlega 335
þúsund krónum. Kostnaður við 19:19 er
reyndar ekki tekinn inn í þetta dæmi
vegna ónógra upplýsinga um einstaka
kostnaðarliði við þáttinn.
Forsendurnar fyrir þessum útreikning-
um eru 22 þúsund áskrifendur að dag-
skrá Stöðvar 2 og að greidd séu 3 sent
(1,20 íkr.) á áhorfanda fyrir hverja sýn-
ingu á erlendri bíómynd. I raun er sá
kostnaður talsvert hærri, því borga þarf
fyrir ákveðinn fjölda sýninga hvort sem
myndin er sýnd svo oft eða ekki.
Til þess að mæta þessum útgjöldum
hefur Stöð 2 aðeins tvo tekjuliði, áskrift-
argjöld og auglýsingatekjur.
Stöðvarmenn segja að áskrifendafjöld-
inn sé nálægt 25 þúsundum, en ætla má
að 22 þúsund áskrifendur sé nær lagi.
Samkvæmt því nema áskriftartekjur
Stöðvar 2 á ári um 330 milljónum króna.
Ólafur H. Jónsson viðurkenndi í við-
tali við HEIMSMYND að Stöð 2 fengi
meira en áskriftargjaldið við sölu mynd-
lyklanna. Ákveðin prósenta af verði
hvers lykils rennur til Stöðvar 2 og nam
sú upphæð 1000 krónum í fyrrahaust.
Árstekjur Stöðvar 2 af lyklasölu Heimil-
istækja má því áætla um 22 milljónir
króna. Ólafur segir þó að þessi upphæð
hafi minnkað undanfarið, því reynt sé að
halda verði lyklanna niðri þrátt fyrir stíg-
andi verðlag.
Auglýsingakakan sem er til skiptanna
milli RÚV og Stöðvar 2 nemur um 300
milljónum króna á ári. í fyrra námu aug-
lýsingatekjur ríkissjónvarpsins rúmlega
200 milljónum króna og Hörður Vil-
hjálmsson fjármálastjóri RÚV segir að
þeir áætli að tekjurnar verði svipaðar að
krónutölu í ár.
Ólafur H. Jónsson segir að það megi
áætla að Stöð 2 fái um 100 milljónir
króna nettó í auglýsingatekjur í ár. Þessi
tala er eflaust nær lagi og heimildamenn
HEIMSMYNDAR í auglýsingabransan-
um benda einnig á, að Stöð 2 sé í mikilli
sókn hvað auglýsingar varðar og með
framhald á bls. 136
Fimmtudagur 8. októbar. Dagskrár- kostnaóur StöAvar 2
ki. 16.46 ^ 1 háloftunum Anplnnn Onrnanmynrl „rn v'»vnlnruli llrionlyn 1 rmnlir.lii AAnllilnlvnik llnlmil 1 Inyn. Inlin H.rumlyiKj Knrnn Alirliil -Inlilinr LniknkA.ri .lirr, AliinliniiK. 1 Invi.l rTiir.kn. rm .Inrry/m.knr ÞyAnnrk All.nA l.lnrln Kostar 26.400 krónur
ki 18 20 » Smygl Smuglor Broskur Iramhaldsmyndaflokkm lynr brtrn og ungknga þyðnnrll Morslornn Pálsson LWT (3.13) Kostar 8.400 krónur
ki. i8 so Ævlntýrl H.C. Andorsen, Óll Lokbrá Toikmmynd moð islensku lali Leikraddir Guðrún Þórðardðllir. Julíus Briánsson og Saga Jónsdóllir. (2.2) Þyðandi Hagnar Hólm Ragnarsson. Paramount (16.26) Kostar 75.000 krónur meö isl. tali
Kl. 19 19 19:19
Kl. 20.20 Fólk Bryndis Schram tekur á móli geslum. Slöð 2 (2:7) Kostar 100 þúsund krónur
ki 21 ooKlng og Castle Vmir. Breskur spennumyndallokkur um Ivo lélaga sem laka að sér rukkunarlyrirlæki, Þýðandi. Birna Bjórg Berndsen. Thames Television (4 6) Kostar 16.800 krónur
ki. 2155 ^ Vafasamt athœfl Compromising Posilions. S|á nánari uml|óllun Aðalhlulverk. Susannd Sarandon. Raul Julia og Joe Manlegna. Framleiðandi og leiksljóri: Frank Perry. Þýðandi. Iris Guðlaugsdóllir. Paramounl 1985 Sýningarlími 95 mln. Kostar 26.400 krónur
ki. 23 30 * Stjörnur í Hollywood Hollywood Slars. Viðlalsþáltur við Iramleiðandur og leikara nýjuslu kvikmynda Irá Hollywood. S|á nánari umfjöllun. Þýðanndi: Ólalur Jónsson. New York Times Synd- icated 1987. (4.14) Kostar 26.400 krónur
ki 23 55 * Forlngl og fyrlrmaður An Olficer and a Centleman. Ungur maður i liösforingjaskóla bandariska flolans fellur fyrir stúlku. sem býr i grenndinni. Þaöfellur ekkt i kramið hja yfirmanm hans, sem reyn- ir að gera honum llfið leitt. Louis Cossell Jr. hiaul Óskarsverðlaun fyrir leik sinn i þess- ari mynd. Aðalhlutverk: Richard Gere. Debra Winger, Louis Gossell Jr.. David Keolh og Harold Sylvesler. Leiksljóri: Taylor Hackford. Þýðandi: örnólfur Arnason Para- mounl 1982. Sýnmgartími 119 min. Kostar 26.400 krónur
ki. 0155 Dagskrárlok
Allar tðlur eru mlðaðar vlð 22 þúaund éakrlfendur. Pað mi ætla að þýðlngarkostnaður þennan dag sé um 30.000 krónur. Helldarkostnaður fyrlr flmmtudaglnn 8. október er þvl um 335.800 krónur og þá er kostnaður vlð 19:19 ekkl teklnn með.
HEIMSMYND 43