Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 25
um ( einu og öllu. Norðmenn eru til dæmis með fyrirvara á
stjörnustríðsáætlun Reagan-stjórnarinnar og ég tel að hún
standi í veginum fyrir afvopnun. Þá styð ég tillögu Svía og
Mexíkó um frystingu á tilraunum með kjarnorkuvopn. Mér
finnst afstaða okkar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
hafa tekið allt of mikið mið af afstöðu bandarískra stjórn-
valda. Lítið dæmi um það er tillaga sem kom fram um þjóðar-
atkvæðagreiðslu vegna sjálfstæðisbaráttu Vestur-Sahara. Við
sátum hjá af því bandarísk stjórnvöld voru á móti henni þótt
önnur norræn ríki hafi stutt þessa tillögu. Ég get ekki hugsað
mér að styðja þeirra stórveldapólitík, til dæmis í Mið-Amer-
(ku og er algerlega á móti stuðningi þeirra við contra-skæru-
liðana. Ég tel reyndar að bandarísk stjórnvöld hafi hrundið
sumum ríkjum í fang kommúnista með afstöðu sinni. Og
hvers vegna styðja þau einræðisstjórnina í Chile?“
Hann fer hlýjum orðum um Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. „Ég tel hann einlægan stuðningsmann sam-
komulags austurs og vesturs. Um Reagan get ég ekki fullyrt í
þessu samhengi enda held ég að hann ráði ekki í raun. Shultz
hefur sagt mér að Reykjavíkurfundurinn hafi verið stórt skref
í átt til árangurs og ég tel að meðan þessar þreifingar eru í
gangi milli stórveldanna eigum við ekki að rugga bátnum.
Hins vegar á ég mér þann draum að við getum orðið virk
vegna landfræðilegrar legu okkar og ýmislegs annars í þá veru
að hafa áhrif og jafnvel frumkvæði. Ég hef viðrað þá skoðun
mína að á íslandi yrði staðsett miðstöð, starfrækt í þeim til-
gangi að bæta sambandið milli austurs og vesturs. Ég ætla mér
að viðra þessa hugmynd betur við bæði stórveldin en þegar ég
ræddi hana við Gorbachev varð hann hrifinn og sagði Rússa
tilbúna að leggja pening í þetta.“
Þrátt fyrir að hann sé fáliðaður í utanríkisráðuneytinu,
sem hann kvartar undan, segir hann vilja margra
starfsmanna þar til að gera vel vera mikinn. „Pað er verið að
kvarta undan bákni en við erum mjög fáliðuð. Ég hef ekki
ráðið í neina stöðu sjálfur, forveri minn Matthías Á. Mathie-
sen var búinn að ráða menn í einar átta stöður. Svona er nú
pólitíkin. Hér eru hins vegar margir ágætir starfsmenn sem
hafa verið í utanríkisþjónustunni um árabil."
—Þegar Edda, eiginkona Steingríms, er innt eftir fyrirætl-
unum hans í framtíðinni, áhuga hans á forsetaembættinu til
dæmis, dregur hún úr þeim orðrómi. „Núverandi forseti er
svo vinsæl og því skil ég ekki af hverju fólk er að tala um ein-
hvern annan í það embætti," segir hún.
Sjálfur segir Steingrímur: „Forsetastarfið eins og því er
háttað nú hefur ekki vakið áhuga minn. Petta er æðsta virð-
ingarstaða í landinu en ég tel embætti forseta of slitið úr
tengslum við þjóðmálin. Forseta er meinað að láta í ljós skoð-
anir á viðkvæmum málum. Ég tel að því ætti að vera öðruvísi
farið, meira í líkingu við forsetaembættið í Finnlandi. Pað ætti
að auka völd forsetans, þannig að hann yrði sem slíkur öflugri
málsvari þjóðarinnar í ýmsum málum. Mér finnst að forseti
ætti að geta túlkað okkar utanríkisstefnu á erlendum vett-
vangi. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ef slík breyting á
að verða á embættinu þarf að breyta stjórnarskránni. Forseti
íslands núna hefur aðeins vald í sambandi við stjórnarmynd-
anir og í stjórnarkreppum. Því hefur þetta embætti ekki verið
að mínu skapi. Hver forseti hefur sinn stíl og það verður erfitt
fyrir eftirmann Vigdísar ef sá ætlar sér að feta í fótspor henn-
ar. Hún hefur mótað embættið vel gagnvart vissum þáttum og
verið jákvæð ímynd fyrir ísland erlendis. Eftirmaður hennar
verður að marka sína eigin braut."
— Langar hann inn á þá braut? Hann hlær. „Ég hef skorað
á forsetann að sitja áfram. Hvað verður svo í framtíðinni þori
ég ekkert að segja um. Vinsældir mínar geta dalað auðveld-
lega, sérstaklega ef það líða fjögur ár í næstu forsetakosning-
ar.“
— Hann kemur kannski þó upp um sig í lokin þegar hann
lýsir þeim eiginleikum sem hann langi til að sjá í næsta for-
seta, hvenær sem það verður. „Mér þætti gaman að sjá mann í
því embætti sem hefði áhuga á náttúruvernd, umhverfismál-
um, íþróttahreyfingunni, skógrækt. . .“ svo skellihlær hann!
Laugaveg 20 sími 91-10655