Heimsmynd - 01.07.1993, Page 21

Heimsmynd - 01.07.1993, Page 21
vegar hafa eiginleg markmið í hinni skipulegu hreyfingu öreiganna verið opinberlega óskilgreind síðan þessi áform um valdatöku voru lögð á hilluna. Hvað gerist í hreyfingu sem eitt sinn boðaði kúgun ragnarök og hafði ekkert að missa nema hlekkina? Á sjötta áratugnum og þeim sjöunda svaraði hin formlega ís- lenska verkalýðshreyfing þessari spurningu verklega í tveimur lotum. Alþýðusambandið hafði verið guðfaðir vinstristjórnarinnnar 1956, og fengið höfuðflokka sina tvo til að taka þar saman höndurn i ágætu samræmi við þáverandi hugmyndir um tengsl flokka og faghreyfingar. Haustið 1958 gekk Hermann Jónasson, forsætisráðherra vinstri- stjórnarinnar, inn á Alþýðusambandsþing og bað um stuðning við efnahagsráðstafanir til að halda landinu á floti og stjórninni á lífi. Hann fékk nei. Verkalýðshreyfingin var ekki reiðubúin til neinna fórna til að tryggja „sína“ flokka í stjórnarráðinu. í kjarasamn- ingum tæpum áratug síðar, í júní 1964, gekk verkalýðshreyfingin hins vegar til samninga við viðreisnarstjóm sem naut afar takmarkaðs stuðnings innan hreyfingarinn- ar. I almennum kjarasamningum skuldbatt stjórnin sig ýmis konar félagslegra aðgerða, og á móti lofaði verkalýðshreyfingin í raun til að hætta beinum afskiptum á vettvangi flokkastjórnmála. Lykilmenn í þessari þróun voru verka- lýðsforingjarnir og alþingismennirnir Hanni- bal Valdimarsson og Eðvarð Sigurðsson. sinn úr hvorum höfuðstraumi hreyfingarinnar. Út um byggðirnar byltingin fossar Sýnilegasta minnismerki þessara við- burða og afleiðinga þeirra í þjóðarsögunni er Breiðholtið í Reykjavík. Bygging þess var ákveðin í kjarasamningum og var gríðarlegt framfaraskef í húsnæðismálum á höfuð- borgarsvæðinu. Það kom líka miklu fjöri í bygginga- bransann. Með því tók verkalýðshreyfingin á tákn- rænan hátt við sjálfseignar- stefnu hægriafla í húsnæðis- málurn. En ríkisvaldið (og Sjálfstæðisflokkurinn) gekkst inn á verulega opinbera að- stoð til að fjármagna þessa sjálfseignarstefnu með verð- bólgulánum á niðurgreidd- um vöxtum. Og það voru slegin lán fyrir þessu úti í löndum. Og þau þarf víst að borga aftur... Þá tæpu þrjá áratugi sem síðan eru liðnir hefur Verkó haldið sig á þessari braut, og þó aldrei frekar en á tólf ára valdatíma Ásmundar Stefánssonar í forystu ASÍ. Samningaviðræður um kaup og kjör fara ekki lengur Magnús L. Sveinsson, formað- ur Verslunarmannafélags Reykjavíkur. íslenskar aðstæð- ur hafa leitt til þess að kristi- legir sósíaldemókratar úr Sjálfstæðisflokknum hafa haft sterk ítök í hinni faglegu samfylkingu öreiganna. fram rnilli kaupenda vinnuafls og seljenda þess, heldur er karp- ið orðið þríeitt. Á sama tíma hafa orðið verulegar breytingar á afstöðu hvers til annars í þessum stöðuga kjaraballett, sem á tæknimáli mundi sennilega heita pas de trois. Ríkið var í upphafi i hlutverki sáttasemjar- ans í deilu hinna hat- römmu andstæðinga. Því líbrettói er löngu búið að henda, og nú er ríkið í stöðugri vörn gagnvart Tveim- ur vinum sem hóta að fara báðir í frí ef ekki er látið eftir þeim það sem þeir hafa ákveðið. Vegna þessarar þróunar hafa ýmsir gagnrýnendur verka- lýðshreyfingarinnar gefið samráði og samstarfi ASÍ og VSÍ nafnið kjaramála- ráðuneytið - sameig- inlega myndi hinir frægu „aðilar vinnu- markaðarins" eins konar ríki í ríkinu: valdastofnun um kjaramál og alrnenn þjóðmál sem enginn man eftir að hafa kosið sér og hvergi er getið um í stjórnarskránni. Kannski má orða það þannig að hér hafi handhafar auð- magnsins - sem heldur ekki hafa verið kosnir - rýmt til í brúnni fyrir forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar. Miðstöðvar þessa kerfis eru á skrifstofum heildarsamtakanna, en þau treysta tengslin ekki síst innan hverrar greinar í gegnum yfirráð sín yfir skyldu- bundnum lífeyri landsmanna. Að auki kemur ótölulegur grúi opinberra og óopinberra nefnda og ráða. Stundum er urn þetta þríveldi notað hugtak frá tímum Mússolinis á Ítalíu og kallað korpóratismi. Það er ekki sögulega hárrétt, því að þar voru atvinnurekendur og verkamenn í sörnu samtökum innan hverrar starfsgreinar, - Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins, og Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitendasambandsins. Ýmsir gagnrýnendur verkalýðshreyfingarinnar hafa gefið samráði og samstarfi ASÍ og VSÍ nafnið kjaramálaráðuneytið - sameiginlega myndi hinir frægu „aðilar vinnumarkaðarins" eins konar ríki í ríkinu. og ríkisvald fasista átti alltaf síðasta orðið. En á annan hátt hafa þessar hugmyndir II Duce gengið í endurnýjun lifdaga á íslandi og annar staðar í norðanverðri Evrópu á síðustu áratugum. Æskunnar hetjur við hrynjandi söngva hugdjarfar ganga í feðranna spor Innan ASÍ er þokkaleg sátt um þetta ráðuneytishlutverk. Það hefur fært foringj- um hreyfingarinnar veruleg völd í afdrifa- miklum málum, og það hefur líka bætt al- menn samskipti við atvinnurekendur. ASÍ og VSÍ er mikilvægt að ná sem sterkastri sameiginlegri stöðu kjaramálaráðuneytisins gagnvart þriðju aðilum, fyrst og fremst ríkis- valdinu, en einnig til dæmis bankakerfinu, að ógleymdum kjarahópum utan samstarfs- ins. Til að styrkja þá stöðu er reynt að forð- ast vandræði milli aðilanna eins og verða má, og miðstjórnarvald leitast á báðum stöðum við að hefta ásteyting og draga úr óánægju, oft með prýðilegum árangri. Hin sjálfsagða daglega hagsmunagæsla fyrir

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.