Heimsmynd - 01.11.1987, Blaðsíða 87
KVIKMYNDIR
Þegar kvikmyndin Andra
Dansen var valin sjötta
besta mynd ársins 1982
skrifaði ritstjóri
International Film
Guide að Lárus Ýmir
vreri tvímcelalaust einn
ncefHeikamesti leikstjóri
sem komið hefði fram á
yónarsviðið lengi . . .
EFTIR HERDlSI ÞORGEIRSDÖTTUR
Leikstjóri
á heimsmœlikvarða
Hann er kominn heimfrá Svíþjóð -ogá aðbaki tvœr
stórmyndir fyrir erlendan markað - Lárus Ýmir Ósk-
arsson rœðir fortíð sína og framtíð . . .
Þegar kvikmyndin Andra Dansen var
frumsýnd á norrænu kvikmyndahátíðinni
í Finnlandi í janúar 1983 varð mörgum
ljóst að hæfileikamikill kvikmyndaleik-
stjóri var kominn fram á sjónarsviðið.
Kvikmyndin sem International
Film-Guide útnefndi sem þá sjöttu bestu
í heiminum árið 1982/83 skipaði Lárusi
Ými Óskarssyni þá í hóp leikstjóra á
borð við Tarkovsky, Bergman, Pakula
og fleiri. Margir gagnrýnendur voru yfir
sig hrifnir af verki þessa unga íslenska
leikstjóra og líktu honum við Roman
Polanski, Wim Wenders og Antonioni.
Ritstjóri International Film Guide, Peter
Cowie, skrifaði af þessu tilefni um verk
Lárusar Ýmis að hann byggi yfir ein-
hverjum galdramætti, andagiftin sem
hann byggi yfir væri svo dularfull að Lár-
us Ýmir yrði að teljast í hópi frumleg-
ustu hæfileikamanna sem komið hefðu
fram á sjónarsviðið lengi. Sænskir kvik-
myndagagnrýnendur héldu vart vatni af
hrifningu yfir frammistöðu hins unga ís-
lenska leikstjóra. Eitt sænsku blaðanna
skipaði Andra Dansen fyrir ofan Fanny
og Alexander Ingmars Bergman og E. T.
Spielbergs þetta árið. Einn gagnrýnandi
komst svo að orði að myndin væri ef til
vill ekki fullkomið meistaraverk en 99
prósent engu að síður, þar sem mynd og
ljóð væru samofin í listrænni heild. Og
annar gagnrýnandi sagði að slíkur hæfi-
leikamaður væri Lárus Ýmir Óskarsson
að hann vonaði að ekkert fengi stöðvað
hann í að halda áfram á þeirri braut sem
efni stæðu til. Sjálfur sagði Lárus Ýmir í
samtali við sænskt blað þá: „Fyrir mér er
kvikmynd fyrst og fremst upplifun. Að
frátöldum kvikmyndum Kurosawa hrífa
þær myndir mig mest þar sem söguþráð-
urinn er ekki allsráðandi."
Lárus Ýmir er nú kominn heim til föð-
urlandsins eftir að hafa starfað í Svíþjóð
um árabil. Á nýafstaðinni kvikmynda-
hátíð var mynd hans Den Frusna Leo-
parden sýnd í fyrsta sinn á íslandi og nú í
nóvember frumsýnir sænska sjónvarpið
nýjustu mynd hans Hdstens Öga í þrem-
ur hlutum á mánudagskvöldum.
Þrátt fyrir velgengni og meðbyr á er-
lendri grund hefur verið hljótt um Lárus
Ými Óskarsson hér á landi. Hann er án
efa einn af frambærilegri kvikmyndaleik-
stjórum á Norðurlöndum nú. Eins og Bo
Jonson hjá Vikingfilm í Stokkhólmi hef-
ur staðhæft í sama mund og hann reynd-
ar nefndi nafn Hrafns Gunnlaugssonar.
Að frátöldu alskeggi og skollitu hári er
vart hægt að hugsa sér ólíkari menn en
þessa tvo. Lárus Ýmir virðist hægur
maður en mjög tilfinninganæmur. Hann
er 38 ára gamall, á eina dóttur og eitt
hjónaband að baki. Hann er fæddur í
fiskamerkinu, þann 1. mars árið 1949,
eldra barn foreldra sinna, alinn upp í
Skuggahverfinu í Reykjavík. Hann gekk
í Menntaskólann í Reykjavík, féll ein-
hvers staðar á miðri leið eins og skóla-
bróðir hans Davíð Oddsson og lauk
námi ári á eftir jafnöldrum sínum. Leið
Lárusar lá síðan í líffræðinám við Há-
skóla íslands sem varð lítið úr en árið
1973 hélt hann til Stokkhólms og hóf
HEIMSMYND 87