Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 83
Pað var svo 1983 að hljómsveitin Kukl
var stofnuð og þar voru þau Einar Örn,
Björk og Sigtryggur öll að störfum.
Kuklið náði að vinna sér vissa viður-
kenningu meðal þeirra sem fylgjast með
framsækinni rokktónlist í Evrópu. Þau
fóru í nokkur hljómleikaferðalög um álf-
una, léku á alþjóðlegum tónlistarhátíð-
um og fengu tvær stórar plötur útgefnar í
Bretlandi. Pær komust inn á óháða vin-
sældalistann þar í landi og hlutu góða
dóma gagnrýnenda. Pegar Kukl hætti
svo vorið 1986 leið ekki á löngu uns Syk-
urmolarnir urðu til.
Hvað er svona sérstakt við Sykurmol-
ana?
Pau ræða hvað er á dagskrá, klára
hafragrautinn og setja diskana í vaskinn.
Gera sig klár fyrir daginn, eru samferða
út á götuna. Pað er sólskin, ekki rigning.
Þór er í svörtum skóm, snjáðum galla-
buxum, hvítri skyrtu, svörtum leður-
jakka, með gítartöskuna í annarri hendi
og sígarettu milli varanna. Einar Örn er í
stórum, þungum skóm, svörtum kakí-
buxum, litríkri skyrtu, svörtum jakka,
með lítinn trompet úr silfri nældan á
brjóstvasann. Sigtryggur er í svörtum
leðurskóm, svörtum buxum, hvítri
skyrtu, bláum glansandi vindjakka og
með litla skjalamöppu undir hendinni.
Björk er í dökkbrúnum skóm með gulum
reimum, ljósum sokkum, ryðrauðum
kjól, dimmbláum aðskornum leður-
jakka, með eldrauðan varalit og villt hár.
Bragi er í svörtum támjóum skóm, galla-
buxum rifnum á hnjánum, grárri peysu
og dökkum rúskinnsjakka.
Þau skipta liði. Hljóðfæraleikararnir
fara í Berry Street hljóðverið að hljóð-
rita grunna að fimm nýjum lögum sem
eiga að fara á breiðskífuna Life’s Too
Good sem verður gefin út á næsta vori.
Næsta hljómplata Sykurmolanna í Eng-
landi verður hinsvegar smáskífa með lag-
inu Cold Sweat og er áætlað að hún komi
út í kringum áramótin. Söngvararnir
þurfa að fara í viðtal við BBC-Worldser-
vice. Ég fer með þeim.
Sykurmolarnir voru upphaflega sjö en
Friðrik Erlingsson gítarleikari, fyrrver-
andi Purrksmeðlimur, og Einar Melax
hljómborðsleikari, fyrrverandi Kuklari
og Kókómeðlimur, eru hættir.
Fljótlega eftir stofnun hljómsveitarinn-
ar tókst samstarf með henni og útgáfu-
fyrirtækinu One Little Indian. Sykurmol-
arnir stofnuðu eigið fyrirtæki á íslandi,
Smekkleysu sf., og gáfu út ljótt póstkort
með mynd af Reagan og Gorbachev í til-
efni af leiðtogafundinum. Ágóðann not-
uðu þau til að fjármagna upptökur á
Life’s Too Good og gefa út smáskífu
með íslenskum útgáfum á lögunum
Ammœli og Köttur. Fyrra lagið gerði dá-
litla lukku og hitt lagið örlitla.
Hvað gerðist?
í höfuðstöðvum BBC hitta Einar Örn
og Björk pluggerinn sinn. Plugger er
maður sem kemur hljómsveitum í sam-
band við útvarps- og sjónvarpsstöðvar.
Plugger Sykurmolanna setti hljómsveit-
ina The Smiths í samband á sínum tíma.
Hann er hrifinn af Sykurmolunum, seg-
ist vera ánægður með að þau hugsi fyrst
og fremst um að skapa tónlist sem þau
hafi sjálf gaman af en ekki eitthvað sem
þau haldi að falli útgefendum, áhorfend-
um og gagnrýnendum í geð.
Viðtalið er fimmtán mínútur. Einar
Örn talar um ísland, náttúruhamfarir og
yfirleitt allt annað en tónlist. Björk segir
frá því þegar hún lærði hjá Göggu Lund.
Eftir viðtalið segir pluggerinn þeim hvað
er framundan: Radio London, MTV
Europe, Capitol Radio, BBC1 og fleira.
Pau kveðja pluggerinn. Við fáum okkur
pönnukökur í hádegisverð í Covent
Garden. Síðan förum við í Berry Street.
Árið sem hefur liðið frá því að Sykur-
molarnir tóku upp breiðskífuna notuðu
þeir til að halda röð Smekkleysukvölda á
íslandi. Einskonar tónleika þar sem
einnig komu fram ljóðskáld og nýjar,
óþekktar hljómsveitir. Sykurmolarnir
hafa veitt Smekkleysuverðlaun þeim sem
HEIMSMYND 83