Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 22

Heimsmynd - 01.07.1993, Síða 22
launafólk og fyrirtæki gengur einfaldlega betur með sátt og samlyndi að vegarnesti. Þessi elskuleg- heit leiða hins vegar sjald- an til róttækra breytinga á skilyrðum umbjóðendanna. Hitt verður „aðilanum“ ASÍ sífellt erfiðara, að stilla saman strengi á hverjum tíma og sú samstilling hefur undanfarið reynt verulega á þanþol samtak- anna. Þrátt fyrir stöðugar þjóðarsáttartilraunir síðasta áratuginn hefur ekki þveg- ist af hinn svarti blettur lág- taxtanna. Þetta hefur skap- að stöðuga spennu í lág- launafélögunum, til dæmis með iðnverkamönnum og í verkakvennafélögunum. Láglaunamál og opinberar jöfnunaraðgerðir hafa hins vegar ekki verið neitt sérstakt áhugamál iðnaðarmanna sem eru mun spenntari fyrir framtíðarþróun uppmælingarinnar, og hingað til hafa ófaglærðir verkamenn litið frekar til aukavinnunnar og bónuskerfanna en stöðu launataxtans. Hér skiptir líka miklu að landsbyggðarmenn hafa fyrst og fremst hugsað í vinnudögum en síður um verðlag atvinnunnar. Án þess að draga úr mikilvægi ýmis konar félagsmálapakka á vegum verkalýðshreyfingarinnar má segja að í raun hafi ýmsir ráðandi hópar innan ASÍ talið hagsmuni sína liggja fremur í miklum framkvæmdum og sem mestum sjávarafla en taxtahækkunum, breytingum á skattakerfi eða félagsaðstoð. Þetta birtist einkar skýrt í síðustu samningum þar sem óttinn við atvinnuleysið þrýsti ASf til samninga um framkvæmdir framkvæmd- anna vegna og sett var inn ákvæðið fræga um að skerða ekki þorskkvótann. Rétt áður en Hafró birti nýjustu tillögur. Ragna Bergmann, fyrrverandi varaforseti Alþýðusambandsins, Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamanna- sambandsins, og Orn Friðriksson, fyrrverandi varaforseti Alþýðusambandsins. Persónur skipta alltaf mestu máli. Fyrir verkalýðshreyfinguna skipta þeir hæfileikar miklu að vera klókur samningamaður, fylginn sér í daglegu hagsmunastreði og lipur við hagtölur. Það er kjararáðuneytishelmingurinn. En án kirkjuhöfðingjanna er verkalýðshreyfingin bara skrifstofa. launafólks í samningaviðræðunum. Forystu- menn opinberra starfsmanna líta svo á að Benedikt hafi brugðist þeim á örlagastundu þegar þau settu á fullt og stefndu á verkfall. Síðan sagði ASÍ bara bless við Ögmund og Svanhildi, og hafa þar með ýfst upp sárin frá verkfallinu 1984 þegar opinberir starfsmenn töldu ASÍ hafa brugðist sér á versta tíma. Hinn þátturinn varðar svo misjafna hagsmuni. ASI skeytti litlu um launataxta, skattamál og félagsaðgerðir og lagði megináhersluna á að treysta atvinnu með opinberu frum- kvæði. Þar með var ráðist á ríkissjóð og gefið grænt ljós á niðurskurð í ríkisstofnunum. ASI semur þannig um meiri vinnu fyrir sig á kostnað vinnunnar hjá BSRB. í kjara- málaráðuneytinu eru sumir jafnari en aðrir. Það var svo enn salt í sárin þegar um daginn var fyrir tilviljun sett á flot gömul hug- mynd um að BSRB yrði sam- einað ASÍ, og eins og við manninn mælt: Fulltrúar opin- berra starfsmanna afneituðu stóra bróður með heitingum og formælingum. Þitt er valdið verkamaður, vinna þín skóp heimsins auð Yfir vötnunum svífur tómarúmið eitt saman eftir kjarasamninga þríveldanna í vor. Þótt fáir geri við það athugasemdir hef- ur enginn sérstaka trú á því sem þar gerð- ist. Verðlækkunum í kjölfar samninganna er tekið með semingi og vantrú. Svipaða sögu er að segja um viðbrögð almennings við at- Ögmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Alþýðusambandið hefur samið um meiri vinnu fyrir sig á kostnað vinnunnar hjá opinberum starfsmönnum. í kjaramálaráðuneytinu eru sumir jafnari en aðrir. vinnuaðgerðum tregrar ríkisstjórnar. Síðast en ekki síst virðist það enn ólíklegra nú en fyrir samninga að langþráð vaxtalækkun verði að veruleika. Tiltrú samtakanna minnkar óhjákvæmi- lega í samfélaginu við samninga af þessu tagi. Þetta er áfall fyrir Al- þýðusambandið, ekki síst vegna þess að um hríð leit út fyrir að traust i þess garð hefði aukist eftir að verka- lýðsforingi í gömlum og góð- um stíl tók við af tæknimann- inum sem áður sat á kon- tórnum á Grensásveginum. Margir vonuðust til að undir forustu Benedikts Davíðsson- ar mundi ASI og verkalýðs- hreyfingin stoppa ríkisstjórn- ina af í efnahagsmálum og velferðarmálum eins og áður hefur gerst. Það varð ekki, og með samningunum tapaði Benedikt þeim óvænta beggja skauta byr sem hann hafði í upphafi valdatíma síns, og ekki víst hann gefist nokkurn tíma aftur. Ætli það hafi ekki verið helsti akkillesarhæll Bene- dikts að hann gleymdi sér í kjaramálaráðuneytinu meðan almenningur í gjánni ætlaðist til að verkalýðshreyfingin brygði sér í betri fötin stn, nefnilega hemp- una og kragann. Talaði einsog kirkja. Kirkjan - það er nefnilega ýmislegt líkt með nútímaaðstæðum verkalýðshreyfingar- innar og stöðu kirkjunnar í samfélagi mið- alda. Báðar stofnanirnar urðu til í hvassri baráttu með nýtt sæluríki að markmiði. Ýmislegt hugmyndagóss er þeim sameigin- legt, enda skapaðist (Framhald á bls. 94) Láttu gjalla um landsbyggð alla lýðsins sterka sigurhróp Einu sinni var Bandalag starfsmanna ríkis og bæja einskonar forréttindahópur vellaun- aðra og æviráðinna sem ASI-félagar viður- kenndu ekki sem verkalýð, hvað þá hluta af hreyfingunni. Nú eru félagar BSR og B margir með svipaða stöðu og lághópar ASI. En vantraustið og tortryggnin milli Sam- bands og Bandalags hefur ekki breyst. Tveir mikilvægir viðhaldsþættir þeirrar tortryggni komu einmitt í ljós í síðustu samningum. ASI hefur tekið að sér hlutverk launamannsins í þríleiknum, og vill engan með sér við borðið. Ögmundur Jónasson hafði bundið vonir við að nýr formaður breytti vinnubrögðum Alþýðusambandsins í þessu efni, og á tímabili virtist Benedikt Davíðsson líta á sig sem forystumann alls 22 HEIMSMYND J Ú L í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.