Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 54
Engin formleg skilgreining er til á hve-
nær skammdegið hefst og hvenær því
lýkur, en venjulega er talið að það nái
yfir tveggja mánaða tímabil, frá því um
20. nóvember fram til 20. janúar, þá
daga er sólin um 6 klukkustundir á lofti,
en sólargangur er stystur 21. desember,
rétt rúmar fjórar klukkustundir.
„Drauga-, trölla- og forynjusögur
verða til alls staðar í skammdeginu norð-
an Alpafjalla, við erum langt frá því að
vera ein um þessar sögur.“ Árni Björns-
son þjóðháttafræðingur segir að forynjur
okkar séu þó stórbrotnari en annars
staðar. „Ég held það sé allt eins vegna
þess hve landslagið hér er stórbrotið og
hve fólkið er fátt, fremur en vegna
myrkursins. Hér hefur fólk verið meira
eitt á ferð og vegalendir talsverðar milli
bæja, það þarf því ekki mikið ímyndun-
arafl til að ýmsar verur verði til. Sjálfur
hef ég verið einn á ferð í óbyggðum um
hábjartan dag og það var ekki laust við
að ímyndunaraflið væri farið af stað,
hvað þá ef ég hefði verið á ferð í svart-
asta skammdeginu.“
Hvað gerði fólk sér til dundurs í
skammdeginu hér áður? „Það vann
geysilega mikið, vinnuharka var mikil,
einkum þó eftir siðaskiptin því þá fækk-
aði mjög helgidögum frá kaþólskum sið.
Það er ekki fyrr en á 20. öldinni sem tala
helgidaga verður aftur söm og á miðöld-
um. Fyrir jól var mikið að gera á heimil-
um, prjónavinna var mikil þar sem upp-
gjör við kaupmanninn fór fram fyrir jól-
in.“
Það var því langt frá því að fólk legðist
í híði í gömlu torfbæjunum, illa upplýst-
um og köldum. En fólk reyndi að þjappa
sér saman yfir ljósum í baðstofunni og
vinna undir húslestrum og annarri
skemmtun.
Hefur skammdegið haft einhver áhrif
á geðheilsu okkar Islendinga? Ekki segir
Högni Óskarsson, geðlæknir, en bætir
þó við að þegar rannsóknir hafi farið
fram á tíðni þunglyndis og innlagna á
spítölum sums staðar erlendis hafi komið
í ljós árstíðabundnar sveiflur sem gera
vart við sig vor og haust. „Það hefur til
dæmis verið sett fram tilgáta í Finnlandi
um að aukið þunglyndi og sjálfsmorð á
vorin standi í beinu sambandi við at-
vinnuhætti, bændur komi oft illa undan
vetrarþunganum, uppskeran löngu búin
og endar ná ekki saman. Borgarfólk
virðist hins vegar eiga við meiri þung-
lyndisvandamál að stríða á haustin.
Árstíðabundið þunglyndi getur tengst
skorti á sólarljósi, þetta nefnist á erlendu
54 HEIMSMYND
F lestir árekstrar
•H slys eiga sér stað í
máli seasonal affective disorder og lífeðl-
isfræðilega skýringin er sú að sólarljósið
örvi ákveðnar frumur í augunum sem
hafa áhrif á heilaköngul sem framleiðir
taugaboðefni. Skortur á ljósi getur því
framkallað þunglyndi, en þetta er þó
ekki mjög algengt.“
íslendingar hafa brugðist við skamm-
deginu með jólum og jólaundirbúningi,
en ljósahátíð var haldin hér löngu fyrir
kristnitökuna. „Baðstofumenningin hef-
ur verið aðlögun að þessu skammdegi,
og samvera fólksins, vinnan, frásagnirn-
ar og kveðskapurinn hefur unnið gegn
þunglyndisviðbrögðum manna og aukið
samkennd fólksins. Við höldum enn í
þetta, fólk er mikið í fjölskylduboðum
og vinaboðum í desember og um jólin,
og mönnum finnst notalegt að sitja yfir
kertaljósum.“
Högni vinnur nú að rannsókn á því
hvort árstíminn hafi áhrif á geðheilsu
fólks og er niðurstaðna að vænta í lok
þessa árs. Hann verður ekki var við auk-
inn fjölda sjúklinga eftir árstímum, enda
eru sjúklingar hans hjá honum í tímum
vikum og mánuðum saman.
„Það er verulegur munur á áfengissölu
eftir árstíðum," segir Gústaf Níelsson
skrifstofustjóri Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins. „Fyrri hluti árs er alltaf
lakari í sölu, janúar, febrúar og mars, en
svo verður salan meiri eftir því sem líður
á árið, mikil yfir sumarmánuðina, en
dregst saman í september og október.
Desember er langsöluhæsti mánuðurinn,
léttu vínin seljast langmest þá, til dæmis
fer um helmingur allrar rauðvínssölu
fram í desember."
Skemmtistaðirnir eru einnig vel sóttir í
desember. „Það er eins og fólk finni hjá
sér löngun til að skemmta sér þegar tek-
ur að hausta,“ segir Birgir Hrafnsson
skemmtanastjóri í Broadway. „Sumar-
næturnar eru fagrar og fólk vill frekar
eyða þeim úti við og aðsókn dettur því
alltaf niður á skemmtistöðunum á sumr-
in, en á haustin fara skemmtistaðirnir af
stað með skemmtiatriði og þessháttar og
það hefur alltaf verið vel sótt. Aðsóknin
hefur alltaf verið mjög góð í desember,
miklu meira að gera fram að jólum en
eftir áramótin, í janúar og febrúar."
En er fólk drukknara á skemmtistöð-
unum í svartasta skammdeginu? „Ég sé
er.ran mun á því, sumir fara vel með vín,
ió'. r ekki, og það er alveg sama á hvaða
aís.tíma það er, en það er léttara yfir
fólki á sumrin."
Hvað gerir fólk sér til skemmtunar í
skammdeginu? Svo virðist sem töluverð
myrkrinu